Bjarmi - 01.11.1996, Blaðsíða 5
[ BRENNIDEPLI
minnsta skeyta því við, og tala því um dagskrá sína sem
menningar- og afþreyingarefni. Vissulega er hér um
„menningar“efni að ræða, ef eitthvað er að marka Orða-
bók Menningarsjóð sem skilgreinir menningu þannig, á
sinn víða hátt:
menning, -ar, -ar kv. 1. proski mannlegra (andlegra)
eiginleika mannsins, það sem greinir hannjrá dýrum.
Öll dýrin í skóginum eiga að
vera vinir
í framhaldi af þessu er þvi óhætt að spyrja: Hvað greinir
okkur mennina svo frá blessuðum málleysingjunum? Því
er auðsvarað. Við mennirnir eigum okkur tungumál, við
höfum verksvit, heilbrigða skynsemi og siðferði svo eitt-
hvað sé nefnt. Viti menn, við erum líka einu skepnurnar
sem þurfum að sækja okkur afþreyingu. Öll þessi atriði
greina okkur frá dýrunum. En þetta um siðferðið langar
mig að ræða örlítið nánar 1 þessu samhengi.
Á grundvelli siðferðisins getum við öll verið sammála
um að sálartetrinu er ekki sérlega hollt að horfa i miklu
magni á grófar ofbeldismyndir. Flestum okkar þykir því
miður hve grófum ofbeldisverkum og jafnvel morðum
hefur fjölgað inni á heimilum okkar, það er í sjónvarpinu.
Okkur þykir skömminni skárra að slíkar myndir séu
sýndar seint á kvöldin en nú er það svo að morð eru ekki
lengur myrkraverk, í það minnsta ekki á skjánum. Þau er
hægt að nálgast í nokkru úrvali um hábjartan dag. Til lítils
er að eyða orðum í slíkt. Við erum hjartanlega sammála
um að morð eru versta mál og slæmt fyrir börnin að alast
upp við að horfa upp á allt þetta ofbeldi. Fussum svei,
ekki gott!
...eitthvað loðið og teygjanlegt
En við erum ekki aðeins sammála um að láta morð og
ofbeldi á öldum ljósvakans fara í pirrurnar á okkur. Klám
er einnig nokkuð sem flest okkar telja ekkert erindi eiga í
almenna sjónvarpsdagskrá. En hvað er klám?
Ef við höldum okkur við fyrrnefnda orðabók, þá skil-
greinir hún klám sem gróft orð, klúryrði, tengt kynferðis-
málum. Sú skilgreining nægir ekki þegar rætt er um kiám
á öldum ljósvakans. Ef við höfum orðið klúryrði til hlið- V
sjónar, þá liggur í augum uppi að myndræn afbökun á
kynlífi hlýtur einnig að teljast klám.
Fyrir nokkrum árum ætlaði allt um koll að keyra þegar
Stöð 2 sýndi djarfar, danskar kvikmyndir sem kenndar
Okkur þykir sfeömininni skárra að slíkar
myndir séu sýndar seint á kvöldin en nú er
það svo að morð eru ekki lengur myrkraverk,
í það minnsta ekki á skjánum. Hu er tegt að
nálgast i nokkru úrvali um hábjartan dag.