Heima er bezt - 01.04.1958, Qupperneq 8
ágætt safn fugla, og hefur Kristján sett það upp að
mestu. Aleð geirfugli Jóhannesar er gerviegg og hreið-
ur úr þangi. Telur Kristján hann enn betri hinum fvrri.
A4unu þetta vera einu geirfuglalíkönin, sem búin hafa
verið til á þennan hátt, og er þetta gott dæmi um hug-
kvæmni Kristjáns.
Þá eru á safninu allmörg spendýr: selir, refir, rottur,
mýs, snæhéri, nefdýr, hreisturdýr, greifingi, jagúar,
fjórir apar o. fl. Alerkilegastur gripur af því tæi er áreið-
anlega skoffínið, þ. e. blendingur refs og hunds, sem að
minni hyggju mun vera hinn eini, sem til er í söfnum
um heim allan. Nokkur ágætlega upp sett dýrahöfuð
eru þarna, t. d. hreindýr, hafur og geit og ferhyrndur
hrútur. Hauskúpur eru þarna af sauðnautum, rostungi
o. fl. spendýrum. Þá er dálítið af dýrum geymt í vín-
anda. Fallegt safn er þar af fiðrildum frá Brazilíu, og dá-
lítið sýnishorn af íslenzkum skordýrum, sem fengið er
frá Hálfdani Björnssyni á Kvískerjum, en hann hefur
lagt mikla stund á söfnun íslenzkra skordýra og er
manna fróðastur um þau. Dálítið steinasafn er þarna,
senr Kristján safnaði í Grænlandi, og nokkrir íslenzkir
steinar.
Safnið er að vísu ekki stórt, en handbragðið er frá-
bært, og þegar þess er gætt, að það má kallast allt verk
eins manns, sem unnið hefur að því í tómstundum, þá
vekur það furðu manns og aðdáun. En auk starfa sinna
Efst: Safn af andarungum (dúnungum).
Til vinstri: Seinustu handtökin. Vafning-
ur tekinn utan af fuglinum þurrkuðum.