Vorið - 01.03.1963, Side 20

Vorið - 01.03.1963, Side 20
fólkinu brygði ekki í brún, þegar hann kæmi með hópinn trítlandi á eftir sér. Nú byrjaði hann að hnupla einu og einu eggi og fela þau. Það voru ýmist gæsaregg eða hænuegg, og þannig hélt hann áfram að safna þangað til hann þóttist hafa nægilega mörg. Þá var það einn dag, að Thomas Alva Edison týndist. Það leið löng stund, þangað til foreldrar hans tóku eftir því, að hann var horfinn. En þá fóru þau að kalla á hann. Og þau fóru út í bæinn að leita að honum. Þau spurðu alla, sem þau hittu, hvort þeir hefðu séð hann ný- lega. — Nei. Nú urðu þau hrædd. Þá var það, að einhver af leitarmönnunum þóttist heyra hóstakjölt inni í fjósinu. Hann fór inn. Þar í innsta básnum lá Alva — solt- inn, en þolinmóður — hann lá á eggjum. Þar með var þeirri tilraun lokið. Móðir hans tók eggin. Drengurinn fékk að borða og var háttaður niður í rúm. En fullorðna fólkið veltist um af hlátri. Fimm ára gamall hugvitsmaöur á ekki alltaf sjö dagana sæla, þegar hann er líka alll of höfuðstór í ofanálag. Hlát- ur, háðglósur, flengingar, og óvæntar árásir eru daglegt brauð. Uti í garðinum hafði Alva fundið dá- litla holu, þar sem hunangsflugur fóru ýmist út eða inn. Hann náði sér í prik og fór að grafa. Það var auðvitað, að þær áttu bú sitt þarna inni, og nú lang- aði hann svo mikið til að sjá, hvernig umhorfs væri hjá þeim. Hann heyrði suðuna í þeim inni í þúf- unni. Hann beygði sig niður og hamað- ist að grafa. Þá gægðist ófrýnilegur karl út úr runna skammt fyrir aftan hann. Það var geithafurinn þeirra, og hann var mann- ýgur. „Þetta ber vel í veiði,“ hugsaði haf- urinn og brosti í kampinn. Síðan tók hann undir sig stökk. En Alva lá fyrir utan girðinguna, þegar hann rankaði við sér. Hann verkjaði á vissan stað. Það kom margt fyrir Alva, á meöan hann var lítill drengur í Milan. En það sorglegasta var það, sem gerðist eitt sumarkvöld. Hann var með litlum leikbróður sín- um niður við fljótiö. Þeir ætluðu að vaða út í og baða sig. Þeir fóru úr föt- unum og óðu út í, fleyttu smáspýtum og léku sér glaöir og ánægðir. Alva sagði eitthvað við drenginn, sem var fyrir aftan hann, en drengurinn svaraði ekki. Þá leit Alva við. Drengurinn var horfinn. Það var djúpur hylur rétt fyrir neðan Alva kallaði og hrópaði, en enginn anzaði. Þetta var undarlegt. Honum fannst það hrekkur af drengnum að laumast svona burtu án þess að láta vita. Hann óð í land, klæddi sig, kallaði öðru hvoru og settist svo niður að bíða. Það byrjaöi að skyggja. Alva stóð upp. Enn kaliaði hann. En allt var hljótt. Þá labbaði hann heim — lítill og ein- mana. Seinna um kvöldið komu foreldrar hins drengsins að spyrja um hann. Þau höfðu verið að leita að honum og voru 16 VORIÐ

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.