Heima er bezt - 01.09.1977, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.09.1977, Blaðsíða 9
Hann BENJAMIN SIGVALDASON: K b var neppnismaour Qamansöm ferhasaga Við hallur, vinur minn og félagi, vorum í þann veginn að leggja af stað í langferð, og ætluð- um meira að segja alla leið „austur á land“, eins og það var kallað. Ekki var um neitt ann- að að ræða en að fara ríðandi, því að þetta var nokkr- um árum áður en „jepparnir“ komu til sögunnar. En það var heldur engin neyð fyrir okkur Hall, að ferð- ast á hestum eða „fara ríðandi“ þessa ferð, því að við áttum marga og góða hesta. í fyrsta lagi áttum við sinn reiðhestinn hvor — sannkallaða gæðinga. Og í öðru lagi áttum við marga prýðilega „ferðahesta“, en svo nefn- um við þá hesta, sem eru þrekmiklir og duglegir, þægi- lega viljugir og sæmilega góðgengir, þótt ekki geti þeir talist beinlínis reiðhestar. En í þriðja lagi ætluðum við með nokkra tamningafola. Suma áttum við sjálfir en aðra tókum við af góðkunningjum okkar og vinum, sem engan tíma höfðu til að sinna þesskonar verki, eða þeir blátt áfram treystu okkur betur en sjálfum sér. Við vorum ákveðnir í því, að leggja af stað 24. júní, eða á sjálfan Jónsmessudaginn, því að þá höfðum við lokið öllum okkar vorverkum, en heyskapur gat ekki byrjað fyrri en í fyrsta lagi eftir tíu daga. Þetta var því eini tíminn sem við höfðum til umráða, enda var þetta lang hentugasti tíminn til ferðalaga. Daginn áður en við lögðum af stað, höfðum við mikið að gera við að undirbúa ferðina. Fyrst þurftum við að athuga og yfirfara reiðtygi, síðan laga skeifur undir hestunum og bæta um þar sem þurfa þótti. Og að síðustu þurftum við að járna suma tamningafolana. En það var bæði seinlegt og erfitt, þótt við værum tuskinu vanir. Þegar kominn var venjulegur háttatími, vorum við orðnir þrevttir og ætluðum að fara að taka á okkur náðir, því bezt var að vera óþreyttur er lagt væri af stað. En rétt í þann mund, er ég ætlaði að fara að loka bænum, svo sem siður er á góðum sveitaheimilum, þá sjáum við hvar maður kemur flugríðandi með tvo til reiðar. „Hver kemur nú þarna?“ spurði Hallur. „Ég sé ekki betur en að þetta sé hann Kári í Keldu- dal,“ svaraði ég. „Hvað getur hann viljað?" spurði Hallur. „Það kemur brátt í ljós,“ svaraði ég. „En sennilega vill hann fara í eitthvert brask. Hann er sagður mjög gefinn fyrir það. Kannske það sé þessvegna, sem hann er orðinn svona efnaður, að hann gat keypt af Guð- mundi gamla jörðina og búið í fyrravor þegar hann fluttist inn í sveitina.“ „Já, um það skal ég ekkert segja, því ég þekkti mann- inn afar lítið. En þó þykir mér frekar líklegt, að hann hafi féflett karlinn, sem búinn var að missa konuna og einkasoninn, sem átti að taka við jörðinni. Hann var því neyddur til þess að hætta búskapnum, og ekki kaupandi við hendina. Kári mun því hafa fengið þetta allt fyrir ótrúlega lágt verð.“ Að þessum orðum töluðum, var Kári kominn heim í hlað. Hann kastaði kveðju á okkur og snaraði sér af baki með riddaralegum tilburðum, um leið og hann sagði: „Ég var að frétta, að þið séuð að leggja af stað í langferð. Þvf kom mér til hugar, að biðja þig að fara með þennan brúna fola fyrir mig og selja hann í ferð- inni. Ég keypti hann síðastliðið haust, svín-ól hann og tamdi í vetur, svo að hann er sannarlega útgengilegur, enda er þetta ágætasta hestefni." Hér tók hann sér ofur- litla málhvíld. svo að ég svaraði: „Þetta á nú fyrst og fremst að verða skemmtiferð, auk þess sem við höium áríðandi erindi að reka. Þetta getur því ekki talist venjuleg hestasöluferð. Að vísu getum við okkur að meinalausu selt eitthvað af tamn- ingafolunum okkar, en það er algjört aukaatriði, og leggjum við enga áherslu á það.“ Kári greip orðið þeg- ar og svaraði: „Þið komið víða við og hittið margan manninn. Það þarf ekki að segja mér það, að hvar sem þið komið, munu ungir og gamlir þyrpast kringum hinn glæsilega hestahóp ykkar. Og þá bregst mér ekki, að þið verðið spurðir hvort eitthvað af þessum hestum kunni ekki að vera til sölu, og þá getur þú bent á þann brúna, ef þú ferð með hann, jafnframt sem þú sýnir þeim tamninga- folana ykkar, þá er þið viljið selja.“ „Það er nokkuð til í þessu hjá þér. En hvað á folinn að kosta?“ „Ég þarf að fá fyrir hann 800 krónur.“ „Það er alltof hátt verð. Tamningafolana mína sel ég á 4 til 5 hundruð krónur, ef þeir verða þá hálftamdir, að minnsta kosti. Þætti mér því hæfilegt, að verðið á þeim brúna — segjum 5 til 6 hundruð krónur. Ég er hræddur um, að hann seljist ekki fyrir hærra verð.“ Kári var sannarlega á annarri skoðun, og sagði að Heima er bezt 285

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.