Heima er bezt - 01.11.1956, Síða 53

Heima er bezt - 01.11.1956, Síða 53
Nr. 11-12 Heima 393 -----------------------------------------er bezt ------------------------------------- sagði mamma hennar vingjarnlega. Hún var lítið eitt farin að grána á hár, en var enn ungleg í andliti. Pabbi hennar ýtti til hennar stóli og sagði: „Nú hafið þið víst getað masað nóg og borðað einhver ósköp af kökunum." „Já, dálítið,“ svaraði Jóhanna. „En heyrðu, mamma: Hvernig fannst þér blússan hennar Lilju?“ Mamma hennar viðurkenndi, að hún hefði ekki veitt henni verulega athygli, en hún hefði víst verið reglu- lega snotur. „Nei, — að þú skulir geta sagt þetta! Eins og hún fór Lilju illa. Brúnt er heldur alls ekki hennar litur.“ „Mér finnst þær Nanna og Lilja reglulega snotrar stúlkur, og þær munu fríkka með aldrinum, sérstak- lega Nanna,“ sagði Karl. „En hver spilaði svo vel á píanóið?" „Auðvitað Jenný,“ greip Sesselja fram í. „Sjáðu nú til, bróðir. Hún finnst mér svo lagleg. Andlitið hlýlegt og greindarlegt, en glettnin og kersknin logar í aug- unum.“ „Já, hún er dálítið ódæl og glettin, en það kemur af því, hve hún á slæmt heimili. Hún talar raunar aldrei um það beint, en oft er hægt að merkja það á tilsvör- um hennar. Já, þið ættuð að sjá hana, þegar hún er að stríða Andrési og glettast við hann. Andrés er þessi skrítni bróðir þeirra Nönnu og Lilju.“ „Já, hún er alveg einstök,“ sagði pabbi Jóhönnu hlæj- andi. „Hvort þykir þér vænna um Nönnu eða Lilju?“ spurði Sesselja. Jóhanna svaraði samstundis: „Nönnu, vitanlega, því að hún er góð við Jennýju, en Lilja getur aldrei þolað hana.“ „En þú getur þolað Jennýju,“ sagði Karl og kleip systur sína í eyrað. „Þú beinlínis dýrkar hana. Jóhanna roðnaði upp undir hársrætur. „Hvað er þetta, stúlka mín? Þú roðnar, eins og ég væri að stríða þér með ungum pilti, — t. d. bróður Nönnu og Lilju. En þetta er nú bara lítil stúlka. Það ætti ekki að vera hættulegt.“ Jóhanna vildi heldur tala um annað. „Við fáum nýja stúlku í skólann á morgun. Hún á að sitja hjá Jennýju. Þar var autt sæti.“ „Nú, — það er víst dóttir nýja sýslumannsins. Hann er víst ágætur maður,“ sagði pabbi Jóhönnu. En hvað það er leiðinlegt fyrir Jenný að fá nýjan nemanda í sætið hjá sér. Þeir eru alltaf fyrst svo var- kárir og hlýðnir. Sesselja var sjálf nýsloppin úr skóla, svo að hún skyldi þetta allt svo vel.“ „Feimnin rýkur nú fljótt af henni við hliðina á Jennýju,“ sagði frúin brosandi. Svo bætti hún við og leit á Jóhönnu, um leið og hún faldi geispa með hægri hendinni. „Farið nú að hátta, börnin mín. A morgun er nýr dagur.“ Jóhanna hlýddi og stóð strax upp, — þannig var hennar eðli. — Hún tók saman dót sitt, bauð öllum góða nótt með kossi og gekk svo upp til herbergis síns. Rétt á hæla henni kom Sesselja systir hennar, en fór sér þó hægar. Þegar Jóhanna hafði afklæðzt, leit hún í spegilinn. Fallegu, nýju náttfötin hennar fóru henni vel. Hún var eins og stór, velklædd brúða. Um leið og hún lagðist út af, byrjaði hún að þylja úr lexíunni um Ítalíu: Lago de Como, Lago de Maggiori, Lago de Garda.... í svefnherbergi systranna, Nönnu og Lilju, var allt á tjá og tundri. Var það aðallega sök Nönnu. Hún sat á rúmstokknum og var að setja pinna í hárið. Hún lék með stígvélin laus á tánum. Lilja var að slétta kraga og ermalíningar á blússunni sinni, sem hún ætl- aði að vera í næsta dag. Henni hraut ekki orð af munni. Á stól í miðju herberginu lá opin landkortabók. Syst- urnar höfðu þann slæma vana að vera allt af að grípa í að lesa, en luku aldrei við námsefnið, fyrr en í ótíma. Nú hafði Nanna lokið sínu verki, og um leið sparkaði hún af sér skónum, svo að sinn flaug í hvora átt. Önnur stóra táin gægðist þá fram úr sokknum. „Það er gat á öðrum sokknum þínum,“ sagði Lilja. „Tvö göt,“ sagði Nanna ófeimin, ef þú vilt endi- lega vita það,“ — og um leið teygði Nanna fótinn í áttina til Lilju. Henni fannst sjálfsagt, að sú, sem sá um þvottinn, stoppaði í götin — en oftast var það mamma hennar —, en sjálf hafði hún engar áhyggjur af þessum götum. Ekki höfðu þær systur neitt samlitt stoppugarn, en Lilja fann þó langa stoppunál og fór að stoppa í götin með grænum enda. „Þetta sést ekki niðri í skónum,“ sagði Nanna, og Lilja leit sömu augum á málið. Innan klæða voru allar flíkur Nönnu í sama ástandi. Hún hafði farið í undir- kjólinn öfugan, og annar hlýrinn var slitinn. Spenn- an var dottin af öðru sokkabandinu og öryggisnæla í staðinn. En þetta voru nú allt smámunir. Á meðan Lilja var að stoppa, brauzt út innilokuð gremja, sem hún hafði alið með sér allt kvöldið. „Aldrei get ég skilið það, hvers vegna ykkur finnst öllum Jenný svo skemmtileg," byrjaði hún og varð um leið eldrauð í framan. „Hvað sjáið þið við hana? Ég þoli ekki þennan ófyrirleitna svip á henni, og hún leifir sér að segja, hvað sem henni sýnist. Þú og Jóhanna hlæið að öllu, sem hún finnur upp á. Jóhanna sýnilega tilbiður hana. Mér fannst það skammarlegt, hvernig hún lét í kvöld við Andrés bróður. Hún hafði hann fyrir fíf].“ „Ojæja,“ sagði Nanna. Þetta mál höfðu þær oft rætt og aldrei orðið sammála um. „Hún meinti ekki neitt illt með þessu, — en svona er hún. Erugóði Guð! Andrés getur líka verið frámunalega skrítinn og vandræða- legur. Hann er þó alveg tilvalinn til að láta hæðast að sér. Jú, vissulega er hann bróðir minn, og mér þykir reglulega vænt um hann, því að hann er bezti strákur, — en ég hlýt þó að taka eftir því, hve kjána- legur hann er, ef stúlkur eru með. Ég er alveg hissa,

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.