Heima er bezt - 01.09.1977, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.09.1977, Blaðsíða 28
Af fótunum heldur þiggðu lið. Menn halda, jörðin haldi þér, því herra margan hún stærri ber. Hitt sér nú hver með opnum augum, sem ofurlítið hefur vit, að stolin nöfn frá dauðu draugum duga ei til að prýða rit. Haltu við skírnarheitið þitt, hafa láttu hann Óðin sitt. Tiigangur Jónasar með þessum ádeiluskrifum var vit- anlega sá að hleypa nvju blóði í staðnaða ljóðgerð. Það heppnaðist, því í spor hans og Bjarna Thorarensen kom hvert rómantíska stórskáldið á eftir öðu og hreif nýjar kynslóðir með sér, og þá fyrst létu rímurnar und- an síga. Áreiðanlega vógu „svanasöngvar“ Steingríms Thorsteinssonar þar þyngst á metaskálunum, því þeim fylgdu falleg lög sem hljóðfærislaust fólk gat lært og sungið. Hinn einfaldi söngháttur rímnanna átti ekki hvað síst þátt í vinsældum þeirra. Hann var þannig út- færður að áheyrendum gafst tóm til að ''huga erindið sem kveðið var, sem ekki veitti heldur af, því mörg ríman var upp á nokkur hundruð erinda um einhvern riddara eða hetjudáðir manna, — nokkurs konar frum- stæður óperuflutningur. Þótt andstæðingum rímnanna veittist næsta auðvelt að benda á listfræðilega galla í kveðskaparháttum og músík þeirra, gleymdist þeim að meta hve hinn þraut- þjálfaði utanbókarlærdómur hélt huganum vakandi og þroskaði athyglisgáfuna og skyldi eftir frjóan jarðveg jfyrir hina nýju andlegu vakningu. Þá gleymdist ekki síður að meta það hversu loftsýnir hetjufrásagnarinnar héldu bókstaflega lífinu í fólkinu svo það lifði af hung- ur, sjúkdóma og allskyns böl. Enda fór það svo að þeg- ar orrahríðinni út af rímunum slotaði fóru bókmpnnta- menn að meta réttilega kosti og galla rímnaskáldanna, og mörg merkisskáldin tóku sér til fyrirmyndar í vísna- gerð það besta sem Sigurður Breiðfjörð hafði gert á því sviði. Ekkert skáld hefur haft meiri áhrif en hann á al- þýðuskáld og hagyrðinga, nema þá helst Hallgrímur Pétursson. Áhrifa Sigurðar gætir allt fram á þennan dag í allri lausavísnagerð. Haustið verður komið þegar lesendum berst þessi þáttur og það fer vel á því að yfir þeim sé þulin vísa Sigurðar Breiðfjörðs um þennan árstíma. HAUSTIÐ Höfuðin landa hausti á, því heita veðrið dvínar, hrista um jarðar herðar þá hærur gráar sínar. Jurta móðir litarlaus í líkblæunum sefur. Mjólk og blóð í brjóstum fraus, sem börnin vökvað hefur. Rósin mjúka verður veik, í vetra skríður tötra, af lundi fjúka blöðin bleik, berir kvistir nötra. Mæddur þannig maðurinn mænir á efti dögum sínum. Hann er hugþrotinn og harma beygður slögum. Veraldar gæða vonin þver, þó valda kunni hann auði. Til stórræða beinaber bendir manni dauði. Lát, ó, faðir lífsins, þá líknar smyrsli drjúpa vonhungraða öndu á í eymda kafinu djúpa. Lát um síðir lífsins á leifar vorið skína, svo moldar skríði myrkrum frá, og minnstu á sköpun þína. Hvenær tóku íslendinga upp á því að syngja? Söng- fræðjngar eru ekki á einu máli um það. Margir halda því fram að forfeðurnir, landnámsmennirnir, hafi flutt hingað út með sér tvísönginn eða kvintsönginn svo- nefnda. fslenskur hefur hann verið nefndur, þótt ætt- aður sé frá Skandinavíu eða Evrópu, því í dag þekkist hann hvergi nema hér. Söngfæðingum finnst því rétt- mætt að eigna okkur hann á sama hátt og tunguna sem við tölum, og þeir færa sterk rök fyrir sínu máli. Enn aðrir söngfræðingar halda því fram að forfeðurnir hafi ekkert kunnað í söng nema galdragól og sé ljúflings- lagið betir hliðin á særingarþulunum. Ljúflingur merkir álfur og í fornum skræðum má lesa það að þeir kunnu ýmislegt fyrir sér í galdradómum, ekki einasta hér á landi heldur út um alla Evrópu. Þegar nútímafólk tal- ar um ljúflingslag á það við fallegan söng sem unun er á að hlýða. Og það er það sem Guðmundur skólaskáld meinti þegar hann orti neðanskráð ljóð. Björgvin Guð- mundsson hefur samið við það fallegt lag eins og reynd- ar við fleiri af ljóðum Guðmundar. SYNG ÞÚ MÉR NÚ LJÚFLINGSLAG (Úr Strengleikum) Syng þú mér nú ljúflingslag, liðið er á dag! y Allt er röðulgulli gyllt, góða, syngdu ljúft og milt við minn strengjaslag! Syngdu’ um æsku, ást og tryggð, okkar kæru dalabyggð, syngdu’ um sólarlag! 304 Heitna er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.