Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1996, Blaðsíða 27

Bjarmi - 01.06.1996, Blaðsíða 27
INNLIT þegar hefur komið út til kynningar. Pað sem helst hefur verið fundið að er að ekki skuli haldið orðmyndum eins og vér, þér, oss o.s.frv. Þótt þeim hafi verið sleppt í kynningar- texta hefur engin endanleg ákvörðun verið tekin. íslenskufræðingar og allmargir prestar vilja halda í hefðina, aðrir vilja færa þetta í átt til þess sem tíðkast almennt nú til dags. Æskilegt væri að heyra frá hinum almenna biblíulesanda um þetta atriði. - Ýmsir ritningarstaðir og kaflar eru fólki kærir og það kann þá jafnvel utan að. Eru sum ritningarvers og jafnvel heil rit Biblíunnar ekki viðkvæmari en önnur þegar á að þýða þau upp á nýtt? - Tvímælalaust. í Gamla testamentinu á þetta t.d. við um Jesajabókina og Sálmana og í Nýja testamentinu gildir þetta um guðspjöllin og mörg bréfa Páls. - Hvenær er áætlað að ný, íslensk Biblía liti dagsins ljós? - Við stefnum að því að þýðingunni verði lokið um alda- mót. Hvort tekst að ljúka útgáfu fyrir þann tíma er háð mannafla og fjármunum sem ekki liggja á lausu. - Víkjum nú að sölu og lestri Biblíunnar. Hvað selst Biblían í mörgum eintökum á ári að jafnaði? - Hún selst í um það bil 2000 eintökum og auk þess dreifa Gídeonfélagar 5-7 þúsund Nýja testamentum árlega. - Svo virðist sem Biblían sé til á flestum heimilum 1 land- inu. Telurðu að fólk lesi í öllum þessum Biblíum? - Nei, því miður. Hins vegar er vaxandi eftirspurn eftir Biblíulestrarskrá Biblíufélagsins sem gefin er út í um 8000 eintökum árlega. - Hver eru önnur áform Biblíufélagsins fyrir utan nýju þýðinguna? Hefur það eitthvað á prjónunum til að auka Biblíulestur og gera Biblíuna aðgengilegri fyrir fólk? Hvað um útgáfu á lestrarleiðbeiningum eða skýringaritum? Vinnur félagið að því að kynna Biblíuna fyrir almenningi? - Orka og fjármunir fara að mestu í þýðingarstörfin. Hjá félaginu er ég i fullu starfi og skrifstofu- og afgreiðslu- maður i hálfu starfi þannig að okkur eru takmörk sett. Þó tel ég brýnt að gera áætlun um átak til kynningar og að- stoðar við Biblíulestur i tengslum við nýju útgáfuna. Jafnframt þarf að kynna félagið betur og gerðum við til- raun með myndarlega farandsýningu til kynningar á Bibli- unni og starfi Biblíufélagsins á síðasta ári í tengslum við 180 ára afmælið. Þessi sýning er enn á ferðinni. - Biblían er nú fáanleg í tölvutæku formi. Hafa margir nýtt sér þann möguleika? - Ekki mjög margir en eftirspurn fer vaxandi. Nú er verið að vinna að endurbótum á forritinu fyrir PC tölvur, sem kom út í fyrra, og einnig hillir undir það að hægt verði að fá Biblíuna ásamt leitarforriti fyrir Macintosh tölvur. - Er liklegt að i framtiðinni fáist Biblían í einhvers konar „margmiðlunarútgáfu'1, þ.e. með fjölbreyttu skýringa- og alfræðiefni á tölvudiskum? Sr. Sigurður Pálsson, - Slíkt er þegar fáanlegt erlendiS. Markaðurinn hér er framkvæmdastjóri svo lítill að ég tel hæpið að íslenska Biblían verði verði sett Biblfufélagsins. á slíkt form á næstunni. En tækninni fleygir fram og verð- ur jafnframt ódýrari svo hver veit hvað gerist um aldamót? - Hvert er gildi og áreiðanleiki Biblíunnar að þínu mati? Á hún eitthvert erindi við nútímafólk? - Þetta er bæði fræðileg og trúarleg spuming. Trúi ég því að Biblían sé Guðs orð þá á hún erindi við nútímafólk eins og fólk á öllum tímum. Nútímafólk er ekki sérstök tegund fólks, það býr aðeins við aðrar aðstæður en fólk fyrr á öldum. Trúarvitnisburður Bibliunnar er því bæði tímabær og áreiðanlegur. Fræðilega séð er einnig áreiðan- legt að textum þessara fornu rita hefur verið komið betur til skila allt til þessa dags en textum nokkurra annarra fomra rita þar sem hann hefur fengið vandaðri og gagn- rýnni umfjöllun en aðrir fornir textar. Sögulega er Biblían einnig áreiðanleg að því marki sem hún sjálf leggur áherslu á söguna og það gerir hún vissulega þótt hún flytji okkur ekki sagnfræði í nútímaskilningi þess orðs. - Hvaða gildi hefur Biblfan fyrir þig? - „Hún boðar mér það liknarráð, að sjálfur Guð að sér oss tók, hin seku böm með föðumáð." Og svo fær maður allt hitt í kaupbæti, spekina, söguna, mannþekkinguna o.s.frv. Þar með kveðjum við sr. Sigurð Pálsson í turni Hallgrímskirkju og óskum honum alls góðs í mikilvægu starfi. GJ.G.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.