Heima er bezt - 01.11.1956, Síða 8
348
Heima
---er bezt
Nr. 11—12
Frá heimsókn forsetahjónanna til Suðureyrar í Súgandafirði.
syni, kandidat í guðfræði og núverandi forseta fslands.
Fyrst í stað var heimili þeirra ekki fyrirferðarmeira en
svo, að frú Dóru fannst hún hafa alltof lítið að gera
og hugsa um, en hún kunni ráð við því.
f Reykjavík voru nokkrar konur, sem söknuðu þess
að hafa ekki aðgang að góðum bókum án þess að kaupa
hverja bók. Þær stofnuðu með sér félag, sem þær nefndu
„Lestrarfélag kvenna í Reykjavík“. Frú Dóra varð mjög
snemma meðlimur í því félagi. Markmið félagsins var,
eins og nafnið bendir til, að kaupa góðar bækur eftir
þekkta höfunda og lána þær út félagskonum gegn vægu
ársgjaldi. Félagið hafði engan styrk, að minnsta kosti
ekki fyrst framan af. Félagskonurnar urðu því að vinna
öll félagsstörf í sjálfboðavinnu, og störfin voru mörg
og margvísleg, fyrst og fremst útvegun og kaup nýrra
bóka, reikningshald allt og síðast, en ekki sízt, útlán
bókanna og varzla safnsins. Frú Dóra var alla tíð virk-
ur og athafnasamur félagi í þessum félagsskap, og var
í stjórn félagsins í fjölda mörg ár. Ffún hafði brenn-
andi áhuga á þessu starfi, en vænst þótti henni um
barnalesstofuna, sem var stofnuð innan félagsins, þar
vann frú Dóra í sjálfboðavinnu og naut þess að vera
með börnunum, leiðbeina þeim urn bókaval og svara
spurningum þeirra. Frú Dóra var kjörin heiðursfélagi
Jestrarfélagsins um það leyti, sem hún hætti vegna anna
að geta verið í stjórn þess.
En nú fara heimilisskyldurnar að breytast. Þau hjónin
eignuðust elskuleg og mannvænleg börn, sem öll eru nú
gift og í góðum, ábyrgðarmiklum stöðum í þjóðfélag-
inu. Meðan börnin voru lítil og öll heima, þurftu þau
síns með, eins og gengur, en störf frú Dóru urðu nú
smám sarnan umfangsmeiri, eftir því sem tímar liðu.
Hún tók virkan þátt í safnaðarstarfi dómkirkjusafn-
aðarins og var mörg ár í safnaðarstjórn, og mörg síð-
ustu árin, áður en hún varð forsetafrú, starfaði hún í
stjórn kvennaskólans í Reykjavík. Hún varði miklum
tíma til leikfimi og stundaði sund af kappi og gerir
enn.
En ennþá er aðalatriðið framundan.
Asgeir Asgeirsson fór að gefa sig við stjórnmálum,
og eftir að hafa verið biskupsritari og bankastjóri
Landsbankans, varð hann fræðslumálastjóri, þá fjármála-
ráðherra. Forseti sameinaðs Alþingis var hann 1930,
þegar 1000 ára Alþingishátíðin var haldin.
Að sínu leyti tók frú Dóra mjög mikinn þátt í þessu
margþætta starfi manns síns, og þá einkum og sér í
lagi sem húsfreyja á heimili þess manns sem þjóðin
hafði falið svo mörg trúnaðarstörf — störf, sem meðal
annars gerðu móttökur gesta, útlendra sem innlendra,
nauðsynlegar.
Árið 1938 varð Ásgeir Ásgeirsson bankastjóri Utvegs-
bankans og hætti þá að mestu allri flokkabaráttu í
stjórnmálum. Þó var hann þingmaður Vestur-ísfirð-
inga alla tíð, þangað til hann var kjörinn forseti Islands
sumarið 1952. Þessi 14 ár, sem Ásgeir Ásgeirsson var
bankastjóri, voru að mörgu leyti hvíldarár fyrir frú