Heima er bezt - 01.11.1956, Side 17

Heima er bezt - 01.11.1956, Side 17
f LÍFSHÁSKA Á NORÐURSJÓ OG í LEITH WALK Prihja verMaunaritgerð ,,Heima er bezt ‘, eftir HELGA VALJ ÝSSON I. Á NORÐURSJÓ. vernig í fjandanum eiga kolin að endast, með því að liggja hér og krussa Norðursjóinn fram og aftur dögum saman? — Og steypast svo sennilega í kaf að lokum, haldi þessu áfram. Vélstjórinn var bæði gramur og meinyrtur í garð skipstjóra, og þó var hann auðsjáanlega ekki í essinu sínu, er hann hreytti þessu út úr sér. — Krussa! sagði skipstjóri hæglátlega og leit ekki upp. Hann var þreytulegur á svip og sat hálf-gneypur við kásetuborðið. — Þetta var óvenju stilltur maður og gætinn í orði og æði. — Það er nú ekki beinlínis fljótfarið né krókalaust að svingla áttavitalaus og áttalaus í sótsvartamyrkri og ofviðri einhvers staðar suðaustur af Hjaltlandi. — Skip- stjóri leit upp. Hann var fölur í andliti. — Fari það allt bölvað! sagði Larsen vélstjóri og reis upp úr sæti — Verðum við ofansjávar annað kvöld, spái ég, að ekki verði margar kolaskóflurnar eftir í boxunum, — og sennilega verður þó enn spottakorn eftir suður til Leith, — ef það reynist þá ekki einhver allt önnur átt — þangað! — Og því gæti ég svosem bezt trúað! bætti hann við illkvittnislega, um leið og hann smeygði sér inní klefa sinn, flevgði sér í skyndi uppí kojuna og spyrnti aftur klefahurðinni. Skipstjóri laut höfði, studdi olnbogum á borðbrúnina og hvíldi hökuna í lófum sér. Þreytudrættirnir um munn hans og augu komu nú gleggra í Ijós, og allur svipur hans bar vott um vanlíðan og ógleði. Þetta var á litlum norskum togara á leið frá Aust- fjörðum til Leith í Skotlandi. Lestin var full af salt- fiski, en kol aðeins til venjulegrar ferðar. En nú var þessi ferð okkar orðin venju fremur óvenjuleg. Er komið var miðja vegu milli Færeyja og Hjaltlands, rauk hann upp með suðaustan strekkings storm, er fór sívaxandi uppí óhemju ofsa og seinkaði för okkar með hverri klukkustund, sem leið. Sjór var þó allsæmilegur, unz við höfðum landsýn af suðurodda Hjaltlands, en eftir það var Norðursjórinn í sínum alversta ham, og í viðbót gerði sótsvarta þoku og fárviðri. Hafrótið var furðulega krappt og rishátt svo norðarlega í Norð- ursjó. Togarinn fór illa í sjó. Hann var mjög framhlaðinn og léttist óðum að aftan, er ört gekk á kolabirgðirnar. Stakk hann sér því í sjóina eins og stórhveli, svo að skrúfan sleppti sjó öðru hvoru, og nötraði þá og skalf allur skipsskrokkurinn, eins og væri hann gagntekinn heljarhrolli. Stundum kafaði hann allt að framsiglu, og gekk þá all-erfiðlega að ná sér upp aftur. Bjóst ég þá og þegar við, að nú væri öllu lokið: Nú héldi hann áfram norður og niður og kæmi síðan aldrei upp aftur að eilífu! Og uggur og ótti hörfuðu nær algerlega fyrir hrifni þeirri og magnþrunginni skelfingu, sem þanspennti hverja taug og æsti hvern blóðdropa til andspyrnu gegn þessum ofbeldistryllta og ójafna leik höfuðskepnanna yið fáráða og vanbjarga mannskepn- una! Um svefn og mat hafði vart verið að ræða síðasta sólarhringinn. Snemma nætur fengum við á okkur slík- an brothnút miðskips, framanvert á stjórnborða, að hann braut horn og framhlið stýrishússins, skekkti stýrishjólið og eyðilagði algerlega áttavitann. Var högg- ið svo skarpt og takmarkað, eins og slegið væri með heljarþungri risasleggju, að allt varð undan að láta. Eftir þetta var ekki um áttir að ræða. Og stjórninni var heldur ekki að treysta. Togarinn veltist og byltist í sjónum eins og rammfælin og tryllt ótemja, og þótt furðulegt sé frásagnar um norska sjómenn, sem upp- aldir eru við sjó og sjómennsku frá blautu barnsbeini, þá voru allir skipverjar að þessu sinni meira og minna sjóveikir nema „Gamli-Óli“, faðir Níelsar stýrimanns, sjötugur karlinn, — og svo eini íslendingurinn, sem flaut með til Skotlands. En ég hefi frá barnæsku verið algerlega ónæmur fyrir þessum kvilla. — ÓIi gamli skrölti um veltandi þiljur í trébotnastígvélunum sín- um og var ætíð við höndina til að þrífa stýrishj ólið, þegar Níels eða annar stjórnandi þurfti að hlaupa frá út að opnum glugganum. Sjálfur hélt ég mest til uppi í galopnum stýrishúss- hjallinum og batt mig þar fastan öðruhvoru, því að heldur vildi ég sökkva í myrkan mar opnum augum en láta loka mig undir þiljum niðri og drekkja mér Heima er bezt 357

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.