Heima er bezt - 01.09.1977, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.09.1977, Blaðsíða 29
Sitjum þarna, unum ein upp við þennan stein! Röddin þín er þýð og veik, þessum hæfir gígjuleik, en svo undurhrein. — Skyldi læra lögin þín, litli fuglinn, góða mín, þarna á grænni grein? Mér hefur verið sagt það og lesið um það í bókum að amman hafi verið mesti sagnaþulur þjóðarinnar. Ég get ekki dæmt um þetta sjálfur því ég átti aldrei neina slíka. Og svo furðulegt sem það þykir minnist ég þess ekki að mikið væri sagt frá ömmum í þeim barna- og unglingabókum sem ég las í æsku. Satt best að segja varð ég ekki var við þetta ömmutal fyrr en á fullorð- insárum þegar nóbelsskáldið okkar hlammáði sinni á borð fursta í einni af höllum Stokkhólmsborgar og skipaði henni á bekk með Snorra Sturlusyni og öðrum sagnameisturum fornaldar. Eftri það átti annar hver rit- höfundur og skáld ömmu sem blásið hafði þeim hæfi- leikanum í brjóst. Eitthvað hlýtur líka að vera um ömmur í þeim mörgu barna- og unglingabókum íslenskum sem komið hafa út á undanförnum árum, því nú hafa sérfræðingar kveðið upp úr með það að ekki tjói lengur að bera þessa slitnu, lúnu og tannlausu, sem situr úti í horni með prjónana sína, á borð fyrir ungdóm nútímans. Hann skilji ekki svoleiðis ömmu, lesi aldrei um hana af sjálfsdáðum og sofni undir þeim lestri sé reynt að lesa fyir hann. Forvitinn á að hafa gert tiiraun með þetta. Hann hóf lestur gamaldags ömmusögu fyrir son sinn og tók eftir því að áhuginn var ekki mikill á söguefninu, séstak- lega þegar hann aðspurður upplýsti að þessi amma hefði ekki unnið í frystihúsi og kynni ekki að keyra bíl. Les- ara datt þá í hug að láta ömmuna vera komna með vél- byssu í hendurnar í stað prjónanna sem hún hafði í upphafi sögunnar. Þá varð sonurinn allur að eyrum. Þetta var athyglisverð amma — og af látbragði hans mátti sjá að nú vænti hann þess að amma byrjaði að „plaffa“ niður bófaflokkinn sem komst á snoðir um týnda fjársjóðinn. Ef til vill hefur hann séð afa til- sýndar með skotfærabelti um sig miðjan þar rauður loginn brann einhvers staðar á bak við hurð, mundandi einni til tveim káboj-bvssum, — auðvitað sem baráttu- félagi ömmu. Þessa sögu sel ég ekki dýrara en ég keypti hana. En hvort sem mönnum líka það vel eða illa, þá er það víst að ungdómurinn skilur ekki þá ömmu sem gat hangið langtímum saman í dagdraumum hjá bakkafagurri á í hvammi og gónt upp í heiðloftið blátt. Amma nútímans segir engar sögur, og hún er ern, jafnvel sexí, vinnur í frystihúsi og keyrir kannske bíl, birtist í afmælum og á jólum með fangið fullt af gjöfum. En eftir umsögn sérfræðinganna rann það upp fvrir mér að sennilega ættu þeir auðvelt með að sanna að ég hafi verið ákaflega vanþroska í æsku úr því að mér þótti Viðlegan á Felli eftir Hallgrím Jónsson ein allra skemmtilegasta og eftirminnilegasta bókin sem ég las á þessum árum. Var ég þó kaupstaðarbarn og sá heim- ur sem bókin lýsti mér framandi. Sérfræðingarnir ættu líka auðvelt með að sanna að smekkurinn hafi verið fyrir neðan allar hellur því nafn Hallgríms finnst ekki í Skáldatali Menningarsjóðs. Allt kann þetta að vera rétt, þótt ég minnist þess ekki að málið á þyngri unglingabókunum, eins og t. d. Dav;ð Copperfield og Oliver Twist, vefðist neitt fyrir mér, og nánustu hefðu ekki mikinn tíma aflögu tií að útskýra eitthvað eða lesa fyrir mig. Þó kom það fyrir. Móðir mín var fátæk ekkja, harðdugleg og sívinnandi þegar vinna gafst, svo þessi yngsti sonur hennar gæti hesthusað 10—20 fiskibollur í mál og gengi ekki verr klæddur en börn efnaðra fólks. Metnaður tátækra ein- stæðingsmæðra rann oft eftir skringilegum farvegum í þá daga og gerir vafalaust enn. Að þessum formála sögðum er það óneitanlega með hálfum huga gert að verða við óskum lesanda um birt- ingu a ljóði um gamaldags ömmu, sennilega tannlausa í ofanálag. Samt sem áður verður nú horfið að því ráði. Höfundurinn er Jóhannes úr Kötlum, en lagið eftir Ing- unni Bjarnadóttur. AMMA RAULAR í RÖKKRINU Amma gamla er syfjuð og amma gamla er þreytt Ramba-ramba, þamba-þamba og ró-ró-ró! Hún er orðinn aumingi sem þolir ekki neitt. Bíum-bíum-bamba og ró-ró-ró! Dautt er undir katlinum og kusa orðin geld. Ramba-ramba, þambá-þamba og ró-ró-ró! Hér-hér vantar mjólksopa og hér-hér vantar eld. Bíum-bíum-bamba og ró-ró-ró! Litlum-litlum manni er kalt á sinni kló. Ramba-ramba, þamba-þamba og ró-ró-ró! Mamma fór til himins og pabbi sökk í sjó. Bíum-bíum-bamba og ró-ró-ró! Tottar hann og tottar hann nú tóman pelann sinn. Ramba-ramba, þamba-þamba og ró-ró-ró. Lífið er nú svon-og-svona, litli stúfur minn. Bíum-bíum-bamba og ró-ró-ró. Heima er bezt 805

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.