Heima er bezt - 01.12.1951, Síða 5

Heima er bezt - 01.12.1951, Síða 5
Nr. 10 Heim'a er bbzt 293 draugatrú, og flestir voru fjafskalega myrkfælnir. — Af hverju heldurðu að það hafi stafað? — Eflaust af þessu hnaus- þykka myrkri alls staðar. Ég man vel eftir því, að myrkfæln- in minnkaði stórum, þegar farið var að nota olíulampa, og nú er hún næstum horfin, síðan raf- ljósin komu. — Hefur þú aldrei orðið var við neitt óhreint? — Ég heyrði einu sinni þrjú nautsöskur hvert á eftir öðru. Þau færðust alltaf nær og nær, og það síðasta kom beint undan fótunum á mér. Daginn eftir kom stúlka, sem sagt var að Þor- geirsboli fylgdi. Annars hef ég aldrei orðið var við neitt, nema hvað mig dreymir oft djöfulinn á næturnar. Ég var afskaplega myrkhræddur fram eftir aldri og er það reyndar enn. — Hvernig hefurðu verið til heilsu um dagana? — Ég hef ekki verið frá verk- um nema 5 vikur á ævinni, og hafa þó brotnað í mér samtals 9 rif. Einu sinni var ég að reyna hest. Allt í einu snarstanzar hestskömmin, og ég leið ósköp hægt fram af honum. En ég fékk samt svo slæma byltu, að þrjú rif hrukku í sundur. Ég gat ekki slegið né bundið fyrst á eft- ir, en ég gat alltaf snúið og rak- að. Annars hef ég oft verið mjög slæmur af gigt. Ég hef alltaf verið gigtveikur síðan um tví- tugt. Verstur er ég í hvössu sunnanveðri, en miklu betri í norðanátt, þótt hyasst sé. Þeir geta ekki fundið upp meðul við gigtinni, þó að þeir geti fundið þessar voðalegu atómsprengjur til að drepa fólk. — En hvenær byrjaði heyrnin að svíkja þig? — Ég hef verið heyrnarlaus á öðru eyra í fimmtíu ár. Hljóð- himnan sprakk við skothvell rétt við eyrað. Maðurinn, sem var með byssuna, gerði þetta í gáleysi — hann vissi ekki, að skotið var svona sterkt. — Hve margar skepnur átt- irðu venjulega eftir að þú gerð- ist lausamaður? — Það var dálítið misjafnt. Ég átti flest tæpar þrjátíu kindur og tvo hesta. Ég heyjaði skækla hingað og þangað og flutti oft heim á einum. En síðustu árin lét Jón heitinn hérna mig alltaf fá slægjulönd í lónenginu sínu og hjálpaði mér við að heyja þau. Jón heitinn og Arnþrúður hérna eru beztu manneskjur sem ég hef kynnzt. — Hvernig var afkoma manna almennt hér í Öxarfirði á upp- vaxtarárum þínum? — Fátæktin var óskapleg, blessaður vertu. Hreppaflutning- arnir voru það ljótasta sem ég get hugsað mér. Að börn og gamalmenni skyldu vera flutt heim á hrepp sinn og hrakin sveit úr sveit aðeins af því að vesalings fólkið var fátækt. Ég var svo hræddur við hreppa- flutningana lengi vel, að ég ætl- aði aldrei að þora að trúa því, að það væri búið að banna þá með lögum. Vesturfarirnar voru líka voðalegar. Það vita víst fá- ir, hve margir dóu á leiðinm eða hvað aumingja fólkið varð að þola. — Fékkstu ekki eitthvað við veiðimennsku jafnhliða bú- skapnum? — Jú, jú, ég veiddi oft mikið af silungi hérna í lónunum, og svo var oft mikið seladráp í Jök- ulsárósi áður fyrr. Þá var alltaf farið í ósinn á hverju hausti, og eitt haustið man ég, að þar veiddust milli 70 og 80 selir. Þeg- ar þeir höfðu gengið í ána var vaðið út í hana og staðið fyrir þeim, svo að þeir komust ekki út. Stundum stóð maður upp undir hendur í ísköldu vatninu langtímum saman. Svo þegar selirnir komu æðandi, varð mað- ur að hamast og busla með höndunum, því að þeir gátu ver- ið grimmir, en hins vegar voru þeir kjarklausir, greyin. Það var nú meiri hamagangurinn, þegar verið var að fanga þá. — Þú hefur auðvitað farið í göngur um fjöll og firnindi? — Já, ég held nú það. Ég hef til dæmis farið 20 sinnum i Búr- fellsheiði, svo að ég hef haldið til í heiðinni í samtals 40 sólar- hringa. — Hver heldurðu að sé þér minnisstæðastur af þeim mönn- um, sem þú hefur séð? — Ég veit ekki — en líklega Benedikt Sveinsson, sýslumaður. Hann kom oft að Ærlækjarseli þegar hann var á Héðinshöfða. Hann var svo feiknarlegur ræðu maður, að ég hef aldrei heyrt önnur eins lifandi ósköp. — En sástu aldrei son hans, Einar skáld? — Aðeins einu sinni. Hann kom þá austur fyrir föður sinn vegna málaferla, sem risu út af því, að maður átti barn með aumingja. Það var ósköp leiðin- legt mál. Veslings maðurinn var dæmdur i tugthús, en barnið varð mesti myndarmaður. Þannig röbbuðum við saman aftur og fram, unz kunnuglegt fótatak heyrðist í stiganum og Arnþrúður húsfreyja kom nið- ur til að hita kvöldkaffið. Þegar menn höfðu hresst sig á snarp- heitum sopa, haltraði gamli maðurinn upp í herbergi sitt. Yrði manni þá gengið inn í búrið undir herbergi hans, heyrði maður eins og óm af hljóðskrafi ofan að. Einar gamli var byrjaður að lesa bænirnar sínar, tala við Guðinn á því máli, sem mamma hans kenndi hon- um heima á Þverá fyrir áttatíu árum. Röddin smálækkaði og dó út. Þá var hann sofnaður. Sólbjartan sumarmorgun sit ég í eldhúsinu og er að drekka morgunkaffið. Ég heyri að eitt- hvað fellur í póstkassann og flýti mér til dyra. í kassanum eru nokkur blöð og eitt bréf heiman frá íslandi til konu minnar. Við sjáum strax á rit- höndinni, að það er norðan úr Öxarfirði, og við flýtum okkur að opna það. Að loknum venju- legum inngangi stendur: — Hér á heimilinu hefur orð- ið breyting, síðan ég skrifaði þér síðast. Einar okkur, blessaður, er nú horfinn okkur. Hann dó 19. febrúar, og var þá búinn að liggja i hálfan mánuð — þó ekki alveg, því að hann fór i föt suma daga. Hann hrasaði hér í stiganum, hefur vafalaust feng- ið aðsvif. Við vorum í eldhúsi og heyrðum, þegar hann datt, og okkur varð voðalega illt við. Við bárum hann svo upp í herberg- ið sitt og háttuðum hann, og hafði hann þá fengið fulla rænu. Hann var alltaf rólegur, meðan hann lá, og mundi aldrei eftir

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.