Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1968, Qupperneq 29

Heima er bezt - 01.02.1968, Qupperneq 29
 ★ ★★*★★★**★*★★**★****★**★*★★**★* Hermennirnir fóru yfir að Kálfskinni og leituðu þar vel og vandlega, en komu svo yfir aftur. Sveinn bóndi hefði gjarnan viljað bjóða þeim upp á kaffi, en kaffið var skammtað eins og annað og entist illa. Auk þess hafði hiti hlaupið í seinustu brennsluna, og kaffið því nær ódrekkandi síðan. Ekki var þó talað um að henda því. Á Hamri var engu matarkyns fleygt, sem hægt var að leggja sér til munns. Hermennirnir spjölluðu glaðlega saman og horfðu hlæjandi upp til fjallanna. Þeir töldu algjöran óþarfa að leita frekar í þessari vík, fjöllin myndu sjá fyrir þeim sem þar héldu til. Krakkarnir horfðu forvitin á þessa ókunnu skrítnu menn, sem áttu nóg af súkkulaði og brjóstsykri. Einn mannanna hafði lokkað Sólveigu litlu til sín með stóru súkkulaðistykki og sat nú með hana á hesta- steininum og talaði við hana á framandi tungu. Þetta var ungur maður, svarthærður og brúneygður, hár og myndarlegur. Telpan ljómaði í framan yfir gjöf- inni og vissi varla, hvort hún ætti að tíma að bíta í súkkulaðið eða ekki. „Ég á líka, líka namm,“ sagði hún í stríðnistón við Árna bróður sinn, sem stóð rétt hjá þeim með opinn munninn fullur af öfund og boraði í nefið á sér í vandræðum sínum. Enginn hafði gefið honum neitt enn þá, hin voru öll búin að fá gott. Strákurinn tví- steig og gaut augunum á mennina til skiptis. Sá hann enginn, eða hvað? eða var það af því að hann var ljótastur allra krakkanna, að enginn leit við honum? Loks stóðst hann ekki þessa þrekraun lengur, tárin fóru að hrynja ofan með nefinu á honum. „Árni er að grenja,“ sönglaði Sóley og benti ókunna manninum á bróður sinn. Maðurinn horfði undrandi á drenginn, en svo skildi hann hvað var að. Hann dró upp súkkulaðibút og rétti Árna. Árni saug upp í nefið, þurrkaði sér á óhreinni peysuerminni og leit með innilegu þakklæti á stóra manninn ókunna, sem klappaði honum hressilega á snoðklipptan kollinn. Það var eins og hann gæti ekki haft augun af Sóley litlu. Svo dró hann upp veski sitt, tók upp úr því mynd og sýndi krökkunum tveim. „Nei, sko fallegu dúkkuna,“ sagði Sóley og horfði á litla stúlku, og svo sannarlega var hún lík dúkku. Hárið var í hringuðum lokkum kringum litla fallega andlitið. Hún var í hvítum víðum kjól og í hvítum sokkum og skóm. Vala gat ekki stillt sig um að skoða myndina líka. Maðurinn mátaði með hendinni hvað telpan væri stór, hún væri aðeins minni en Sóley. Brosið á andliti ókunna mannsins varð dapurt. Hann tók myndina, horfði ástúðlega á hana og stakk henni svo í veskið sitt aftur. Augu Völu fylltust tárum. Hún flýtti sér inn og lagðist upp í rúm. Hvers vegna var heimurinn svona hræðilegur. Hvað áttu menn eins og Úlli og þessi ókunni maður sökótt hvor við annan. Hvers vegna voru þeir óvinir og áttu að drepa hvor annan? Hver réð þessu öllu, gat það verið Guð? Hvers vegna lét hann þetta viðgang«st? Vala réð ekki við sig. Hún skreið undir sængina og skalf öll af gráti. Þegar hún kom fram aftur og var búin að jafna sig, voru hermennirnir farnir. Henni fannst þungum steini vera létt af brjósti sínu, er hún horfði á eftir stóra gráa herskipinu norður með landinu. Fyrr en varði var það komið í hvarf. Og Úlli enn ófundinn. Pabbi hennar tók hressilega í nefið og sötraði kaffið með háu slokhljóði. Henni fannst hann jafnvel tala hærra en áður: „Bara þeir fyndu þessa nazistakálfa, væru þeir ann- Heima er bezt 65

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.