Heima er bezt - 01.09.1977, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.09.1977, Blaðsíða 21
an, að skálar- eða kvosarbotninum. Grunnklappirnar liggja þrjár í nákvæmar höfuðáttir, eru fremur odd- eða tígulmyndaðar, vita í V, N og A. Óglögg mörk eða engin eru til S og SV. Heíur Beinakerlingu vafa- laust verið valinn þessi staður vegna há-átta-smáralaufs- lags klappanna. Beinakerling, maddaman, er bókstaflega úttroðin af beinum, mosa, jarðvegi, og háfjallagróðri, s. s. lamba- grasi, geldingahnappi, músareyra og grasi. Beinin eru bæði innaní henni, utaná, ofaná og með jaðri, eða pils- faldinum. Langflest hrossabein, mest leggir, sumir brotnir. Einn var hristur, en bara mold innaní. Mosa- bleðlar eru yfir flest bein, eins þótt einstakt liggi, sér á klöpp. Allsengan gróður er að finna feti fjær pils- faldi kellu, eða ögn frá beini. Áberandi er að fjölskrúð- ugastur er gróðurinn gegnt lægstri sól, frá V—N, lítill sem enginn móti hágengi sólar, A, S, SV, nema þá innst í iðrum kellu. Enda er megin örlagavaldur Sprengisands hinn ógurlegi suðvestan garri, ísköld bræla sem síðar getur. Ekki virðist hafa verið hróflað við neinu á þessum stað, hvorki vörðum né beinum. Engin merki manna- ferða nema okkar. Þær vörður, sem taldar eru hér, eru reistar af tveimur eða fleiri steinum, á grunnklöpp, sem ýmist eru stórir steinar eða bjargfastar klappir. Þó virðast þrír steinar hafa hrunið, tiltölulega nýlega, af toppi Beinakerlingar. Líklega af frosthræringum. Tel eg að svo sé, vegna þess að þeir liggja sem hrafl þar sem þeirra virðist ekki von, á hliðum kellu. Og hver um sig hefur einn eða tvo fleti mórauða, hálfraka, en ekki sorfna eða veðraða, þótt upp snúi. Botnfletir þeirra eru hinsvegar sandblásnir. Setti eg þá upp á Beinakerlingu sem höfuðdjásn, eftir því sem mér þótti vel fara. Mynd- ir hér með sýna gömlu konuna eins og að var komið, og eftir höfuðbúnað þennan. Við öðrum vörðum var ekki hreyft, en eg tók nokkur laus bein og setti á kerl- ingu til nærmyndunar, síðan hvert á sinn stað. Loks hnaut eg um legg er lá á steini, sér, og mosableðill yfir hann miðjan. Losnaði hann, en eg setti hann aftur á sinn stað, og vona að svo við sitji. Umhverfi Beinakerlingar og þeirra mæðgna, er best lýst með meðfylgjandi myndum, og skýringum þeirra. Takið eftir á austursýn, útlínum Fjórðungsöldu. Og á kolli hennar er stallur, eða fell, sem er all áberandi og kallast mætti „Fjórðungsöldufell“, og smá-hnjúskur þar suður af, sem kalla mætti „Fellskálf“. Þessi mörk liggja eftír ás öldunnar og vísa í nær-suður. Þegar litið er til N—NA, sést risið á öldunni norðan við kvosina, „Norðuröldu“, sem komið er eftir til og frá mæðgunum, og byrgir alla útsýn frá NV til NA. Á henni nær miðri er þúst, sem vel gæti verið góð til vegvísunar. Þegar þangað er komið sjást sum kennileiti Norðurlands, og Sandbúðaalda. Frá og með Sandbúða- öldu eru háir hryggir og öldur í N—NA, og þar tel eg „Háöldu“ vera, rétt NA af Sandbúðum. Sést þaðan Loftmynd af Sprengisandssvœðinu. B S*Nbiát,m. J'-T' " Toft posl KSRLlNGfíjthoS L/ritERpI d JtS A*aiN4Ut-A. iv A ví \ / < srmm ijí ' -FEL T fícm>ur,^fou KftLFua' I i J\tec,c,tAcTF>- vftriM. 'r/L_ MÝLflOHLÍ ) Heima er bezt 297

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.