Heima er bezt - 01.04.1958, Side 18

Heima er bezt - 01.04.1958, Side 18
og rektorsáminningar verða þar óþörf, og getur eng- um blandast hugur um að slíkt er vænlegt til að ala upp manndómsþroska og þegnskap. Á þetta við bæði um framhaldsskóla og háskóla. Þannig var mér tjáð í Stanford-háskóla sem dæmi, að notkun óleyfilegra hjálpargagna eða smygl í skriflegum prófum væri óþekkt fyrirbrigði að kalla mætti, ekki vegna eftirlits kennaranna, heldur vegna þess, hversu vel nemendur gættu drengskaparskyldu sinnar, að nota ekki óleyfileg ráð sér til framdráttar. Mætti vel taka sér þessa hluti til fyrirmyndar, og mundi það í senn gera skólavistina notadrýgri og stjórn skólanna léttari en nú er. Umgengni í skólum þeim, sem ég heimsótti, virtist mér hvarvetna svo góð, að til fyrirmyndar væri. Bréfa- rusl og óhreinindi á gólfum sást ekki, og krot á borð- um og bekkjum var sjaldgæft fyrirbrigði, og í mörgum skólúm var það alls ekki til. Þó voru kennslustofur almennt stærri og fleiri nemendur í bekk en tíðkast hér heima. Voru þar víða um 40 nemendur í bekksögn. Var það almennt umkvörtunarefni kennara, að of margt væri í bekkjunum, en þrátt fyrir auð og allsnægtir Bandaríkjanna virtist víða skorta á, að skólum væri séð fyrir nægilegu húsrými, og almennt var kvartað um kennaraskort. Orsakir hans töldu menn, að yfirleitt eru kennarar illa launaðir í hlutfalli við aðrar stéttir manna, og síðan verður afleiðingin sú, að torvelt er að fá hæfa menn til starfsins, og er þetta mörgum áhyggjuefni. Kennsluaðferð virtist mér allmjög frábrugðin því, sem títt er hér og á Norðurlöndum. Kennarar hafa all- an bekkinn undir í einu, ef svo mætti að orði kveða, en taka ekki einstaka nemendur upp. Verður kennslan með þessum hætti að verulegu leyti í samtalsformi. Kennarinn beinir þessari spumingu til eins nemanda og næstu til einhvers annars, en nemendur spyrja einnig, og var stundum meginhluta kennslustundarinnar varið til þess, að nemendur spurðu kennarann um ýmsa þá hluti, er við komu efni því, sem um var að ræða. En mjög var misjafnt, hversu nemendur hagnýttu sér það. Þar sem æfingakennslu verður við komið, er hún megin- uppistaðan í kennslunni, og dáðist ég að mörgu, sem þar fór fram. Þekking nemanda er síðan prófuð skrif- lega. Átti ég þess kost að vera við skriflegar æfingar og sjá bæði verkefni og úrlausnir. Ekki get ég sagt, að mér geðjaðist að hinum skriflegu verkefnum; þótti mér þau um of getraunakennd, og geta gefið tilefni til páfa- gaukskunnáttu meira en skilnings. Fann ég á ýmsum kennurum þar, að þeim þótti orðið of langt gengið í þá átt, og töldu ýmsir þeirra, sem til þekktu í Evrópu, að margt mundi vera betra í kennslufyrirkomulagi okkar. Og öllum var sameiginlegt, að þá fýsti mjög að vita, hvernig við gerðum þessa hluti eða hina eftir því, sem á stóð hverju sinni. Hafði ég mikla ánægju af samtölum við starfsbræður mína þar vestur frá. Nemendur virtust mér frjálslegir og kurteisir, eins og Ameríkumenn yfirleitt. Sennilega eru þeir vanir heimsóknum aðkomumanna, enda fann ég, að þeir litu á mig eins og kennara sína og spurðu mig ráða í æf- ingartímum, rétt eins og þá; hafði ég gaman af, hversu ófeimnir en um leið háttprúðir þeir voru. Klæðnaður nemenda í amerískum skólum, jafnt háskólum sem öðr- um, var mjög óbrotinn. Næstum því hver maður var í vinnubuxum, gráum að lit, og á skyrtunni eða í peysu, oft með skólamerki í, og þegar kólna tók, klæddu þeir sig í úlpu utan fyrir. Er búningur þeirra í senn ódýr og hreinlegur, því að létt er að halda þessum fötum hreinum. Væri athugunarvert fyrir íslenzka skólanem- endur að taka sér þetta til fyrirmyndar. Þá vil ég lýsa stuttlega heimsóknum í tvo skóla, sem um margt voru sérkennilegir, en báðir taldir til fyrir- myndar. Annar þeirra var Woodrow Wilson High- School í Washington, D.C. Skóli þessi, sem einungis er um 20 ára gamall, stend- ur í útjaðri borgarinnar. Er hann um marga hluti einn af bezt búnu high schools í Bandaríkjunum, að því er skólastjóri sagði mér. Nemendur eru þar 12-1300. Mér blöskraði stærð hans og húsakostur, en þó var mjög kvartað undan plássleysi. Skólastjórinn tók þar á móti mér og skýrði fyrir mér megindrættina í starfi og fyrirkomulagi skólans og fylgdi mér síðan á fund náttúrufræðikennaranna. Hlýddi ég þar á kennslu hjá þremur keruiurum, þar af tveimur konum. I kennslu- stofunum var svo fyrirkomið, að með veggjum voru borð og skápar, voru þar geymd kennslutæki og nátt- úrugripir, og á borðunum voru ný söfn dýra og plantna, sem nemendur höfðu komið með heim daginn áður, og ekki hafði enn unnizt tími til að vinna úr. í hverjum bekk voru um 40 nemendur, og sátu þeir við langborð, 6-8 við hvert borð, en stofur þessar eru not- aðar jöfnum höndum við bóknám og æfingakennslu. I einum tímanum var verið að byrja á smásjáræfing- um. Hver nemandi fékk afhenta smásjá af vandaðri gerð, enda flestar nýjar. í öðrum skólum, sem ég kom í, voru að jafnaði 2-4 nemendur um hverja smásjá. Kennslan hófst með því, að kennarinn skýrði fyrir nemendum gerð og notkun smásjárinnar. Síðan skyldu þeir, hver um sig, teikna af henni rissmynd og skýra hana. Þá fengu þeir einnig tilbúin verkefni til að skoða í smá- sjánni, og skyldu þeir einnig skila af þeim teikningum með viðeigandi skýringum. En veggmyndir voru þeim til hjálpar, svo og texti kennslubókarinnar, sem hver nemandi hafði hjá sér. Fæstir nemendanna komust lengra í þessum tíma, en að ganga frá teikningu og skýringum á smásjánni. Voru þær úrlausnir næsta mis- jafnar, eins og vænta mátti. í annarri kennslustund voru nemendur að kryfja engisprettu, og gera af henni viðeigandi lýsingu með teikningum. Hafði hver nemandi vélritað blað með spurningum og verkefnum um engisprettuna, sem leysa skyldi úr eftir því, sem verkið sæktist. Úrlausnum frá þessum æfingatímum var skilað vikulega, svo ég átti þess ekki kost að sjá þær þarna, en í öðrum skóla skoð- aði ég svipaðar úrlausnir, og var raunar ekki hrifinn af, hversu þær höfðu tekizt í heild. Svo að ég sann- færðist ekki í einu vetfangi um, hversu mikið þessi kennsla skilur eftir. En hitt er víst, að hún er skemmti- leg og vekjandi til umhugsunar. 128 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.