Bjarmi - 01.02.1997, Síða 5
setur maöur ekki
á veitingastaö
ekki staðgengill Krists af því að hann fylgir Kristi og þvi er
nauðsynlegt að draga úr þessum væntingum með því að beina
sjónum okkar að því sem embættið á að standa fyrir sam-
kvæmt ritningunni og útleggingu hennar í játningum okkar
evangelísk-lúthersku kirkju (CA 5, 14 og 28). Þá kemur í ljós
að biskupsembættið er í eðli sínu hið sama og prestsembættið
og hefur það að inntaki að prédika fagnaðarerindið og úthluta
sakramentunum. Eitt meginverkefni siðbótarinnar á sínum
tíma var að gera skýran greinarmun á þessu hlutverki og öllu
veraldarvafstrinu sem einkennt hafði biskupa þess tíma (CA
28). í ljósi þess væri rétt að binda biskupsstarf fremur beint
við boðun og eftirlit (vísitasíur) og ítreka það að biskupinn er
tilsjónarmaður sem hefur það verkefni að tryggja að innan
kirkjunnar sé orðið rétt boðað og sakramentunum veitt rétt
þjónusta (sbr. CA 5 og 14). Það er þvi hrapallegur misskilning-
ur að álíta að við getum búið til biskupsembætti eftir vilja
okkar og þörfum. Biskupsembætti setur maður ekki saman
eins og matseðil á veitingastað þótt sumir vilji álíta það.
Andspænis örum vexti kirkjunnar sem stofnunar
má spyija hvort ekki megi fela öðrum sum þeirra
verkefna sem alltaf eru tengd biskupi, t.d. dag-
legan rekstur, stjómun o.s.frv. Slík verkaskipting og
valddreiflng samræmist nútíma þjóðfélagsgerð og evangelísk-
lútherskri trú þar sem gengið er út frá fjölbreytileika í
stjórnarháttum og ytra fyrirkomulagi kirkjunnar. í lokin er
rétt að geta þess að innan guðfræðilegrar umræðu í dag em
menn orðnir sér mjög meðvitaðir um að kenning kirkjunnar
verður að hljóma skýrt í nútíma samfélagi til að geta virkað og
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson er héraðsprestur
í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
verið raunveruleg hjálp fyrir menn. Undanfarin ár hafa og
næstu ár munu byggingar- og skipulagsmál vera komin
tiltölulega vel í réttan farveg. Verkefni kristinna manna er
ætíð hið sama: Að koma inntaki fagnaðarerindisins um Krist
skýrt á framfæri í orði og verki. Það getur hún einungis gert í
gegnum samræðu við samtímann, samræðu sem biskup
íslands á að hvetja til og styðja.
(CA = Confessio Augustana = Agsborgarjátning)
Andspænis örum vexti kirkjunnar sem stofnunar má spyrja hvort ekki megi
fela ödrum sum peirra verkefna sem alltaferu tengd biskupi, t.d. daglegan
rekstur, stjórnun o.s.frv. Slík verkaskipting og valddreifing samræmist nútíma
þjóðfélagsgerð og evangelísk-lútherskri trú par sem gengið er út frá fjölbreyti-
leika í stjórnarháttum og ytra fyrirkomulagi kirkjunnar.