Menntamál - 01.10.1970, Qupperneq 11
sem við vitum með vissu um framtíðina er, að
AGA VERÐUR TILFINNINGAR mannanna
til ábyrgðar: Samábyrgðar.
ÁBYRGÐAR í hugsun.
ÁBYRGÐAR í starfi.
ÁBYRGÐAR í öllu SKAPANDI STARFI.
Og þar erum við komin að megin kjarna
málsins: Þa3 er hið skapandi starf, hið innra,
sem með hverjum manni býr:
MAÐURINN SJÁLFUR,
SÁL hans, sem sinna verður í öllu
uppeldi, að hann geti brugðizt við og
mætt vanda.
Við höfum í endilöngu skólakerfi verið þjálfuð í því
að móttaka: Móttaka vizku, móttaka minnisatriði, mót-
taka þekkingu, við erum eitt allsherjar móttökutæki utan-
aðkomandi áhrifa ríkjandi hentistefnu og tízku og múg-
sefjunar, símalandi áróðurs þessarar aldar þekkingar-
innar, sem við trúðum á, þessarar aldar tækninnar, sem
við dýrkuðum, nutum, þessarar aldar vísinda, sem við
gerðum að Guði. Svo sannlega koma syndir feðranna
fram á börnum okkar, við höfum búið þeim veröld, sem
trúir á stríðsguði, tækniguði, arðguði:
Gullkálfurinn stendur enn á stalli
ÁRÓÐURS,
OFBELDIS,
tækni- og vísindaöldin hefur afrækt það guðs-
ríkið, er býr hið innra með yður: HIÐ INNRA
JAFNVÆGIÐ HVERRAR MANNSSÁLAR:
Jafnvægi alhliða eiginda þróunar vits og til-
finninga, þróunar vits og sjálfstjáningar, þró-
unar vits og skapandi starfs:
Sú mannvitsvíðsýni, er bezt skyggnist í
samábyrgu samstarfi samhjálpar: samhæf-
ingu, samæfingu huga og handar, hjarta, vilja,
tilfinninga, vits:
Menntun er ekki menntun án þessa.
Menntun hefur ekkert gildi án þessa.
Menntun er jafnvel hættuleg án þessa.
Útilokað er að tala um þróun myndvits án
þessa, þ.e.a.s. sé þess óskað að þróun mynd-
vits sé jákvæð.
Varðandi þessi mál öll: Og vegna þeirrar deiglu öll
þessu hliðstæð mál nú bræðast í, hef ég á minn máta
sagt til synda hlutaðeigandi aðilum menntayfirvalda
þessa lands okkar, en hér leyfist til viðbótar að lesa
ykkur þann pistil, sem um var beðið:
ÉG LES FYRIR YKKUR GAMLAR HUGS-
ANIR. Ég les fyrir ykkur kvartaldar gamlar
hugsanir mínar, sem ég hef borið saman við
hugsanir þeirra manna, er um skyld mál hafa
fjallað, en ég hef ei fundið neinn innlendan
eða erlendan SÁLFRÆÐING, LISTFRÆÐING,
UPPELDISFRÆÐING, KENNARA, HEIMSPEK-
ING, HAGFRÆÐING, FÉLAGSFRÆÐING, er
segði mér þar neitt til viðbótar því,
SEM BÖRN SÖGÐU MÉR ÁN ORÐA.
Þau sögðu mér þetta, sem ég les ykkur, með
myndum sínum:
Sérmennt sálvísinda, listvísinda, uppeldis-
vísinda, kennsluvísinda, hagfræðivísinda,
félagsfræðivísinda hefur hagt mér margt ann-
að óendanlega mikilvægt, satt, um lífsvísindi
manns sálna: SÁLUSORGARAR þó mest, um
það, þá sáldýpið skyggnist, hið ómeðvitaða.
Nú, hér, þegar ég tala: TALA við ykkur snn, TALA
með þessum slitnu ORÐUM, vona ég samt, að í hug
ykkar þau, ORÐIN, móti MYND: dauft endurvarp myndar
hins ÓRÆÐA.
Ég les yður bréf, sem aldrei var sent:
Þér báðuð mig senda línu. Sjálf heyrði ég
þér skilduð ei hót af því ég sagði, vissuð ei
hvað ég var að fara, skilduð ei orð mín:
MYNDIR SÝNA MANNGERÐ, KARAKTER
HÖFUNDAR LESINN, HÆFNI SÉÐ Á TEIKNI-
MÁTA = Mynd lýsir höfundi sínum:
AÐ LESA í MYND
Grafologian er kunn, tákngreining á sér
ei einu sinni alþjóðlegt nafn (þó hefur verið
talað um, the possibility of constructing a
graphic key to temperaments), en orðið tákn-
lykill er ekki geðfellt, virðist gera mjög dulinn
og óræðan hlut auðleystan, opinn.
Sálfræðingar flokka manngerðir, en hafa
lítt tengt tákn við, þeirra eigin myndblinda
þar valdið? Uppeldisfræðingar hafa ei þátt
teikns tengdan sinni menntun, þar af þeirra
fávit um þessi mál? Heimspekingar hafa ör-
MENNTAMÁL
157