Bjarmi - 01.06.1996, Side 29
MENNING OG LISTIR
Kristi af miklum krafti. Þegar þeir koma fram á sviði deila
þeir reynslu sinni með öðrum ungmennum, og þó svo að
þeir hafi ekki svör við öllu benda þeir á þann sem svörin
hefur Jesú Krist.
Aðalmarkmið þeirra er að boða fagnaðarerindið en
ásamt því fjalla þeir mikið um kynþáttafordóma. hað eitt
að vera saman á sviði segir mikið því að hljómsveitar-
meðlimir eru ekki allir af sama kynstofni. Á nýjasta diski
sveitarinnar er lag sem er samið af Toby McKeehan og
nefnist Colored People og fjallar það um fegurðina í
mismunandi kynþáttum og að við eigum ekki að láta
hörundslit aðskilja okkur heldur eigum við að líta á hvert
annað með augum Guðs. Toby er greinilega maður orða
sinna því nýverið kvæntist hann stúlku sem heitir
Amanda og rekur hún uppruna sinn til Jamaica.
Trúboð
Það var mikil viðurkenning fyrir DC TALK þegar Billy
Graham fékk þá til að starfa með sér og sínum liðsmönn-
um. Graham gerði sér grein fyrir því að þeirra kynslóð
verður fyrir miklum áhrifum af tónlist og
einnig að DC TALK boðar trúna
hreint og ómengað. Billy
lítur á hljómsveitina
sem túlk þar sem
þeir tala mál
unga fólksins.
Hingað til hefur
starf þeirra
einungis verið
innan Norður-
Ameríku en
það mun líkleg-
ast ná lengra í
framtíðinni.
Eitt nýjasta
trúboðstæki félaganna i DC TALK eru kvikmyndir. Það
stóð aldrei til að gera kvikmynd en þegar þeir áttu í
miklum viðræðum með myndband, sem þeir voru að gera
bentu viðstaddir á að þeir væru að tala um kvikmynd en
ekki tónlistarmyndband og var það látið standa. Myndin
ber sama titil og geisladiskur þeirra sem kom út árið
1992, Free At Last og hún fjallar um þá sjálfa í stórri
hljómleikaferð og inniheldur ýmis_tónleikaatriði. Þegar
þeir ferðast saman gengur á ýmsu, eins og eðlilegt er, og
þeir eiga slæmar stundir sem góðar og myndavélamar létu
ekkert fram hjá sér fara.
DC TALK er mikið á ferðalagi og vert er að geta þess að
von er á þeim félögum til Evrópu. Þeir verða aðalnúmer
Alliance tónlistarhátíðarinnar sem haldin verður í
Manchester þann 13. október n.k. Þar verða þeir ásamt
Newsboys og World Wide Message TribeU
Að lokum
Þessari stuttu umfjöllun vil ég ljúka með orðum Tobys
McKeehan: „Við höfum án efa vaxið og þroskast
sem tónlistarmenn, en ástæða tilveru okkar er
sú sama: Að boða villuráfandi kynslóð
fagnaðarerindið með tónlist - ekki skella okkar
viðhorfum framan í fólk heldur deila trú okkar
með þeim vegna þess að hún hefur alltaf veitt
okkur styrk í lífi okkar. Okkar markmið hefur
verið að skapa list sem getur leitt fólk til
Guðs. Við erum fylgismenn Krists og það
mun alltaf koma fram í tónlistinni okkar.”
(Cross Rhythms, Issue 31).
Hrönn Svansdóttir
u*9áfulisti
DC TALK, Forefront 1989
NU THANG, Forefront 1990
• ™™«0,Z,mí
• RAP, ROCK & SOUL (video)
Porefront 1991. ’
' FREEaÍia!!' Fore,ront' 1992.
EE AT LAST Extended Plav
M/iDDXeS Fore,font 1994
NARROWIS THE ROAD (video)
Forefront, 1994
JNEWAY.TheSongsOfLarrv
No^anfSafmtiskurj.Forefront,
JESUS FREAK (AVCD EPI
Forefront, 1995.
JESUS FREAK, Forefront. 1995
DC TALK - verkfæri Guðs
Umsjónarmaður lista- og menningardálks Bjarma hefur lítið kynnt sér DC
TALK en vissi af tveimur systrum sem þekktu betur til. Þær heita Heiðrún og
Ólöf Inger Kjartansdætur og þær voru svo vinsamlegar að segja frá þeim
kynnum.
Systurnar hafa hlustað mikið á sveitina og þá sérstaklega á diskana Free At
Last og Jesus Freak. Þær eru sammála um að diskamir séu báðir ýkt góðir.
Innihald textanna er gott og það er góður vitnisburður sem kemur fram í
söngvunum. Fjölbreytnin í tónlistinni er gifurleg og útsetningar skemmtilegar.
Þeir em trúir fagnaðarerindinu. Eitt sinn vildi útgefandi gera samning við þá
með þvl skilyrði einu að þeir nefndu ekki nafn Guðs eða Jesú í þvi efni sem
yrði gefið út.. Þeir ■ .
neituðu því og voru 1 ' | |
tilbúnir að rifta
samningnum. Að lok-
um var ákveðið að gefa
út efni með þeim og
leyfa þeim að ráða inni-
haldi textanna, og nú
eru þeir nokkuð frægir
og boðskapurinn hefur náð til margra.
Systurnar em ekki í vafa um að þeir séu verkfæri Guðs og hafi náðargáfu til
starfa sinna. Að lokum vilja þær hvetja alla til að kaupa sér disk með DC TALK
og kynna sér þann boðskap sem þar er fluttur.
Systurnar Heiðrún og Ólöf Inger.
Sérverslun með
kristilega tónlist l/erslunin IKTVf7
og bækur Halun2 105 ReyVjav* 1 vrm 25155 | TW I