Menntamál - 01.10.1970, Blaðsíða 38
Revuo um guðfræði, Medicina Internacia Revuo
um læknisfræði, Scienca Revuo um vísindi al-
mennt, Homo kaj Kosmo um náttúruvísindi o. fl.
Sum eru nær einvörðungu helguð fagurbók-
menntum eins og Norcla Prismo, La Suda Stelo,
Hungara Vivo o. fl. Á vegum Alþjóðlega esper-
anto-sambandsins er gefið út lrið merka málvís-
indatímarit La Monda Lingvo-Problemo, þar
sem birtast eingiingu greinar málvísindamanna
á ýmsum þjóðtungum með nákvæmum útdrátt-
um á esperanto. Landsbókasafn íslands heldur
þetta tímarit og geta þeir sem vilja kynnt sér
það þar.
Hér að framan befur ýmislegt verið rakið,
sem ætti að nægja til að sanna að nokkru gengi
esperantos í heimi nútímans. Enn er þó margt
ótalið, sem fyllt gæti þá mynd, svo sem hagnýt
not alþjóðamálsins á ferðalögum, stofnanir, sem
vinna að útbreiðslu málsins, j^ing og ráðstefnur,
þar sem alþjóðamálið er einrátt, notkun þess í
viðskiptum og verzlun, notkun þess í útvarpi,
notkun þess í jaágu mannúðarmála o. s. frv. Ekki
verða Jæssi atriði jró rakin hér nánar sakir rúm-
leysis, en vikið nokkrum orðum að mikilvægum
viðurkenningum, sem alþjóðamálið befur hlotið
á opinberum vettvangi.
21. september 1922 samþykkti Þriðja þing
Þjóðabandalagsins einróma umfangsmikla og
nákvæma skýrslu aðalritara með yfirskriftinni
„Esperanto sem aljrjóðlegt bjálparmál“. Þessari
gagnmerku skýrslu lýkur með Jressum orðum:
„Mál er máttur og hefur Randalagið ríka
ástæðu til að fylgjast vandlega með viðgangi
esperantohreylingarinnar, sem einhvern tíma
gæti leitt til mikilvægs árangurs í jaágu siðrænn-
ar einingar heimsins."
2. ágúst 1950 var afhent við hátíðlega athöfn
á skrifstofu aðalritara Sameinuðu þjóðanna bæn-
arskrá varðandi alþjóðamálið. Bænarskrá jtessa
höíðu undirritað 292 félagasambönd með alls
15 454 780 félagsmönnum auk 895 432 einstakl-
inga í 76 löndum. 8. ágúst s. á. sendi aðalrit-
arinn bænarskrána til aðalstöðva UNESCO í
París til yfirvegunar og umsagnar.
10. desember 1954 samjjykkti allsherjarfundur
UNESCO ályktun, Joar sem viðurkennt er, að sá
árangur, sem Jsegar hafi náðst með aðstoð esper-
antos á aljjjóðlegum vettvangi, sé í fullu sam-
ræmi við markmið og hugsjónir UNESCO, sem
eru: að varðveita friðinn og stuðla að bættum
skilningi milli Jjjóða; að efla menningu og
menntir; að stuðla að því, að þjóðir heimsins
skijjtist á hugmyndum, Jjekkingu og mönnum;
að auka aljjjóðlegt samstarf á sviðum menntun-
ar, vísinda og menningar; að sigrast á þeim eríið-
leikum, sem fjölbreytni tungumálanna veldur;
að vinna að framgangi heimsborgararéttar; að
kynna klassísk og nútímaleg bókmenntaverk með
þýðingum; að stuðla að útbreiðslu vísindalegrar
jækkingar; að samræma sérheitaforða á tækni-
sviðum; að auðvelda frjáls hugmyndaskipti í
ræðu og riti.
Allt frá samjjykkt Jjessarar ályktunar hefur Al-
Jjjóðlega esperanto-sambandið átt ráðgjafaraðild
að UNESCO og veitt Jjeirri stofnun margháttaða
aðstoð.
Á árunum 1965—66 gekkst Aljijóðlega esper-
anto-sambandið fyrir nýrri umfangsmikilli
undirskriftasöfnun, sem beint skyldi til Samein-
uðu þjóðanna. Textinn, sem fylgdi, hljóðaði á
Jjessa leið:
„Vér lýsum yfir stuðningi vorum við starfsemi
Sameinuðu þjóðanna til eflingar í'riði og sam-
starfi milli Jjjóða. Vér lýsum og ylir Jjeirri sann-
færingu vorri, að ein helzta hindrun í vegi vax-
andi aljjjóðlegra samskipta sé málaglundroðinn.
Með tilvísun til samþykktar allsherjarþings UN-
ESCO frá 10. desember 1954, Jjar sem viður-
kenndur er sá árangur, sem Jjá þegar hafði náðst
á sviði alþjóðasamskipta með fulltingi esper-
antos, leggjum vér til, að Sameinuðu Jjjóðirnar
leysi fjöltungnavandamálið með Jjví að stuðla
að framgangi alþjóðamálsins esjjerantos og mæli
með Jjví við Jjátttökuríkin, að þau efli kennslu
í málinu og hvetji til notkunar Jjess í samskipt-
um milli Jjjóða heims.“
Yfirlýsingu Jjessa og tillögu undirrituðu 3 843
félagasamtök (Jjar á meðal AlJjýðusamband ís-
lands) með alls 71 165 000 félagsmönnum auk
920 954 einstaklinga. Meðal Jjeirra voru forseti
Austurríkis (Eranz Jonas), forsætisráðherrar
Danmerkur, Noregs og íslands (Bjarni Bene-
MENNTAMÁL
184