Heima er bezt - 01.11.1956, Blaðsíða 32
Heima Nr. 11-12
----er bezt---------------------------------------------
helzt í „bútung“. Eitt er alveg víst, að hjá mörgum þætti
undarleg þjóðhátíð, ef ekki væri reyktur lundi á
borðum.
Þá er og mjög mikið selt af lunda til Reykjavíkur og
Arnessýslu, og eykst sala þangað mikið.
Heildarveiði lunda í Eyjum yfir sumarið mun vera
ca. 50—55 þús. stk. í meðalveiðiári, eða sem svarar 1/8—
1/10 hluta árlegrar viðkomu einnar stærstu úteyjunn-
ar, samkv. talningu og áætlun erlendra fuglafræðinga.
Dagveiði eins manns fer að sjálfsögðu eftir því, hvort
um góðan veiðimann er að ræða, hvort vindátt er hag-
stæð og hvort fuglinn „er mikið við“. Gott þykir að
veiða 2 til 4 hundruð, ágætt 5 til 6 hundr. og afbragðs-
gott hvað meira er. Mjög sjaldan hefur einn maður
veitt 1000 stk. af lunda á dag, en þó hafa 5—6 menn
náð rúmlega þeirri tölu. Að það er ekki oftar eða al-
mennara, veldur venjulegast vindáttin, sem lítið má
breytast, svo veiðistaðurinn verði ekki ónothæfur. Hver
staður hefur sína ákveðnu vindátt og þolir auk þess
oftast ekki meira vindmagn en um 8 vindstig. Þá fer
að verða erfitt að hafa fullkomið vald á háfnum. Verða
menn þá óvissari á að hitta fuglinn, svo „feilskotin“
verða æði mörg, en þau þykja ávalt ljóður á hverjum
veiðimanni, löstur, sem allir reyna að varast af fremsta
megni. Það er líka svo, að góður veiðimaður slær helzt
aldrei „feilskot“ við góðar veiðiaðstæður.
Máltíð í Alsey.
ins í klettaskútum niður við sjó, en þar er flugan sízt.
Mjög mikið af lundaveiðinni fer til neyzlu í bæinn,
sem einmitt á veiðitímabilinu er oftast að mestu kjöt-
laus. Kemur lundinn sér þá mjög vel. Þykir hann herra-
mannsmatur reyktur, steiktur eða soðinn nýr og þá
Að sjálfsögðu koma fyrir dagar, sem ekki er hægt
að vera að veiðum vegna illveðurs, þ. e. a. s. 9 til 10
vindstig og stórrigning, svonefndir „inniteppudagar“,
sem eru hvíldardagar veiðimanna. Þá gera menn sér
ýmislegt til gamans, syngja við raust og spjalla saman,
spila á spil, t. d. „síðasta stikk“ um ungar og fallegar
stúlkur, tefla manntafl, spila á harmoniku og guitara
o. fl. Þá eru og fræðandi kvöldvökur haldnar með upp-
lestrum og frásögnum. Einnig eru þessir dagar notaðir
til að gera að háfunum, spækjur spengdar, riðin net,
hagldir telgdar, uppsettir nýir háfar o. fl. Þessutan er
svo sofið vel og hvílt sig eftir góðan mat og mikinn
og ákafa kaffidrykkju.
Gert að veiðitækjum t Alsey.
Einn er það af veiðimönnunum, sem oftast hefur nóg
áð starfa, hvíldardaga sem aðra daga. Það er kokkur-
inn. Verður honum meira fyrir starfinu, þar eð ekki
er um fagmann að ræða, enda þótt hinir reyni að
létta undir með honum. Vill stundum verða lítið úr
hvíld hans, þar eð auk matargerðarinnar, sem er raun-
verulega aukastarf hans, verður hann að „veiða í hlut-
inn sinnu, þó um sameiginlega veiði og jafna hlutar-
skiptingu sé að ræða.
Stundum kemur lundinn alls ekki upp af sjónum
2 til 3 daga í röð, þrátt fyrir góðar veiðiáttir og blíð-
viðri. Gerast menn þá óþolinmóðir að bíða hans og
kenna ýmsu þessar kenjar, t. d. ætisleysi, hrafnakom-
um og fálka, en það eru lundans verstu fjendur, o. fl.
eins og sést af eftirfarandi: