Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.06.1996, Side 14

Bjarmi - 01.06.1996, Side 14
MAÍ 1962 VIÐTAL Feður okkar í trúnni mörkuðu brautina Viðtal við Aðalstein Thorarensen „Það er von mín að í starfi KFUM og KFUK verði nú sem fyrr lögð áhersla á sömu meginatriðin og andlegir feður okkar héldu á loft og félögin voru þekkt fyrir, þ.e. á fastheldni við Biblíuna, á boðunina og bænina og að heilagur andi opni orðið fyrir okkur svo að við megum tileinka okkur það. Söngvar séra Friðriks Friðrikssonar og aðrir söngvar, sem við höfum lært i félögunum og syngjum við raust, eru þrungnir boðskap. í þeim er lofgjörð, tilbeiðsla og préd- ikun. Ég hef líka gleði af því að syngja nýja söngva. En við eigum svo mikinn fjársjóð í gömlu söngvunum, þar er kjarnmikil boðun. Við megum því ekki missa þá. Og fátt þjappar okkur eins vel saman og kraftmikill, kristilegur söngur. Þarna hljótum við því að reyna að finna gott Á fyrstu kennsluárum jafnvægi.“ Aöalsteins, 1962. Tíðindamaður Bjarma brá sér út á Seltjarnarnes í veður- blíðunni 1. maí í vor og sat góða stund í stofunni á einkar snyrtilegu heimili Aðalsteins Thorarensen húsgagnasmiðs, kennara og KFUM-manns. Aðalsteinn lætur sér annt um velferð og viðgang KFUM og KFUK og hefur lagt gjörva hönd á marga þætti í starfi félaganna í 40-50 ár. Sæti hans er sjaldan autt á samkomum félaganna og nú síðari árin hefur hann mjög komið við sögu í aðaldeild KFUM. Með orðum sínum hér í upphafi lýsir Aðalsteinn skoð- un sinni á gildi þess sem brautryðjendurnir innrættu ung- um mönnum á æskuárum hans og á þeim söngvasjóði sem félagsfólkið hefur notið frá upphafi vega. Óhress mjólkurpóstur Við forvitnumst um uppruna Aðalsteins. „Faðir minn var Jón Thorarensen, síðar prestur og rit- höfundur. Ég fæddist á horni Lauga- vegar og Snorrabrautar í Reykjavík. Móðir mín, Vilhelmína Tómasdóttir, var einstæð og útivinnandi og hún kom mér kornungum 1 fóstur hjá Lilju Jónasardóttur systur sinni og manni hennar, Kristjáni Guðmunds- syni. Þau Lilja og Kristján reyndust mér eins og bestu foreldrar og jafnvel betri því að þau dekruðu við mig. Það var mikil gæfa að fá að alast upp hjá þeim. Ég kallaði þau alltaf mömmu og pabba. Dætur þeirra, Katrín og Kristín, urðu mínar góðu systur. Kristján var sjómaður á togara svo árum skipti en gerðist síðan bóndi á Hvítanesi í Hvalfirði og seinna í Blönduholti í sömu sveit. Um 1941 14

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.