Menntamál - 01.02.1970, Síða 44

Menntamál - 01.02.1970, Síða 44
námsmarkmið: Sýnir góðar námsaðferðir mundi ég því brjóta niður í eftirtalin fimm atriði, sem öll eru sett fram sem atferli nemandans, en þar með er unnt að meta, hvort þeim hefur verið náð: a. Kann að nota orðasafn og gerir það. b. Notar efnisyfirlit. c. Gerir góðar glósur og geymir þær til seinni nota. d. Hefur snyrtilegar stílabækur. e. Hefur unnið heimaverkefni reglu- lega. Á þessu sést líka, að ekki eru öll náms- markmið metin með skriflegum prófum, og ekki fer allt námsmat fram til þess eins að gefa nemendum einkunn, sem skrifuð er í einkunnabók. Námsmat fer fram til að kanna, hvort námsmarkmiðum hefur verið náð, og aðeins einn tilgangur þess af mörgum er formleg einkunnagjöf. Megin- tilgangurinn er að fræða nemendur og kennara um, hvar þeir standa, svo að þeir geti hagað vinnubrögðum sínum samkvæmt því. Jafnframt því, að námsþættirnir eru sett- ir fram, er námsefnið sundurliðað. Síðan er búin til tvíhliða tafla, þar sem þættir náms- efnisins eru ritaðir á annan veginn en námsins á hinn. Þessi tafla er gerð með væntanlegt námsmat í huga. Nú þarf að meta, hve mikla áherzlu við leggjum á hvert atriði eða hluta námséfnisins og rita hlutfallslegt vægi hvers á spássíu, gjarnan sem prósenttölu. Þess verður að gæta vand- lega, að atriðataflan endurspegli skólastarf- ið sem bezt, en vægi hvers þáttar sé ekki sett út í hött. Dæmi um einfalda atriðatöflu: Hugsurn okkur að kennari hafi lokið við að kenna nemendum tugabrot og nefndar tölur (metrakerfið). í kennslunni fylgdi hann námsbókinni, en bætti þó við allmörgum orðadæmum, sem einkum var ætlað að æfa nemendur í að finna sínar eigin aðferðir við lausn daglegra vandamála. Nú vill kenn- arinn, áður en lengra er haldið, prófa nem- endur til þess að vita, hvort þeir hafi náð valdi á þessu námsefni, hvort e. t. v. séu einhver atriði, sem svo margir eru óöruggir í, að rétt sé að láta allan bekkinn fá við- bótarkennslu í þeim, og hvar einstakir nem- endur þurfi sérhjálp. Námsefnið liggur ljóst fyrir: Það var farið yfir 4 höfuðgreinar reiknings í tugabrotum, áherzla lögð á sætagildi talna og margföldun með 10, 100, 1000 o. s. frv., einnig metrakerfið. Þegar kennarinn fór að lnigsa um hlutföll í próf- inu — námsþættina — fann hann, að a. m. k. helmingur tímans hafði farið í æfingar uppsettra dæma og því væri eðlilegt, að helmingur prófsins væri uppsett dæmi. Þau orðadæmi, sem kennarinn hafði bætt við og einkum áttu að fá nemendur til að beita eigin aðferðum, höfðu, að mati kennarans, tekið um 15% tímans. Samkvæmt þessu gæti atriðataflan litið þannig út: o o o o Námsþættir Námsefni Uppsett dæmi Orðadæmi lesin (eða sambærileg við dæmi í bókinni) Orðadæmi ólesin % af prófi Fjöldi dæma Samlagning og frádráttur 3 2 1 20 6 Margföldun 4 2 1 25 7 Deiling 4 3 1 25 8 Nefndar tölur 4 4 1 30 9 % af prófi 50 35 15 100 Fjöldi dæma 15 11 4 30 MENNTAMÁL 38

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.