Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1977, Qupperneq 27

Heima er bezt - 01.09.1977, Qupperneq 27
I íslandssögubókum er því haldið fram að Fjölnir, blað þeirra Jónasar Hallgrímssonar, Tómasar Sæmundsson- ar og félaga, sé eitt mesta vakningarrit um þjóðlega endurreisn og menningarmál. Þetta mun rétt vera þótt ekki hafi verið haft hátt um það að á samtímann hafði Fjölnir því nær engin áhrif og var síður en svo þokka- sæil, nema þá rétt hjá einstaka manni. Falleg kvæði Jónasar og málvöndunartal þessa merkilegasta rits í bókmenntum 19. aldar mun hafa farið fyrir ofan garð og neðan hjá obbanum af landsmönnum. Þessa skoðun styðja ummæli í gömlum sendibréfum sem varðveist hafa frá þessum tíma. Drýgstan þáttinn í óvinsældum ritsins áttu skrif Jónasar Hallgrímssonar um rímnakveð- skapinn og ádeila hans á þekktasta rímnaskáldjð, Sig- urð Breiðfjörð. Dómur Jónasar var kunnáttusamlega skrifaður og rökfastur, studdur sýnishornum af bögu- mælum, hortittum og smekkleysum Sigurðar sem vitan- lega særði skáldið og aðdáendur holundarsári. Fylgis- menn rímnanna tóku upp vörn og ortu níð um Fjölni og Jónas. Sigurður Breiðfjörð reyndi að sjálfsogðu að bera hönd fyrir höfuð sér og skifaði svargrein sem eigi var prentuð en náði þó mikilli útbreiðslu og vinsæld- um, því mikill meirihluti íslendinga stóð þá fast með rímunum og vildi ekki láta halla á þær. Á einum stað í svargrein Sigurðar stendur svo m. a.: „ ... Það er víst ekki af virðingu við þig (þ. e. Fjölni, innskot hér) að einn af vorum mest virtu og nafnkennd- ustu meðbræðrum hefur nýlega gefið mórauðum hlaupahundi nafnið Fjölni. Þessum hvelpingi vænta menn þú sendir köku í klóna, fyrst hann heitir í haus- inn á þér....“ Fólki torfbæjanna og grútartýranna fannst þetta fyndið hjá skáldi sínu og lét berast bæ frá bæ með munnlegum fréttaflutningi. Sigurður lét ekki við þetta sitja og þeysti um á skáldafákinum og orti skammarvís- ur um Fjölni. Hér birtist ein þeirra. HEILRÆÐI TIL FJÖLNIS (1837) Mein er þeim sem í myrkur rata, og mega ei finna réttan stig. Aumur er sá sem allir hata og aldrei veit að betra sig. Heilræði engin honum ljær, hamingjan einatt þokast fjær. Vesalings Fjölnir, víst þú sýnir vina og hollra ráða brest. Auðnunnar vegi einn þú týnir, að eigin tjóni því vinnur flest. Sjá þú þinn kropp og limalag, það linast og horast sérhvern dag. Skylda mig því til þessa hvetur, þar hinir allir veigra sér, ef eg vissi þér eitthvað betur, af einlægni vil eg ráða þér, heilræða án því heimur er hættulegasta syndasker. Atvinna þín mun illa hlíta, annan verður að taka sið. Aftan og framan að þér hnýta allmargir sem þú flaðrar við. Eg veit, af skorti fæðu og fjár fléttar þú saman slíkar skrár. Trúðu mér, þú ert tröllfjatlaður. Týndu því siíkri rúna gjörð. Vertu langt heldur vinnumaður og vistaðu þig í Borgarfjörð. Laglega slíkir lifðu þar löndum og sér til hagsældar. Einu gildir þó bak þitt bogni °g bogi sviti kinnum frá. Þannig má sérhver sultarkogni saðning um vora tíma fá. Einhven bitann með æru þá ofan í þig þú kannt að fá. Eða ef þú í annan máta una mættir þar betur við, þig mætti enn í læri láta hjá leirkeranna fyrirsmið til þess að herða og hnoða leir, því hressir og saddir ganga þeir. Fjölnir minn, þú ert eins og aðrir, sem ætla sér stórt, en heykjast við. Þig vantar til að fljúga fjaðrir. Heima er bezt 303

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.