Heima er bezt - 01.11.1956, Qupperneq 42
382
Hofskirkja.
Nr. 11-12
Heima
---er bezt
ekki breiðari en það, að þær teygðu sig báðar og réttu
skeiðina milli sín yfir ána, og þess vegna hlaut áin
nafnið Skeiðará, segir þjóðsagan.
Að austan er Breiðamerkursandur, eins og áður er
sagt. — Hann er nær 45 km. milli byggða, en vestan
til á sandinum er þó býlið Kvísker (sumir: Tvísker).
Eru nær því 15 km. frá Hnappavöllum að Kvískerjum,
en um 30 km. frá Kvískerjum yfir sandinn að vestasta
bæ í Suðursveit, Reynivöllum. Er býlið Kvísker eins
og „óasi“ eða vin í eyðimörkinni, og hefur margur
ferðamaðurinn komið þangað þreyttur af sandinum og
þegið góðan beina. A Breiðamerkursandi var mikil
byggð að fornu. Þar var býlið Breiða, er Kári Söl-
mundarson bjó á eftir heimkomu sína frá útlöndum.
Fleiri bæjarnöfn eru þekkt á Breiðamerkursandi.
Þótt Öræfin séu heil sveit, þá eru þar aðeins 8 jarðir.
En á þessum 8 jörðum hafa þó jafnan verið 27—30
heimili eða búendur.
í flestum sveitum er algengast, að á hverri jörð sé
aðeins einn búandi eða tveir, en í Öræfum er marg-
býlt á sumum jörðunum. í Skaftafelli eru t. d. þrír
bæir. Á Hofi eru sex eða sjö bæir og á Hnappavöllum
6 bæir.
Bæirnir á Svínafelli, Hofi og Hnappavöllum standa
í heiðarslakka eða grunnu dalverpi í skjóli við axla-
breið fell, sem hafa hrint af sér gosstraumunum og
verndað bæina. — Fyrir 10 árum voru flest bæjarhúsin
í gamla stílnum, með timburgafla eða burstir, sem
sneru niður að þjóðveginum. Túnin liggja saman, og
útihúsin standa á dreif um túnin. — Mig minnir, að
ég teldi á Hofi um 30 útihús á dreif um túnin.
Beitilandið er á fellunum við jökulræturnar, en engj-
arnar liggja niðri á söndunum, og eru leifar af hinni
frjósömu byggð, er þar lagðist í auðn.
Vestasta og innsta jörðin í Öræfum heitir Skafta-
fell. — Þar eru þrír bæir. Fyrir tveimur til þremur
mannsöldrum voru bæirnir í Skaftafelli niðri á lág-
lendinu við Skeiðará, en í stórflóðum braut áin stöðugt
landið, og fór svo að lokum, að flytja varð bæina upp
í skógi vaxna heiðina fyrir ofan. Aðeins eitt tóttar-
brot sézt eftir af bæjarrústunum, en gróðurlendi allt
hefur stórfljótið hrifið burt með sér. — Uppi í skógi
vaxinni hlíðinni hafa smátt og smátt verið ræktuð all-
stór tún, en víða sjást birkihríslur á stangli um túnin.
Við túnið á Skaftafelli er yndislega fallegt, skógi
vaxið gil, og fellur eftir því silfurtær bergvatnsá, eða
lækur, er myndar þar fagran foss. Mikill og fagur
skógargróður er í gilinu.