Vorið - 01.03.1963, Blaðsíða 38

Vorið - 01.03.1963, Blaðsíða 38
honum frá því, að hún hefði heyrt um stöðu fyrir röskan dreng, en starfið var í því fólgið að leiðbeina ferðamönnum. Þessi frétt hafði svo mikil áhrif á hann, að hann gleymdi ibisfuglunum sínum í bili. Næsta morgun gekk hann beina leið á fund mannsins, sem auglýst hafði þesa stöðu til umsóknar, og vegna þess að Elim var svo skýr drengur fékk hann þegar stöðuna. „Nú fer ég að vinna fyrir peningum, mamma,“ sagði hann glaður og þá get ég farið að leggja eitthvað til heimilis- ins.“ Mamma hans var líka glöð. í fyrstu fékk hann enga peninga á meðan hann var að læra að skilja málið, sem ferða- fólkið talaði, en eftir eitt ár var hann orðinn einhver bezti leiðsögumaður, sem völ var á. En þá kom nokkuð voðalegt fyrir. Kvöld eitt á meðan þau voru að borða kvöldverðinn sinn, var huröinni hrundið upp og inn komu tveir lögregluþj ónar. Þeir skipuðu Elim að koma með sér niður á lögreglustöð. „En hvers vegna?“ spurði Elim. Það vildu þeir ekki segja og Elim varð að fara með þeim. Hann fullvissaði móður sína um, að hann hefði ekkert illt gert og svo fylgdi hann lögreglumönnunum á stöðina. Þar fékk hann að vita, að hann væri ákærður fyrir að hafa stolið armbandi frá auðugri amerískri konu, sem hann hafði fylgt þennan sama dag. „Ég hef ekki tekið neitt armband,“ sagði Elim rólega. En með því að hann hafði verið sá eini, sem var með þessari amerísku konu þennan dag, og hún full- yrti að armbandði væri horfið, sem hún hafði þó horft á um morguninn, þá bárust böndin að Elim og honum var varpað í fangelsi þar til dómur félli í málinu. Daginn eftir voru menn sendir heim til Elims til að leita í húsinu, en þar fannst auövitað ekkert. Seinni hluta sama dags var fariö með Elim til þess staðar, þar sem hann hafði veriö með amerísku konunni. Hann svar- aði skýrt og skilmerkilega öllum spurn- ingum dómarans. En á meðan þeir voru niður við ána ásamt öllum lögreglu- mönnunum, sáu þeir hóp ibisfugla koma fljúgandi. Það heyröist þytur i loftinu frá stóru vængjunum þeirra, og þegar hópurinn kom nær sáu menn, að þetta var heil fjölskylda: — Pabbinn — mamman og allir ungarnir. Hópurinn kom nær og nær, og nú fór Elim að átta sig. Nú þekkti hann aftur báða ibisfuglana, sem hann hafði hjúkr- að í fyrra. Elim kallaði til þeirra, og þá brá svo við, að báðir stóru fuglarnir komu og settust á axlir hans, en ungarnir flögr- uðu í kringum hann. Elim varð ákaflega glaður að hitta þessa vini sína aftur. En dómararnir og allir lögregluþjónarnir hrópuðu: „Sjá, hinir heilögu fuglar setjast á axlir hans. Það hlýtur að vera tákn þess, að hann segir satt og er saklaus. Annars hefði þetta ekki gerzt.“ Og þeir trúðu þessu svo fastlega, að þeir létu Elim lausan þegar í stað. En á meðan Elim fagnaði hinum fjaður- klæddu vinum sínum, kom hraðboði með bréf til dómarans. Það var frá amerísku 34 VORIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.