Heima er bezt - 01.11.1956, Qupperneq 18

Heima er bezt - 01.11.1956, Qupperneq 18
358 Heima Nr. 11-12: --------------------------------------------er bezt innanhúss! Það var mér óbærileg hugsun! — Annars er það furðulegt fyrirbrigði, hve hræðsla þverr og hverf- ur, þegar út í hættuna er komið, svo að björgun er í rauninni orðin hið eina ólíklega. A miðjum öðrum sólarhring, eftir að við höfðum haft landsýn af Sumburgh Head og síðan alltaf haldið upp í storm og sjó, tók ofurlítið að draga úr mesta ofs- anum. Og skyndilega, rétt undir dagssetrið, reif allra snöggvast í loft, en nægilega samt til þess að við náðum í Leiðarstjörnuna — í fremur óvæntri átt. Stormurinn hafði smámsaman gengið meira til austurs, og við fylgt honum eftir og vorum nú komnir all-langt austur til norðausturs af Hjaltlandi. Var þá gerð snögg „kúvend- ing“ í skyndi, og höfðum við síðan smálægjandi storm- inn beint á eftir. Undir miðnættið náðum við vitaljós- inu á Rattray Head. Og um hádegi daginn eftir lágum við í einni skipakvínni í Leith. Nú var komið gott veður og stillt. En sama daginn gerðist 'það furðulega fyrirbrigði, að Gamli-Oli, sem skrölt hafði í tréklossum á rammfælnum þilju-jó norð- ur í höfum og aldrei skrikað fótur, varð nú fótaskort- ur á þurrum þiljum inni í hafnarkví, féll aftur á bak á hnakkann og braut ofurlítið gat á höfuðskelina! II. í LEITH WALK. All-löng töf varð í Leith að þessu sinni. Sjór hafði komið í lestina, og urðu einhverjir vafningar á afhend- ingu farmsins. Og auk þess var allmikil bráðabirgða- viðgerð á stvrishúsi. Ég ætlaði að dvelja hjá skipsfélög- um mínum í 2—3 daga og halda síðan með járnbraut suður til Newcastle, þaðan með áætlunarskipi yfir til Björgvinjar í Noregi og síðan með járnbraut þaðan eitthvað austur á bóginn. Út í bláinn. Áttavitlaus og áttavilltur eins og togarinn „Atlas“ í Norðursjó! En á mínum aldri var maður ekki að glúra í Leiðarstjörnu og áttamiðum. Og á þeim árum var heimurinn enn all- víður og olnbogarými nægilegt. — Yngsti skipverjinn var frá Mostur-ey og hét Jóhann. Kölluðum við hann þó ekki Mostrarskegg, heldur aðeins „Mostra“. Enda var strákskjáninn snöggur-og snoðinn eins og sviðinn og skafinn sauðarhaus. Þetta var langur strákssláni og linjulegur, gáfaður í löku meðallagi, en allmikill á lofti. Höfðum við yngri mennirnir því gaman af að gera honum ýmsar smábrellur og leika á hann. Ofarlega á Leith Walk var ölstofa, sem við félagar heimsóttum nokkrum sinnum. Var hún reist á landa- mærum Leith og Edínborgar, og inni í veitingastof- unni var stór látúns-ör greypt í miðjan diskinn og letrað með látúnsstöfum LEITH öðrumegin, en EDIN- BURGH hinum megin. Mátti því standa sínum fæti í hvorri borg, meðan drukkið var úr glasi, sem einnig stóð í báðum borgunum, væri það sett niður á píluna. Þótti okkur þetta skemmtilegt tilvik og í frásögur fær- andi síðar meir. Aleðal annarra skemmti- og fjáraflatækja ölstofu þess- arar var sjálfvirk raflostkringla með vísi og stigatölu frá 0-100. Er sleppt var pennýi niður gegnum rifu á tækinu, tengdist óðar veikur rafstraumur. Væri síðan tekið hægri hendi um vísisknappinn, en þeirri vinstri um annan hnúð utanvert við kringluna, og vísinum snúið hægt sólsinnis, jókst straumurinn í sífellu, jafnt og stöðugt. Með hægum snúningi og jöfnum, kom- umst við flestir upp í 50—60 stig, en lékum þá allir á reiðiskjálfi, kipptumst til og hristumst af óviðráðan- legum vöðvakippum og slökun á víxl. Og sleppt gát- um við ekki, fyrr en við létum vísinn síga hægt niður aftur, nægilega langt til þess að drægi úr straumnum. En fjöðrin, sem stjórnaði vísinum, var allstinn. Gátu þeir, sem sneru vísinum snöggt og kippótt, fengið all- snörp og slæm raflost, en þó var þetta talið hættulaust allt að hámarki. Einn daginn síðdegis höfðum við þrír saman brugðið okkur inn í knæpuna að vanda, m. a. til að reyna raf- kringluna til þrautar. Bar þá Mostra þar að óvænt, og var mikill sláttur á honum. Daginn áður hafði hann keypt heljarmikinn krókstaf, sterkan og stinnan, og kvaðst ætla að gefa hann karli föður sínum, er heim kæmi. En síðan skildi Mostri ekki stafinn við sig, held- ur strunsaði með hann um allar götur og sveiflaði hon- um svo vígamannlega, að götulögreglan tók að veita honum eftirtekt. Brátt mun hún þó hafa komizt að því, að tilburðirnir og mannalætin væru í litlu samræmi við sauðmeinlaust innræti piltsins, og lét því Mostra og staf hans frjálsa ferða sinna. Við félagar höfðum nýlokið að þreyta afl við raf- kringluna og vissum, að Mostri var ókunnugur þessu galdratæki. Datt því einum okkar í hug að láta hann fá að reyna karlmennskuna og miðlaði honum allar nauðsynlegar leiðbeiningar um handtök á „fjaðragervi“ þessu. En rafmagn nefndi hann ekki, enda hefði það verið Mostra hrein latína. Aðalvandinn væri aðeins að beita kröftum karlmannlega og knýja bansettan vís- inn alveg upp á 100 í einum hvelli! — En ekki hefðum við haft krafta til þess! Mostri tók þessu með vígamannlegu yfirlæti. Hann lagði þegar frá sér stafinn karls, strauk upp ermar og spýtti í lófana. Félagi okkar stakk pennýi í rifuna og leit upp. Mostri þreif fullum hnefum um báða hnúðana, setti á sig mikinn og snöggan hnykk og braut vísinn upp á 100 í einum rykk! Við hrukkum allir við, af því er nú gerðist! Mostri fékk allan strauminn í gegnum sig í einu þrælsterku losti, svo að báðir handleggir hans kipptust hart og snöggt saman í svo magnþrunginni beygju, að strákur þeyttist í háa loft innað kringlunni og uppyfir hana með svo snöggu kasti, að hendur hans slitnuðu frá henni og vísirinn small niður aftur á núll með feikna hvelli. En Mostri steyptist yfir sig og kom niður á
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.