Heima er bezt - 01.12.1951, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.12.1951, Blaðsíða 8
296 Heima ER BEIZT Nr. 10 Hallgrímur frá Ljárskógum: FÖRUMENN komin fram í bæjargöng, en þau fylltust brátt vatni. Fékk Guðjón náð taki á henni og dró upp á þekjuna til þeirra, er þar voru fyrir. Georg og aðkomukonan urðu viðskila við Ólaf og fólk hans; þau komust á hlöðumæni og fengu borgið sér þar unz flóð- ið sjatnaði. Eins og geta má nærri var líð- an fólksins hin versta; það var fáklætt, ekki þurr þráður á því, og kona Ólafs sárveik. Fór Ólaf- ur úr jakka, er hann hafði hramsað með sér, og færði kon- una í hann. Hélst enn illviðrið sleitulaust. Allt í einu minnist Ólafur þess, að peningaveski hans, með nokkru skotsilfri, muni liggja eftir í baðstofu. Hann brýst þeg- ar inn í baðstofuna, næstum fulla af vatni og fær náð vesk- inu. Þá sér Ólafur, að hundurinn stendur uppi á kofforti í baðstof- unni og ber sig aumlega. Tókst Ólafi við illan leik að bjarga seppa upp á þakið. — Fólkið hafðist við á þökum bæjarhúsanna þeirra, er uppi stóðu þessa ömurlegu óveðurs- nótt til kl. 7 um morgunin. Þá fyrst lægði flóðið austan bæjar- ins, en að vestan hélst sami flaumurinn allan daginn. Af Birni og dóttur hans er það að segja, að þau komust heim um morgunin er flóðið tók að lægja. Það var óhugnanleg sjón er blasti við Steinafólkinu, þegar birti af degi. Allir kálgarðar voru gersamlega eyðilagðir; þar var urð ein. Matvæli og húsmunir lágu eins og hráviði út um alla mýri, raftar úr sumum útihúsun- um og máttarviðir höfðu jafnvel borist alla leið fram á fjöru eða út á sjó. Obbinn af engjunum var eyðilagður af grjót- og mal- arburði; annar veggurinn af lambhúsinu horfinn; fjárhúsið hékk enn uppi. Fjósið var hálf- fullt af sandi og vatni og kýrnar hörmulega leiknar. Tvær hey- hlöður voru eyðilagðar og allt hey flotið burt, um 600 hestar. Tjónið allt var metið á 3500 kr., og þótt það væri allmikið fé í þá daga, fór því fjarri að tjónið væri að fullu bætt. Var hafist handa um samskot handa fjöl- Förumaður — förukona, fornar — beiskar sorgarmyndir, líf, sem nam ei vegferð vona, vömmum tærðar þjóðarsyndir, líf án stefnu, ljóss og klæða, líf í smán og þrenging nauða. — Sérðu hversu sárin blæða? Sérðu þennan kalda dauða? Utangarðs um alla daga, — elting spotts og hnífilyrða, — kaunum hlaðin sorgarsaga! Sálræn högg, sem tæra — myrða, nísta í kviku kal og undir! — Kuldinn næðir — stormar þjaka! — Eyðibruni allar stundir! Útigangsins hungurvaka! Hrakningur frá sveit til sveitar, — svikavonir hníga og rísa, — mæðuspor til matarleitar. — Mökkurskuggar dapurt lýsa! Flækingurinn forsmán alinn fyrirlitning bergir löngum, hæðnisglotti og hraksmán val- inn„ — hrindingar á vegi ströngum! skyldunum í Steinum og safnað- ist talsvert fé, einkum í Reykja- vík. Atburður þessi olli því, að Ólafur Símonarson, er átti heim- ili að Steinum um hálfrar aldar skeið og vildi ógjarna hverfa þaðan lifandi, fluttist til Vest- mannaeyja næsta vor eftir flóð- ið. Þar býr hann nú í góðri elli, glaður og gunnreifur, gengur að verkamannavinnu þegar færi gefst. Hann unir vel vel hag sín- um þótt ýmislegt hafi á annan veg skipast en ætlað var. — En stundum hvarflar hugurinn heim til sveitarinnar, þar sem bærinn hans stóð í faðmi fagurra fjalla. Þar, sem bærinn hans var, er nú djúpt gil, sem varð til af völdum ægilegra náttúruafla hina eftirminnilegu jólanót fyr- ir 24 árum. Har. Guðnason skráði eftir frásögn Ólafs Símonarsonar frá Steinum. Lognir vinir — enginn árinn, örbirgð — sultur — nakin þján- ing, von um skjólgarð feig og farin! — Förumannsins eina tjáning: kvalastunur — kjökur — bænir, — kvein um það að mega lifa! Lífsins þrá til landa mænir. — Lokaráðum engir bifa! Útigangan móðann mæðir, margt er sporið þungt að stíga. Kuldablástur napurt næðir, — nepjan frystir — tárin hníga. Drepin von í döprum augum, — drjúpir hugur eilíftrega! Lífið staulast stjörfum taugum stýrislaust til harmsins vega! . . . Vopnin falla — verður rokkið, vökulokin næsta sporið, — leiðin enduð — lífið slokkið! Loksins hefir dauðinn borið hvíld og fró að förubyrði. — Förumannsins sögu lýkur. Eftirmæli: Einkis virði! Eyðitóm í sporin fýkur. Eplið og Eva

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.