Menntamál - 01.02.1970, Síða 37
Sumar-
námskeið
í Kungálv
Frá vinstri: Björn Höjer, Caroline Haslund, Wilhelm
Otnes, Ole Backström og Poul Haahr.
NORDENS FOLKLIGA AKADEMI starfar I Kungálv í
Svíþjóð, en Kungálv er lítill bær, skammt norðvestur af
Göteborg. Akademíið hefur aðsetur I sömu húsum og
Norræni lýðháskólinn, og eru húsakynni hin veglegustu,
enda nýreist. Skólarnir eru samt algjörlega sjálfstæðar
stofnanir.
Árið 1968 hóf akademíið að halda stutt námskeið íyrir
kennara og æskulýðsleiðtoga. Ætlunin er ekki að veita
sérmenntun í ákveðnum greinum, heldur byggist
fræðslustarfið aðallega á fyrirlestrum, sem leiðandi
menn á ýmsum sviðum á Norðurlöndum — og stundum
lengra að komnir — halda og varðar sérsvið þeirra og
starf. Námskeiðin og mótin eru ætluð öllum þeim, sem
vinna að íræðslu- og uppeldismálum í víðasta skiln-
ingi, og þess vegna geta bókaverðir, blaðamenn, sjón-
varps- og útvarpsmenn tekið þátt í þessum námskeiðum.
Fast starfslið við akademíið eru eftirtaldir menn:
rektor er Björn Höjer, Svíi, lektorarnir Poul Haar, Dani,
og Wilhelm Otnes, Norðmaður. Skrifstofustjóri er Ole
Backström, Finni, og bókavörður er Caroline Smedal
Haslund, Norðmaður.
40 þátttakendur geta verið á hverju námskeiði. Með-
an á námskeiðinu stendur búa þeir í nemendahúsunum
á Fontinhæðinni, en það er skógivaxinn hjalli, sem ligg-
ur inni á umráðasvæði skólans. Ef öll fjölskyldan tekur
þátt í námskeiðinu, fær hún tvibýlisherbergi. Mat og
annan viðurgerning fá menn í sameiginlegum borð-
stofum skólans.
Öll kennsla er ókeypis, en dvölin kostar 150 sænsk-
ar krónur á viku.
I kynningarriti frá akademiinu eru íslendingar ávarp-
aðir á þessa leið:
Leiðin til Kungálv er bæði löng og kostnaðar-
söm og varla farin einvörðungu til þess að taka
þátt í einnar viku námskeiði á Nordens folkliga
akademi.
Stór hópur íslendinga (kennarar, stúdentar og
aðrir) fer þó árlega utan til námsdvalar aðallega
til norrænu nágrannalandanna eða með viðdvöi á
Norðurlöndum til annarra Evrópulanda.
Það væri okkur ánægjuefni, ef þú gætir tengt
slika viðdvöl þátttöku í námskeiði á Nordens folk-
liga akademi í Kungálv.
Þú færð — eins og aðrir þátttakendur — ferða-
styrk frá dvalarstað til Kungálv, ef ferðakostnaður
ódýrustu leið nemur hærri fjárhæð en 150 s.kr.
Enginn fær þó hærri fjárhæð en 250 s. kr.
Mikilvægt er, að íslenzk rödd heyrist í rökræð-
um á umræðufundum.
Velkomin!
í þessu kynningarriti eru auglýst námskeið, sem hald-
in verða fyrri hluta árs 1970. Þau námskeið, sem íslenzk-
um kennurum væri fært að sækja tímans vegna (fyrra
árs námskeið), auglýsir skólinn á þessa leið:
MENNTAMÁL
31