Heima er bezt - 01.11.1956, Síða 55

Heima er bezt - 01.11.1956, Síða 55
HÉR EIRTIST ÁTTUNDI HLUTI AF HINNI SPENNANDI FRAMHALDSSÖGU ÓBOÐNIR GESTIR EFTIR JOSEPH HAYES E1 n þó þótti honum vænt um, að Robish skyldi hafa hana. Hann vissi, að hann kunni að beita j hnefunum og hafði lengi haft hug á að lumbra á honum. Ef Robish kæmi svo nærri, að hann gæti sligað hann með öllum þunga sínum, þá var að vísu ólíklegt, að hann gæti greitt gott högg. En ef hann hefði handleggina frjálsa, þá gat hann gert að honum slíka Ieifturárás, að hann áttaði sig ekki á neinu fyrr en um seinan. Honum var ljóst, að hann kunni ekki fyrir sér að neinu leyti nema þessu. Hann kunni að slást. Hann hafði líka alltaf talið það nokkurs virði. Nú---- Augu hans hvörfluðu aftur til stúlkunnar. Hún horfði á föður sinn. Hann minntist þess, hvernig hún hafði sagt í gærkveldi: Þakka yður fyrir, herra Griffin. Með- aumkunarsvipurinn á andliti hennar gerði hann nú sár- hryggan. Hann varð þess var, að hann tók andköf. Þegar Dan Hilliard sagði: „Ég skal koma bílnum í fljótið fyrir yður, Griffin, ég þekki rétta staðinn,“ fann Hank aftur til þessa tómleika og ógleði. Hann gat ekki horft af stúlkunni, endaþótt hún væri raunar upp- spretta allra hans þjáninga. Það er eins og ég hafi kosið mér þessa þjáningu, hugsaði hann. Og það var engu h'kara en hann hefði aldrei fengið að þjást á þennan hátt fyrr — vegna stúlku. Hann hafði þráð þessa kvöl. „Ef þér komið heiðarlega fram við mig, mun ég gjalda í sömu mynt,“ sagði Glenn við Hilliard. Heiðarlega! Heiðarlega! Og þú ætlar þó að fara með konu hans með þér og hafa barn hans sem skjöld! Þetta var ekki í fyrsta skipti, sem Hank hataði bróður sinn, en nú fann hann í fyrsta skipti til grimmilegs ofsa gegn honum. Glenn var eina manneskjan, sem hafði sýnt honum hlýju og eitthvað hafði kennt honum um lífið hér í heimi. Glenn hafði verndað hann gegn fyrirlitningum drukkinnar móður hans og rustahætti ofsafengins föður. Þrátt fyrir þetta hataði Hank hann nú. Það gilti einu um tillit það, sem hann sýndi hon- um, og þá vináttu, sem hann jafnvel bar enn í brjósti til hans. Er Hank Griffin hafði gert upp við sig reikn- ingana, gleymdi hann öllu öðru, jafnvel ótta þeim, er stafa kynni af lögreglunni.... eða öðru, sem gerast kynni næstu stundirnar.... Jessi Webb hafði nú lokið rannsókn á því, hvar hús þau myndu vera, sem Patterson hafði komið til um morguninn. Hann hafði nú að minnsta kosti skrá yfir það fólk, sem ritað hafði ávísanir til Pattersons og greitt honum þannig fyrir hreinsun á görðum. Rétt var að gera ráð fyrir því, að þeir, sem greiddu í reiðu fé, ættu heima í grendinni. Hann hafði gert rauðan hring á kortið, og innan hans voru tíu húsaraðir með e. t. v. nokkur hundruð fjölskyldum, þrjár verzlanir og nokk- ur óbyggð svæði. Heima er bezt 395

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.