Heima er bezt - 01.12.1951, Side 26

Heima er bezt - 01.12.1951, Side 26
314 Heiiía er beejt Nr. 10 unni, að allsstaðar umhverfis okkur væri fjöldi fólks — og rétt eins og ég þyrfti að gæta þess áð reka mig ekki á einhvern eða stíga ofan á tær. Ég tók þó á þolinmæðinni, en sannarlega var ég allshugar feginn, þegar við komum út úr rústahrúgu þessari og þangað sem engir draugar voru fyrir. Það, að staðurinn er þétt- byggður draugum, sést bezt á því, hversu hann er sniðgenginn af Swahiliunum, en það eru inn- fæddir íbúar héraðsins, fremur lítt þroskaðir andlega. Þarna ganga breytilegustu sögusagnir um ýmislegt dularfullt, sem hef- ur gerzt þar. Ein af þessum sög- um, sögð af hræðslufullum negra-matsveini úr héraðinu, sem fór með hana þegar í hús- bónda sinn og húsbóndinn strax í yfirvöldin, var á þessa leið: Matsveinn þessi, sem hét Ali, bjó í tveimur hringlaga moldar- kofum í lítilli kofaþyrpingú, sem húsbóndi hans átti skammt frá Gedi-rústunum. Kvöld nokkurt sat Ali í dyrum annars kofans og afhýddi kartöflur, en var öðr- um þræði að gera gælur voð tveggja ára gamlan son sinn, er lá nakinn skammt frá honum. í dyrum hins kofans, á að gizka fimmtán fetum álengdar, sat Fatima, kona hans, og var einn- ig að afhýða kartöflur; en dyrn- ar vissu þannig, að maður henn- ar sá hana ekki. Allt í einu kall- ar konan til hans: „Ali, láttu litla hnokkann koma til mín til þess að drekka kibuyu af geitar- mjólk, svo að hann verði stór og sterkur". Og þar eð Ali var ætíð hlýðinn hinni fögru rödd síns betra helmings, gaf hann krakk- anum léttan pústur í bossann, og skipti engum togum að drengurinn tók að skríða þessa fimmtán feta vegalengd milli kofanna, og grunaði föður barns- ins ekki annað en það hefði lent hjá móðurinni hinum megin við hinn kofann. Það var nokkurra sekúndna þögn, þar sem Ali hélt áfram við störf sín, en þá heyrðist aftur rödd Fatímu: „Hvers vegna hlýðirðu ekki, þegar ég segi þér að láta krakk- ann koma til mín?“ „Fatíma mín, hann er kominn til þin,“ anzaði Ali, en rauk þó samstundis á fætur. En barnið var horfið — algjör- lega horfið á þessari stuttu leið millum kofanna. Þetta var und- arlegt — gjörsamlega ótrúlegt. Frá því barnið var að leika sér við hlið Alis og þar til það hvarf fyrir hornið á kofanum á móti, var það sífellt í augsýn manns- ins, og þá hefði það átt að kom- ast strax til móður sinnar. En nú var það horfið ,engu líkara en það hefði verið uppnumið. Leitað var dyrum og dyngjum, hátt og lágt, en á þrjúhundruð fermílna svæði fannst barnið hvergi, og hvergi var sá staður, þar sem barnið hefði getað verið falið, né heldur nokkurt dýr getað tekið það og farið með það, án þess ummerki sæust. Hvergi voru spor eftir dýr. Ennfremur var óhugsandi, að á þessu andar- taki, frá því að barnið yfirgaf föður sinn og hefði átt að vera komið til móðurinnar, hefði það getað komizt yfir þetta svæði og inn í skóg. Á því var enginn vafi, að barnið var með öllu horfið; það hafði horfið millum kofanna á hinni skömmu leið milli föð- urins og móðurinnar. Hinn ná- kvæmi staður hvarfsins hlýtur að hafa verið um það bil þrem fetum frá móðurinni. Og síðan hefur ekkert til barnsins sézt. Einnig er í vestur frá Gedi skógur nokkur, sem kallaður er Hjátrúarskógur. Mér var sögð saga, sem átt hafði sér stað í þeim dularfulla skógi, og sögu- maðurinn var embættismaður stjórnarinnar, sem dvaldist þarna um tíma og æskir þess að vera ekki nefndur á nafn í þessu sambandi. Saga hans var eitt- hvað á þessa lund: „Jafnan frá því ég kom hingað fyrst, hef ég verið að heyra sögusagnir um þennan skóg — sögur frá hinum innfæddu, skilj- anlega. Þeir sögðu, að trén væru ekki raunveruleg, heldur kæmu og færu eins og skuggar, þau væru hreinar ofsjónir, ósjaldan væru ferðamenn leiddir í villur af þessum sökum og kæmust jafnvel aldrei á rétta leið aftur. Ég lagði ekki þessum sögum eyru fyrst í stað; mér datt ekki ann- að í hug en að þetta væru eins og hverjar aðrar heimskulegar þj óðsögur. En dag nokkurn leiddi Miss R. sannleikann i ljós. Miss R. var hvít stúlka, sem dvaldist í Austurafríku og hafði verið þar síðan hún var smábarn, sér- staklega vel kunnug öllu þar um slóðir, einkum öllu, er við kom þjóðlegum siðum þar. Dag nokk- urn var hún stödd allnærri hin- um dularfulla skógi, og þar sem henni var kunnug sögusögnin um trén, ákvað hún að prófa sjálf, hvort nokkuð væri hæft í þessu. Með veiðihníf merkti hún í einn trjábolinn stórt greinilegt mark og skar börkinn burtu. Að því loknu gekk hún um það bil hundrað yards frá trénu, snéri síðan aftur við. Þá var tréð með markinu hvergi sjáanlegt. Hún gat ekki einu sinni séð, að leið- in, sem hún fór aftur, væri sú sama og hún hafði gengið burtu frá trénu. Slík var sagan, sem Miss R. sagði mér, og það fynsta, sem ég gerði, var að áætla, að hún hefði gert einhver mistök; hefði á ein- hvern hátt snúið í aðra átt en tréð var staðsett. Ég ákvað því að gera samskonar tilraun sjálf- ur, og gekk út í skóginn einn góðan veðurdag í þeim tilgangi. Ég hlýt að viðurkenna, að fljótt á litið virtist skógurinn ekkert vera frábrugðinn öðrum skógi, og ég var frekar vondaufur um það, að tilraun mín bæri nokkurn dularfullan og sannfærandi ár- angur. Með geysimikilli tor- tryggni reif ég pappír úr stórri vasabók, festi hann á stærðar baobab-tré, sem stóð nokkuð einangrað og var ólíkt öðrum trjám á þessu svæði. Þegar ég hafði gengið úr skugga um það, að pappírsblaðið væri vel fest á tréð, svo að vindurinn gæti ekki feykt því, sneri ég mér frá og gekk um það bil hundrað yards frá trénu, rétt eins og Miss R. hafði gert. Þá sneri ég enn við og gekk aftur í átt til ttrésins. Nú legg ég áherzlu á það, að ég hafði fyllilega gert mér grein fyrir því, hvar tréð var staðsett. Ég gekk rakleitt þangað, sem það átti að vera. Um þann hlut er ég jafn viss og ég get verið um nokkurn hlut.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.