Heima er bezt - 01.04.1958, Blaðsíða 17
PÆTTIR ÚR VESTURVEGI
eftir Steindór Steindórsson frá Hlöðum
LOKAÞÁTTUR
/ amerískum skólum.
/'
-rUNDANFARANDi þattum hct ég litla grein gert
fyrir heimsóknum mínum og kynnum af skólum í
Ameríku, en kalla má að einn meginþáttur ferðar
JLminnar væri að heimsækja skóla, hlýða kennslu og
kynnast starfsemi þeirra. Einkum kynnti ég mér þó það,
er laut að kennslu í náttúrufræði. Áð vísu varð mér tíð-
förulla í háskóla en aðra skóla, því að þar gafst mér
tækifæri til að hitta grasafræðinga og ræða við þá um
ýmis þau viðfangsefni, er mér voru hugleiknust. En
í flestum bæjum, þar sem ég á annað borð hafði nokkra
viðdvöl, heimsótti ég High schools, sem að nokkru
leyti svara til menntaskóla hér á landi, enda þótt efstu
bekkir menntaskólanna hér svari nánar til Junior Col-
leges, sem eru fyrstu háskólaárin þar vestra. En þar
sem heimsóknirnar voru um margt líkar, hvar sem ég
kom, hef ég kosið að skýra frá þeim í einu lagi hér
í lokaþætti.
High schools, framhaldsskólamir amerísku, eru
ýmist fjögra eða sex ára skólar, og dveljast þá ungling-
ar í þeim frá 14-17 eða 12-17 ára aldurs. Fjögur síð-
ustu árin eru vart meira en 2—5 námsgreinar skyldu-
greinar í hverjum bekk, en ásamt þeim fleiri eða færri
valfrjálsar greinar. Frjálsu greinarnar eru vitanlega því
r fleiri, sem skyldugreinarnar eru færri. í sumum skól-
um, sem ég heimsótti, voru aðeins enska og saga
Bandaríkjanna skyldugreinar efstu bekkjanna, sem
allir urðu að taka þátt í. En þetta eitt út af fyrir sig
setur allmjög annan svip á skólana en þann, sem vér
eigum að venjast hér heima.
En auk námsgreinanna leggja allir skólar þar mikið
kapp á að hlynna að hinni frjálsu tómstundavinnu nem-
enda. í hverjum skóla gefast nemendum mörg færi á að
stunda ýmisleg hugðarefni og störf önnur en þau, sem
til námsgreinanna teljast. Til slíkra starfa teljast meðal
annars nemendaráðið, sem er einskonar sjálfsstjórnar-
ráð nemenda, er hefir á ýmsan hátt áhrif á stjórn og
störf skólans, einkum í sambandi við aga og reglu, þá
má telja æfingar skólaleikja, hljómsveita, söngflokka,
útgáfu skólablaða og handbóka um skólalífið, almennar
skólaskemmtanir o. s. frv. Leggja skólarnir nemendum
Iið í hvívetna í slíkum störfum. Auk þessa eru síðan
alls konar klúbbar og félög, sem leggja stund á ýmsar
sérgreinar, bæði kennslugreinar og annað; má þar nefna
tungumál, náttúrufræði, stærðfræði, listir, söng, hljóm-
Iist o. fl., auk allra íþróttafélaganna, sem eru geysi-
mikill þáttur í lífi og starfi hvers skóla. Klúbbar þessir
starfa að öllum jafnaði undir eftirliti og umsjá kenn-
ara, en skólastjórnin sem heild fylgist mjög nákvæm-
lega með störfum nemanda á þessum sérsviðum, og
hljóta þeir vitnisburði fyrir starfsemi sína í þessum
tómstundaklúbbum, og eru þeir taldir sízt minna virði
en hinar eiginlegu einkunnir, þegar um er að ræða
háskólanám eða meðmæli til starfa. Allir skólamenn,
sem ég átti tal við, voru á einu máli um mikilvægi þess,
að nemendur fengjust við slík félags- og tómstunda-
störf, og töldu þau nauðsynlegan lið í því starfi og meg-
instefnu skólanna, að ala upp nytsama borgara og góða
þjóðfélagsþegna. En það telja Bandaríkjamenn aðal-
mark skólanna, er allt starf þeirra verði að miðast við.
Meðal annars af þeim sökum er þjóðfélagsfræði ein
meginnámsgrein hvers skóla. En undir þá grein virtist
mér þeir heimfæra nær allt milli himins og jarðar, sem
snert getur líf manna og störf í þjóðfélaginu. Gat ég
naumast að því gert, að mér þótti sumt, sem þar var á
borð borið hálf barnalegt, og lét í ljós undrun mína
yfir því, hversu miklum tíma væri varið til þessara
fræða. En fékk það svar, þetta er okkur nauðsynlegt
til þess að bræða saman allar þær ólíku þjóðir, sem hér
eru saman komnar. Og ekki verður því neitað, að það
starf hefir tekizt furðu vel.
Og víst er um það, að innan margra skóla hefir með
hinu frjálsa félagsstarfi nemenda tekizt að skapa undra-
verðan aga og reglu, með því einu að ala upp metnað
og drengskaparkennd nemendanna sjálfra, í stað boð-
orða og banna. Má að nokkru leyti segja, að nemendur
séu sjálfir sínir eigin eftirlitsmenn. Hefir víða tekizt
að ala upp svo einlæga virðingu fyrir reglum skólanna,
að þeim, sem þær brjóta, verður ekki við vært í skól-
anum sakir almenningsálits nemendanna. Brottrekstrar
Heima er bezt 127