Heima er bezt - 01.02.1968, Side 6
Ólafur fjölskylda.
Helgi og fjölskylda.
Aslaug og Jón Pálsson. Myndin tekin árið 1946
af Sigriði Zoega.
og snemma liðtækur við heimilisstörf. Léttlyndur og
lá ekki á liði sínu. Enga fræðslu hlaut Páll í æsku um
fram það sem tilskilið var til fermingar, enda fræðslu-
öld ekki runnin á Islandi og engin fræðslulög til. Þeg-
ar Páll hafði dvalið á heimili foreldra sinna 23 ár, kvænt-
ist hann haustið 1886 Elínborgu, f. 18. des. 1867 Þór-
eyjarnúpi, V.-Hún., Stefánsdóttur bónda þar, bróður
Halldórs prófasts Hofi í Vopnafirði Jónssonar prests
Höskuldsstöðum Péturssonar og k. h. Gróu Sveins-
dóttur bónda Forsæludal Ögmundarsonar. Fóru þau að
leita fyrir sér um jarðnæði. Áttu kost á að fá Þórgríms-
staði í Breiðdal en þar var svo „vel hýst“ að kaupa varð
jarðarhús fyrir 200 kr. Það verð var ofvaxið efnahag
ungu hjónanna. Þá var og á boðstólum Víðilækur í
Skriðudal. Þar var húsakostur lélegur og lítið álag jarð-
arhúsa. Vorið 1887 fluttu þau Páll og Ehnborg að Víði-
læk með kú og kvígu, 2 hross og trippi, 36 ær og 12
gemlinga og mjög fátæklega búshluti. Bjuggu þarna 4
ár og „græddu á tá og fingri“, eins og Páll orðaði það
42 Heima er bezt