Heima er bezt - 01.11.1956, Qupperneq 20

Heima er bezt - 01.11.1956, Qupperneq 20
GAMLIR KUNNINGJAR eftir IÓH. ÁSGEIRSSON FYRRI HI.UTI Sú skáldskapargrein, er Iifað hefur aðallega um langan aldur á vörum þjóðarinnar, svo að ekki verður um deilt, eru svokallaðar tækifærisvísur, er sumir nefna húsganga. Þær hafa verið hennar lifandi orð í sorg og gleði og lífsteinn hennar í hvers- dagsleika daglegs lífs. Vörn hennar og vígi, er eldar og ísar þrengdu að lífskjörúm hennar. Lampi hennar og ljós, er hann blés á norðan og þorradægrin þóttu löng. Nú eru lífskjör þjóðarinnar orðin breytt, frá því sem áður var, fyrir aukna véltækni og ýmsar framfarir. Fólkið streymir stöðugt til kaupstaðanna úr sveitun- um. Þeim fækkar því óðum, sem kunna þessar gömlu og góðu vísur og hafa ánægju af að fara með þær. En þessi tegund skáldskapar á ekki síður skilið að varð- veitast frá gleymsku en önnur menningarverðmæti þjóðarinnar frá liðnum tímum. Mér datt því í hug að safna vísum þessum, sem flestum, eftir föngum í einn þátt, ef verða mætti til þess að greiða götu þeirra, sem síðar meir vildu gera þessu betri skil. I þætti þessum, sem ég hef valið nafnið: — Gamlir kunningjar, — hef ég hugsað mér að safna saman og velja sérstaklega gamlar vísur, sem Iifað hafa og lifa enn á vörum þjóðarinnar. Margar þeirra eru rangfeðr- aðar, jafnvel þótt þær séu prentaðar í ljóðabókum. Og mun ég reyna og leggja áherzlu á að grafast fyrir, hverjir eru hinir réttu höfundar þeirra, þar sem tök eru á. Óðum líður að því, að þessar vísur gleymast, og sumar eru þegar gleymdar öllum almenningi, þótt finna megi sumar þeirra hingað og þangað í eldri rit- um. Og væri því ekki ólíklegt, að mörgum þætti varið í að sjá framan í gamla æskuvini, sem þeir væru kannske búnir að gleyma. Og byrjar þá þátturinn á þessari alkunnu vísu, sem all-flestir hafa eignað Bólu-Hjálmari: Auðs þó beinan akir veg, ævin treinist meðan. Þú flytur á einum, eins og ég, allra seinast héðan. Hún hefur verið eignuð Bólu-Hjálmari og er meira að segja prentuð í ljóðmælum hans, gefnum út af Menningarsjóði: íslenzk úrvalsrit. 1942. En í bókaflokki: — Menn og minjar —, 4. hefti, er þáttur um Einar Andrésson í Bólu. Fyrir þætti þess- um er inngangur, eða formálsorð, eftir Halldóru, dótt- ur Einars, skrásett af Ingvari Brynjólfssyni, mennta- skólakennara. Úr kafla þessum tek ég hér orðrétt eftir- farandi: „Ég man þá tíð, að ekki allfáir kunnu kvæði og vís- ur eftir föður minn, og þótti ómaksins vert. Nú eru þeir menn horfnir, og kveðskapur föður míns alþjóð gleymdur. Þó hefur ein af ferskeytlum hans þraukað til þessa á vörum almennings, ein af 22 vísna-bálkinum: — Tveir menn á ferð —, vísan, sem lengi var óréttilega eignuð Bólu-Hjálmari og meira að segja prentuð oftar en einu sinni í kvæðabók hans. Vísan — og allur vísnabálkurinn — er tekinn beint upp úr eiginhandriti föður míns, og fer því ekki mála milli með höfundinn.“ Það er talið, að Bólu-Hjálmar sé fæddur 6. febrúar 1796, en dáinn 5. ágúst 1875. En Einar Andrésson er fæddur 28. okt. 1814 og dó 2. júní 1891. A þessu sést, að báðir hafa verið uppi samtímis, sem fulltíða menn, um 40 ára tímabil. Einnig bjuggu þeir á sömu jörðinni, Bólu í Skagafirði, nær samtímis, því um 1839—40 fer Bólu-Hjálmar frá Bólu, en Einar Andrésson flytur þangað um 1844. Þegar þetta er athugað ásamt því, að báðir vóru skáldmæltir, var það ekki svo undarlegt, að vísan var eignuð Bólu-Hjálmari, því á þeim tíma var hann tal- inn mesta skáld Skagfirðinga. Einnig er það ekki svo óverulegur þáttur í þessu tilfelli, sem gat verið meira að segja aðalorsök í þess- um ruglingi, að báðir voru kenndir við Bólu. Að endingu skal þess getið, að vísunnar er getið í Bólu-Hjálmarssögu, er Símon Dalaskáld safnaði til, en Brynjólfur frá Minna-Núpi skráði. Þar er sagt, að vísan sé eftir Einar Andrésson, en eignuð Hjálmari, en það sé ekki rétt. Árið 1941 komu út: Sagnaþættir úr Húnaþingi eftir Theodór Arnbjörnsson frá Osi. Og eru það sagnir af Þingeyrarfeðgum og sagnir af Vatnsnesi. Þar er birt ljóðabréf frá Sigurði Ólafssyni í Katadal til Þorbjargar Halldórsdóttur, konu hans. Og mun það ort veturinn 1834—35. En þá var Þorbjörg í fangahúsi úti í Danmörku fyrir grun um vitorð í morðmáli Natans Ketilssonar. Bréf 360 Heima er bezt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.