Heima er bezt - 01.09.1977, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.09.1977, Blaðsíða 13
Ekki man ég eftir öðru heimilisfólki þar en Ólínu og syni þeirra hjóna á fyrsta ári Jóni og Guðríði móður Halls, sem þá var orðin gömul kona. Jón Hallsson hef- ur átt heima á Silfrastöðum nú um mörg ár. Hann hef- ur tekið hestamennskuna erfðum og er vel í blóð borið að fara vel að hestum og ná úr þeim því besta. Hygg ég að ekki sé á neinn hallað þó ég telji hann einhvern mestan hestamann í Skagafirði nú um langt skeið. Frá Brekkukoti fórum við Sigurður heim síðia um kvöldið. Slepptum gráu klárunum okkar ofan við túngarð á Miklabæ, röltum heim með hnakkana á bakinu léttir í lund og vel ánægðir yfir dagsverkinu. Hallur kom með hestana úr tamningunni seinna um sumarið. Skjóni reyndist meðal skeiðhestur en enginn framtaks fjörhestur. Bleikur reyndist öllum góðum kostum vel búinn. Hafði allan gang hreinan, bar sig með ágætum vel og ágætan vilja. Honum var gefið seinnipart næsta vetrar og komið til Bjarna Jóhannes- sonar, „Hesta-Bjarna“ næsta sumar. Bjarni skilaði hon- um hálfum mánuði fyrir göngur um sumarið. Bjarni taldi hann snilldarhest. „Ágætt fjör, mikill tölthestur og gott skeið, reisti sig alveg upp í fang á manni, taum- léttur og allur fjaðurmagnaður.“ Bleikur varð seinna reiðhestur föður míns og hafði hann mikið dálæti á honum. Veit ekki með vissu en held það þó, að það sé fyrir þennan bleika klár, sem ég man svo vel eftir frá æsku- árum mínum að mér hefur alltaf þótt fífilbleiki hrossa- liturinn fallegri en aðrir hrossalitir og sá liturinn skarta best. En það er staðreynd að við höfum átt mörg hross fífilbleik, þar með fífilbleika hesta. Á nú nokkur fífil- bleik hross, sum í ætt við þennan bleika, og einnig af öðrum úrvals hrossakynum svo sem frá Drottningu, Ottós í Víðimýrarseli, sem er verðlaunagripur í allar áttir. ANNAR ÞÁTTUR. Það var í vikunni fyrir jólaföstuinngang á öndverð- um Ýli. Tíð hafði verið góð að undanförnu, þó búið að hýsa sauðfé alllengi. Frost var og freri nokkur á jörð. Héraðsvötnin þó ekki farin neitt að fylla af krapi og auð út í sjó, eða að minnsta kosti það sem til sá frá Miklabæ. Þennan morgun var kaldara útkomu en vant var. Skarpt frost hafði verið um nóttina. Loft var að miklu leyti heiðskírt, skýjamökkurságangur í austurfjöllum. Klósigar víða um íoft, uppgenginn þokubakki til hafs- ins jafnt Tindastóli. Þeytti krummum fyrir héraðinu í suðurátt. Snerpings byljarokur en dúnalogn á milli. Eftir hádegi fór að verða styttra á milli byljarokanna og fór að syrta í lofti. Undir nón skali á austan stór- veður nær óstætt með moldveðurs stórhríð. Við vorum nokkurnvegin rólegir yfir hrossunum úti. Álitum þeim engin hætta búin af því að Vötnin voru auð og ekki kominn burður í þau. Það hrikti í bæjarhúsunum og glumdi tröllslega í fjöllunum er stormurinn og hríðin æddu yfir landið í mik'ium algleymingi. Það var víst flestum nærri hroll- kalt í baðstofunni á Miklabæ í rökkrinu þetta hríðar- kvöld. Móðir mín blessuð hafði fengið okkur Sigurði Einars- syni gamalrolluskinn til að elta. Líklega hefur það átt að vera í bryddingar og þvengi á jólaskó fólksins. Nú fóru að nálgast jól. Allur undirbúningur undir jólin þurfti að vera búinn í tæka tíð. Jón sauðamaður var kominn inn, kominn úr úlpunni og búinn að tína klakastönglana úr skegginu, var að troða tóbaki í pípuna sína, ætlaði að fara að setjast nið- ur og kemba ull fyrir Fríðu vinnukonu, sem þeytti rokkinn af miklu kappi og söng, „Úr þeli þráð að spinna, mér þykir næsta indæl vinna“. Hann sat þar á kvöldin og kembdi ull en hún spann á rokkinn sinn. Þau hafa ef til vill átt þar sína hugarhsima og æfintvralönd, sem aldrei urðu raunveruleg, en aðeins hillingar. Við Sigurður höfðum aðgang allharðan með skinn- ið. Snerum upp á það og teygðum það á milli okkar og tókum sem fastast hver á móti öðrum. Gekk svo til um hríð. Móðir mín kom og hélt að við mundum eyði- leggja skinnbjórinn með þessum aðförum og bað okk- ur að fara vægilega með það. Við höfum sjálfsagt eitt- hvað slakað til á mestu látunum en skinnið var heilt í okkar höndum. Hallgrímur Friðriksson í Úlfsstaðakoti var á Mikla- bæ við smíðar. Hann var að verki í útiskemmu úti á hiaði. Þegar leið á daginn kom Hallgrímur inn frá smíðunum, hélst ekki við úti fyrir kulda og óveðri. Hallgrímur var stilltur maður, gætinn og vel þótti hverju verki borgið, er í hans höndum var. Þegar Hali- grímur var búinn að vera inni stund og reykja pípu sína varð það úr að hann tæki við skinnbjómum af okkur Sigurði. Hann fór að öllu gætilegar en við höfð- um gert, hnuðlaði því saman á milli handa sér og kippti svo úr fellingum. Móðir mín sagði að nú mundi vel fara. Það væri ekki hættan á að Hallgrímur skemmdi skinnið. Ég var að smá gæta að hvernig Hallgrími gengi. Tók ég þá eftir því að það var að rifna í sundur þegar hann kippti því úr fellingunum, og götin voru að verða nokkuð mörg, því mjög stökkt var í gamalærbjórnum. Mér hló nú hugur við er ég sá hvernig komið var. Segi því við Hallgrím: „Þér gengur vel að elta skinnið Hallgr.'mur minn.“ Hann svaraði og horfði á götin: „Ja há, ég er víst búinn að gjöra það ónýtt.“ Það var víst orð að sönnu, en það gjörði lítið til því nóg var til af skinnum á Miklabæ í þá daga. Þar var gnægð af flestu, sem nota þurfti til daglegra þarfa. Við Sigurð- ur vorum víst ekki neitt ókátir yfir þessari útkomu með skinnræfilinn. Hríðin hélst óslitið allan daginn og langt fram á nótt með hamförum og ágangi. Fórum að hátta döpur í bragði út af hrossunum, sem úti voru. Vonuðum þó að ekki yrði slys því það hafði aldrei hent. Veðrið líka svo hart og illt að ófært var talið að vera úti á ferð í Heima er bezt 289

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.