Heima er bezt - 01.09.1977, Page 6

Heima er bezt - 01.09.1977, Page 6
Efri-Mýrar og peningshúsin. ágætur skrifari og skrásetti því skjöl sín af smekkvísi og vandvirkni. Þótt hér sé þegar svo margt talið af félagsmálum Enghlíðinga, sem þeir hafa kvatt Bjarna til, er þó enn ótalinn sá þáttur þeirra mála, — fjallskilin, — sem hon- um mun hafa verið geðþekkastur, þegar á allt er litið. Hann var þar allt í senn: flestum fræknari leitarmaður, hugrakkur með ágætum, gangna- og réttarstjóri og fjallskilastjóri um fimm tugi ára. Fjallskil eru þraut- hugsaðasta félagsmálaskipan íslendinga, svo föst og forn í sniðum, að enn eru í fullum heiðri höfð þau ákvæði Grágásar, að „þar, sem menn eiga afrétt saman, tveir eða fleiri, þeir skulu .... hafa úr rekið afrétt- inni er fjórar vikur lifa sumars“. Það mun aldrei hafa hvarflað að Bjarna, að færa þessa skipan til „betra máls“. Hann hefur alla sína löngu leitarmannsævi hlakkað til gangnasunnudagsins og þeirra umsvifa, er honum fylgja. Það mun bjargföst trú þeirra er þekkja hann best að þeim önnum mundi þessi þrautreyndi félags- málavinur síst bregðast, enda trúlegt að hann tæki nú heilshugar undir með Höskuldi Einarssyni: Þátttökuna þó að banni þrengdir staðhættir, gleymast ekki gömlum manni gangnadagarnir. Meginhluta þess skeiðs, sem af er þessari öld, hefur Kvennaskólinn á Blönduósi verið í vitund samtíðar- manna viðurkennd mennta- og menningarstofnun, upp- eldisheimili, sem hverri konu yrði þroskagjafi. Sóttu hann ungar konur víðsvegar að. Haustið 1919 kom þangað austfirsk heimasæta 19 vetra, Guðný Ragnhildur Þórarinsdóttir, Jónssonar og Bjami Frimann með folaldið sitt. 282 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.