Heima er bezt - 01.11.1956, Blaðsíða 15

Heima er bezt - 01.11.1956, Blaðsíða 15
Heima ---er hezt 355 Nr. 11-12 vér ekki ennþá frekar en aðrar þjóðir. En um það verður ekki deilt, að víkingseðlið mátti við því að mildast af boðskap kærleikans. .... Það eru lögin og kristnin, sem hafa einkennt vora Norðurlandamenningu, og á þeim byggist fram- tíðarvonin á þessum ótryggu tímum. Málamiðlun betri en ehrræði og bardagi. Úr ræðu á Laugum. Þegar í odda skerst í þjóðmálum, þá er ekki ætíð víst, að háleitar hugsjónir, sem ekki megi víkja hárs- breidd frá, standi að baki hverjum flokki. Vald, auður og metnaður eru þættir í því reiptogi — og slungnir saman við hinn vígða þátt hugsjónarinnar. Þjóðfélag- inu er oftast betri málamiðlun en einræði, og í þrosk- uðu þjóðfélagi alltaf betri en bardagi. Við kristnitök- una var fjallað um hin viðkvæmustu mál, en vísast stóðu þó höfðingjarnir meir hver gegn öðrum en al- þýða manna. .... Frá landnámstíð bjuggu kristnir menn í land- inu, og heiðnir menn höfðu samneyti við þá og aðra kristna menn á ferðum sínum erlendis. Guðirnir voru margir að beggja áliti, en Kristur mestur og beztur að kristinna manna trú. Jarðvegurinn fyrir kristnitöku, hygg ég, að hafi verið betur undirbúinn en margir ætla. Landvættir og guðspjallamenn. Úr ræðu í Skálholti 1956. Guð gefi, að stjórnvísi og kristnihald megi haldast í hendur með þjóð vorri á líkan hátt og landvættirnar, sem jafnframt eru frá fornu fari tákn hinna fjögurra guðspjallamanna, bera uppi þrílitan krossfánann í skjald- armerki vors unga, endurreista lýðveldis. 4. ÍSLAND OG NORÐURLÖND. Frá unga aldri hefur Ásgeir Ásgeirsson verið ein- lægur forvígismaður norrænnar samvinnu og unnið þar mikið starf. í viðurkenningarskyni fyrir það hefur Norræna félagið kjörið hann heiðursfélaga sinn. Hér fara á eftir nokkrir ræðustúfar, fluttir í Norðurlanda- ferðum forsetans og í veizlu fyrir Friðriki Danakon- ungi í Reykjavík. í veizlu Danakonungs 1954. Það er gömul og ný reynsla, að fullkomið sjálfstæði allra norrænna þjóða er traustasti hornsteinn samstarfs og vináttu, sem stöðugt hefur þróazt milli þessara ná- skyldu þjóða, og sem vér viljum allir halda áfram að efla og treysta. Vér minnumst með þakklæti margra ágætra Dana, sem hafa sýnt á liðnum tímum ríkan skilning á stöðu íslands og þörfum þess. En fyrst og fremst minnumst vér heillaóskaskeytis Hans Hátignar Kristjáns konungs X., sem barst oss á stofndegi lýðveldisins 17. júní 1944. Þegar kveðja konungs barst, þann kalda rigningardag, var eins og hlýr straumur bærist um vorn fornhelga sögustað, Þingvelli. Enn einu sinni lutum vér höfði í þakklæti og virðingu fyrir hinum ágæta konungi, sem af hetju- lund barðist baráttu bræðraþjóðar vorrar í svartnætti kúgunarinnar. í veizlu forseta fyrir Danakonung 1956. Á hinum dökka bakgrunni nútímans í alþjóðamálum þarf vinátta og bróðurhugur Norðurlandaþjóðanna að lýsa eins og logandi viti friðarins og menningarinnar. Það eru sömu hætturnar, sem steðja að oss, sömu vonirnar, sem lýsa oss fram á veginn, og hin sama trú, sem veitir oss styrk í baráttu lífsins. Það er kominn tími til að láta ekki gamlar væringar liðins tíma villa oss sýn. Ný viðhorf gera það nauðsynlegt, að þær deilur, sem þegar eru útkljáðar, séu ekki látnar ráða tilfinningum vorum og ákvörðunum. .... Gagnvart viðfangsefnum nútíðar og framtíðar stöndum vér Danir og íslendingar á sama sjónarhól eins og bræður. Látum hug vorn og hjarta og öll sam- skipti mótast af því. 1 Ráðhúsinu í Kaupmannahöfn 1954. Um meir en þriggja alda skeið var Kaupmannahafnar- háskóli einnig háskóli Islands. .... Hér var stofnað til kynna með íslendingum og Dönum, og hér öðluðust margir beztu menn þjóðanna beggja gagnkvæman skilning á högum hinna. Slíkan skilning ættum vér að efla af megni, og hann mun, þegar tímar líða, leiða deilumál vor farsællega til lykta. Megi samskipti vor markast af drengskap og menn- ingu. í veizlu Svíakonungs 1954. Allir óskum vér friðar, en vér virðum þó þær þjóðir, sem verja menningu sína og þjóðleg sérkenni. Ég hygg, að hafi nokkrar þjóðir komizt nærri því að leysa vandamál nútímans, þá séu það Norðurlandaþjóðirnar. .... I augum heimsins njóta Norðurlöndin virðingar fyrir að þræða inn á við hinn gullna meðalveg, en leita út á við til hins gullna friðar. í veizlu Finnlandsforseta 1954. Lífsbaráttan hefur verið hörð með báðum þjóðum (Finnum og Islendingum), og að vissu leyti er sumt líkt um andstæðurnar, skóg og haf. Skógurinn skapar Finnum útflutningsverðmæti, hafið oss íslendingum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.