Vorið - 01.03.1963, Side 37

Vorið - 01.03.1963, Side 37
DÓMUR HINNA HEILÖGU IBISFUGLA í fátæklegum kofa á Nílarbökkum bjó kona ein ásamt syni sínum Elim, en hún var ekkja. Þau voru vel séð af öllum nágrönnum sínum því að þau voru bæði heiðvirð og góð. Á hverjum degi gekk móðir Elims um meðal nágrannanna og þvoði fyrir þá, og þegar hún kom heim á kvöldin þreytt og svöng, hafði Elim tekið til í litla kofanum þeirra, svo að þar var allt sópað og hreint. — Þú ert góður sonur, Elim, — sagði móðir hans og strauk svarta hárið hans. „Bíddu bara þangað til ég verð stór,“ sagði Elim með tindrandi augum. „Þá skal ég safna mér svo miklum pening- um, að ég geti gefið þér rauðan kjól eins og nágrannakonan á.“ Þá brosti ekkjan, og á meðan þau borðuðu matinn sinn hugaði Elim jafn- framt að öllum dýrunum, sem hann hafði safnað að sér. Elim mátti ekki til þess hugsa, að nokkru dýri liði illa. Hann reyndi þá alltaf að hjálpa þeim eftir mætti og stundum hafði hann mörg dýr í einu inni í kofanum hjá sér, sem hann var að reyna að lækna, eða hjálpa á annan hátt. Hann gætti þeirra vel og talaði við þau og dýrin hændust svo að honum, að þau vildu ekki fara, þótt þau væru orðin heilbrigð. Dag einn, þegar ekkjan kom heim, sá hún, að Elim var að gefa tveimur ungum ibisfuglum að borða. „En — Elim. — Hvaðan hefur þú fengið þessa fugla?“ spurði hún undr- andi, því að í Egyptalandi eru ibisfugl- ár taldir heilagir, óg það var talið heilla- merki að hafa þá í húsum sínum. „Þeir hafa hlotið að fljúga á eitt- hvað,“ svaraði Elim. „Ég fann þá báða hérna niður við ána. Vængirnir höfðu farið úr liði. En ég held, að ég sé búinn að koma því í lag.“ Það reyndist rétt, því að eftir liálfan mánuð voru fuglarnir orðnir heilbrigðir, en nú voru þeir orðnir svo spakir að þeir eltu Elim, hvert, sem hann fór. En dag einn, þegar hann hafði tekið þá með sér niður að ánni, hófu þeir sig til flugs og svifu hátt í loft upp. Elim horfði á eftir þeim ánægður. Það gladdi hann, að þeir gátu nú aftur flogið, en þá kom honum það í hug, að þeir myndu ekki koma aftur og það hryggði hann nokkuð. Hann kallaði á þá með nöfnum, sem hann hafði gefið þeim á meðan þeir voru sjúkir og þeir komu aftur niður til hans, en brátt flugu þeir af stað og nú flugu þeir langt, langt burtu — alla leið suður til píramídanna miklu. Þá skildist Elim, að þeir myndu aldrei koma aftur og hann gekk einn heim. Þetta sama kvöld skýrði móðir hans VORIÐ 33

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.