Vorið - 01.03.1963, Blaðsíða 32

Vorið - 01.03.1963, Blaðsíða 32
— ÞaÖ liggur líka mikil gæfa fyrir því, segir kerling. — Líklegt er að svo sé, ségir komu- maður. — En lítið munt þú um það vita, hver framtíð bíður þess. — Veit ég víst, segir kerling. — Stjörnuspekingur kóngsins kom hér í fyrra. Hann sagðist hafa séð fæðingar- stjörnu þess og sagði mér allt um fram- tíð þess, en ég má engum segja það, og segi það ekki nokkrum lifandi manni, því það sagði stjörnuspekingurinn, að gæti valdið hinni mestu óhamingju, og jafnvel varðað líf barnsins og velferð þess. — Óhætt er þér að segja mér, segir komumaður, — því ég skal engum segja og þó auk þess að lofa því hátíðlega, skal ég gefa þér þessa 10 gullpeninga. Um leið tók hann 10 gullpeninga og rétti að kerlingu. Kerling átti nú í hörðu stríði við sjálfa sig. Hún þóttist vita, að hún ætti hér tal við eitthvert stórmenni. Þótti að vísu gullið gott, en þó hitt enn betra, að láta slíkan höfðingja vita, hver upphefð biði sonar síns. Urðu hér á þau endalok, að hún kunn- gerði komumanni allt, sem stjörnuspek- ingurinn hafði sagt henni, og lagði um leið ríkt á við hann að gæta vel þagnar- innar. Komumaður hlýddi á frásögn hennar án þess að taka fram í, og stóð enn hljóður um stund. Loks mælti hann á þessa leið: — Víst máttu því treysta, að enginn skal af mér frétta það, sem þú nú hefur mér kunngjört. Eigi að síður skal sú spásögn stjörnuspekingsins rætast, að af lausmælgi þinni skal það hljótast, að hrynja skulu skýjaborgir þær, sem þú hefur byggt á orðum hans um framtíð sonar þíns. Hamingjustjarna stjörnu- spekingsins skal og skyndilega til viðar ganga. Því vita skaltu, að ég er konung- ur ríkisins, á eina dóttur, og skal hennar hlutskipti verða annað en að eignast einn kotungsson. Að svo mæltu þreif kóngur sveininn, stökk á bak hesti sínum og þeysti brott sem hraðast, þó eigi til manna sinna, heldur tók aðra stefnu og hvarf brátt í skóginn, en kerling sat eftir æpandi og skælandi. Þegar bóndi hennar kom heim og heyrði tíðindin, brá honum mjög, sem vonlegt var, en þótti þetta þó hafa farið mjög að líkindum. Þekkti hann svo lausmælgi og hégómagirni konu sinnar, að honum kom eigi á óvart, þótt hún hefði lekið leyndarmálinu, þegar glæsi- menni bar að garði, að honum fjarver- andi. Víkur nú sögunni frá þeim um stund, þar sem þau sitja með sorg sína. Ríki það, sem þessi saga gerðist í, var bæði víðlent og voldugt. Fyrir því réð einn konungur. Ekki átti hann barna utan eina dóttur. Hún var 12 ára um þessar mundir. Kóngur unni henni mjög, enda var hún afbragð annarra kvenna, eftir því sem þroski hennar stóð til, að fegurð og lærdómi til munns og handa. Þegar hún var 10 ára, lét kóngur byggja handa henni skemmu mikla og skraut- lega nálægt liöll sinni, og fékk til göfugra manna dætur að þjóna henni, en stjörnu- spekingur hans var aðalkennari hennar í bóklegum fræðum. Nam hún af hon- um stj örnuspeki, auk annarra vísinda og lista. Umhverfis skemmu kóngsdóttur var 28 VORIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.