Heima er bezt - 01.11.1956, Blaðsíða 9
Nr. 11-12
Heima
---er bezt
349
1 blómaskálanum á Bessastöðum.
Dóru. Að minnsta kosti minnist ég þess, að við vorum
staddar nokkrar konur í húsi hér í Reykjavík, þar á
meðal frú Dóra Þórhallsdóttir. Þetta var einhverntíma
veturinn 1948. Einhvemveginn barst í tal, hvort forseta-
kjör myndi fara fram næsta sumar. „Þá yrði nú maður-
inn þinn, Dóra, valinn,“ segir ein kona. Dóra svaraði:
„Fyrst kemur það ekki til mála, að forsetakjör fari
fram, á meðan forsetinn okkar, Sveinn Björnsson, held-
ur lífi og heilsu, það er ég viss um; og vildi ég af alhug
óska honum langra og góðra lífdaga, en færi svo, að
nýtt forsetakjör yrði nauðsynlegt, veit ég ekki, hvort
þið ættuð að óska mér þess, að maðurinn minn yrði
valinn. Ég hef verið það lengi, ef ég mætti svo að orði
komast, í opinberri húsmóðurstöðu, að þið vitið ekki,
hvað ég nýt þess að vera venjuleg húsmóðir, rétt eins
og þið, mega gefa mig óskipta að heimili mínu, fjöl-
skyldu, vinum og hugðarefnum.“ En svona fór það
samt, Asgeir Asgeirsson var kjörinn forseti Islands 1952,
að Sveini Björnssyni látnum.
Eftir forsetakjörið, en áður
en hjónin fluttu að Bessastöð-
um, spurði ein vinkona for-
setafrúarinnar, hvort hún
kviði ekki fyrir að taka að
sér jretta mikilvæga starf.
„Ég veit það ekki,“ svaraði
frú Dóra. „Ég vona, að guð
hjálpi mér ög styrki, og sjálf
er ég ákveðin í að gera allt,
sem í mínu valdi stendur, til
að leysa starfið sómasamlega
af hendi.“
Nú er komið árið 1956.
Fyrsta forsetakjörtímabil er
liðið, og Asgeir Asgeirsson
og þau hjónin byrja nú nýtt
forsetatímabil og nú sjálf-
kjörin. A þessum fjórum ár-
um hafa mörg störf hvílt á
forsetafrúnni. — Bessastaðir
hafa verið opið risnuheimili.
Maður les í blöðunum, að
þessi eða hinn sendiherrann
hafi afhent forsetanum skil-
ríki sín og borðað hádegis-
verð að Bessastöðum, — og
margar eru þær nefndir og
þau mót, sem hafa haldið
fundi í Reykjavík og verið
boðin að Bessastöðum.
Forsetahjónin hafa farið í
opinberar heimsóknir mjög
víða urn landið, sömuleiðfs
til Norðurlandanna allra. Bein afleiðing af heimsókn
forsetahjónanna til Norðurlandanna var konungsheim-
sóknin núna síðastliðið vor, er Friðrik IX. Danakon-
ungur og Ingrid drottning heimsóttu Island.
Ollum ber saman um, bæði blöðum og almenningi,
hér og erlendis, að þessi konungsmóttaka hafi tekizt
með afbrigðum vel, en því aðeins tókst móttakan svona
vel, að allur undirbúningur var hinn bezti. Þar unnu
margir mikil og merkileg störf, en ábyrgðin og þar af
leiðandi yfirumsjónin með öllum undirbúningi hvíldi á
forsetahj ónunum.
Að endingu langar mig til að segja frá einu atviki.
Það var einu sinni í sumar, að við hjónin vorum boðin
að Bessastöðum með stórum hópi norrænna verkfræð-
inga — eitthvað um 70—80 manns, konur og karlar.
Meðal dönsku verkfræðinganna var Dani, sem hefur
unnið hér að mörgum verkfræðilegum framkvæmdum
og er mörgum íslendingum að góðu kunnur. Við hann