Menntamál - 01.10.1970, Page 15
börn koma ti! teiknikennaranna tíu ára gömul:
10 ÁRA gömul, en eru stödd á 6 ára barna
myndvitsaldri.
Það er rétt það sama, algjör hliðstæða við það, að
börnum væri ekki kenndur lestur fyrr í skólum eða þá
skrift!
Þau koma á 6 ára barna myndvitsaldri: og
auk þess orðin skemmd sem teiknarar, fyrir
utan hvað myndsköpunarhæfnin, myndsköp-
unarþörfin er farin að dvína, aldur undrunar-
innar liðinn hjá.
Það er of seint að kenna þeim annað en lit-
fræði - formfræði - mynztrun - línutakt -
letrun - leirmótun - dúkskurð - efnisföndur -
hlut,,hönnun“ - rúmfræði - o. s. frv.
Sjálf veraldarmyndin þeirra: þjálfunin, sem til þarf í
teiknun, að móta í mynd hug sinn, að ná líkindum raun-
veruleikans, næst ekki þegar svo seint er hafið nám,
nema hjá ca. 5% af nemendum, sem byrja 10 ára
gamlir, nema þá með langtum meiri ílma en teiknun
er ætlað í skólakerfinu, eða með þá framhaldi sérhæfðs
listnáms.
En geilin verður þar alltaf, æfilöng bókstafleg teikni-
pedagógisk geil í myndvitslegan skilning, jafnvel þó um
langlærðustu listamenn sé rætt, jafnvel fædda með og
fædda til hæfni á öllum sjónsviðum lista, þeir hafa samt
gloprað niður eigin grunni, þeir vita ekki íil hvaða mynd-
stíls þeir eru fæddir, þekkja ekki sitt eigið upphaf:
Væri myndlist kennd með sann, ætti að
þróa og þjálfa hvers barns eigin teiknstíl, hvers
barns eigið myndvit, láta þau táknskyldu
vinna saman í hóp enda á að velja inn í skóla-
bekki eftir teiknþroska, en ekki eftir lestrar-
kunnáttu, eins og nú er gert. Á engan hátt
annan er mögulegt að kynnast barni á skömm-
um tíma, en með því að það teiknar myndir
sínar í friði og ró á sinn eigin hátt, og sá sem
til þekkir fær að fylgjast með:
Og með hraði sést, hvort það er hin til-
finningalega afstaða, sem ræður ríkjum eða
hin vitræna hefur yfirhöndina, hvort stærð-
fræðilega hugsandi einstaklingur er að verki,
eða hinn sem flýtur í skipulagsleysinu, hvort
raunsæið má sín meira en hugsæi, hvort
formkenndin er þroskuð, hvort líflína teikn-
ingar er löng og heil eða leitandi varkár,
slitin.
Slíkt má lesa úr mynd. Þó oftar birtist það
í blandi, dulið, falið, geymt, gálaust skyldi
enginn þar um ganga. Langa daga, lengri
nætur hef ég hugsað um þetta. Glímt við
þenna úrlestur mynda þessara barna, sem
enn eru sjálfum sér nóg í myndtúlkun sinni og
einlægni þeirra algjör, á meðan þau reyna
ekki að teikna öðruvísi en aldur og hæfni
gefa tilefni til, á meðan þau reyna ekki að apa
annarra skilning, á meðan ég geng, á meðan
ég gekk á milli þeirra, ár eftir ár. Áratug eftir
áratug. Þá hefur mér opnast sýn hinnar
mannlegu myndleitar frá öndverðu kunnan, og
fullvissan um það, að mitt á meðal okkar eru
allir fulltrúar allra liststíla veraldarsögu,
vegna þess að þeir eiga sína rót í manninum
sjálfum.
NB að viðbættri aftur 4. víddinni: TÍMANUM: eða
ef við mættum kalla hvern tíma og áhrif hvers iíma:
Eilífðina innra með okkur.
Eftirmáli:
I. Ég tek skýrt fram, að þó hér sé stiklað á stóru,
eingöngu lauslýst, án nánari útskýringa, gegnlýsingar,
myndsýna, tveim týpum teikna og þeim tveim stillt upp
sem andstæðum, mætti að sjálfsögðu taka þær and-
stæður, þau dæmi af öðrum ólíkustu myndstílsmátum,
sbr. hvaða andstæðum komplementari — lit, litrófs eða
lithrings, jafnvel að sniðgengnum frumlitum, þessar tvær
andstæður teiknhópa, sem voru tekin sem grunndæmi,
jafngilda t.d. RAUÐU mót BLÁtón nefni það til athugunar,
þar sem nefndir teiknitákn hópar: I. mót 2., velja ein-
mitt nefnda FRUMLITI.
Myndir þær, er fylgja texta, eru barnateikningar 2—6
ára gamalla höfunda í kennsluæfingadeildum teikni-
kennara innan Myndlista- og handíðaskóla íslands.
Stækkað af nemendum skólans á hátlð ÞORRABLÓTS
þar, 30 myndir veggstórar, samkv. stjórn og önnun
ARNAR ÞORSTEINSSONAR.
MENNTAMÁL
161