Vorið - 01.03.1963, Page 33

Vorið - 01.03.1963, Page 33
aldingarður rammlega girtur með háum múr á allar hliðar. Garðshliðsins gættu 12 vopnaðir hermenn. Máttu þeir engum hleypa þar inn eða út nema kóngi og dóttur hans, ásamt föruneyti þeirra. Innan við garðshliðið óx eik ein mikil. Bar hún af öllum trjám í garðinum sakir vaxtar og fegurðar. Svo bar við á einu góðviðriskvöldi, þegar allir voru komnir til náða og girð- ingunni lokað, að kóngsdóttur er varnað svefns. Hún reis því upp og vakti þá af meyjum sínum, sem hún unni mest og trúði bezt, og bað hana að ganga með sér úti í næturkyrrðinni. Gengu þær svo út og reikuðu um stund um garðinn unz þær settust undir eikina miklu. Heyrðu þær þá barnsgrát í grennd við sig. Spruttu bær skjótt upp og leituðu allt í kring, en fundu ekkert. Urðu þær þess loks vísari, að gráturinn kom ofan úr greinum trésins. Skemmumevjan gaf það ráð að gera aðvart varðmönnunum og hiðja há að biarga barni þessu. — Eigi vil ég það, segir kóngsdóttir. — Því enginn hefur getað komið þangað harninu, án minnar vitundar, annar en faðir minn, og mun það vera ætlun hans að fvrirfara því. Væri það því engin hjörg barninu. að því yrði svo náð úr trénu, að hann verði þess vísari, því að hann mun þá sjá annað ráð til að granda því.' Verðum við því einar að vinna að því að ná því niður. Sóttu þær svo eftir ráði kongsdóttur, þann lengsta stiga skemmunnar, sem þær máttu valda, og reistu hann upp við trjá- stofninn. Gekk kóngsdóttir svo upp stig- ann, en er hann þraut, náði hún svo góðri handfestu á hinum neðstu greinum trésins, að hún gat klifrað áfram grein af grein unz hún náði krónu þess. Þar fann hún sveinbarn, er hún hugði vera átta vetra, rammlega fjötrað, svo það mátti hvorki hræra legg né lið. Var ber- sýnilega svo til ætlazt, að drengurinn án nokkurrar varnar, yrði ránfuglum að bráð. Kóngsdóttir leysti hann í skyndi og lét hann til jarðar síga í voð, sem hún hafði meðsérhaft, en skemmumeyjan tók á móti er niður kom. Kleif kóngsdóttir svo niður sömu leið og hún hafði upp stigið og komst vandaræðalaust til jarð- ar. Að svo búnu fella þær stigann og flytja á þann stað, sem þær höfðu tekið hann, svo að engin verksummerki skyldu sjást morguninn eftir, en sveininn bera þær í afskekkt herbergi á efsta lofti skemmunnar og veita honum þá þjón- ustu, sem honum bezt hentaði. Hugsar nú kóngsdóttir sitt ráð, hvernig með skuli fara, svo að kóngurinn faðir henn- ar fái engan grun um björgun sveinsins. En er hún hafði það með sér fest, segir hún skemmumeyjunni alla sína ráða- gerð, leggur ríkt á við hana að vera sér nú trúa, en hótar að reka hana frá sér með háðung, ef nokkuð yrði uppvíst af hennar völdum. Skemmumeyjan, sem unni mjög húsmóður sinni, lofaði öllu fögru og efndi það vel. (Framhald). VORIÐ 29

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.