Heima er bezt - 01.09.1977, Side 31

Heima er bezt - 01.09.1977, Side 31
ÞÓRARINN E. JÓNSSON í útfegö miðaldastíl Frammi fyrir hásæti konungs stóð fanginn hamrammi, rólegur og beið dóms síns. Konungur virti fangann fyrir sér, íturvaxinn, svo af bar. Yfir fanganum hvíldi raunablær, sem bar vott um sorg og þjáningu. Konungur mælti: „Þú ert kominn hingað til þess að láta okkur, sem hér erum, heyra sögu sína. Um tilraun til að ræna prinsessunni þarf ekki að ræða. Þar ertu sannur að sök. Byrja þú nú á sögu þinni.“ Fanginn mælti: „Ég heiti Valdimar og er langt að kom- inn. Ekki segi ég hvaðan ég er ættaður til þess að varpa ekki vansæmd á ætt mína. Ég fer fljótt yfir sögu. Við erum þrjú systkinin og er ég þeirra elztur. Eitt sinn sem oftar var ég í veiðiför úti í skógum föður míns ásamt fleirum af liði konungs. Við eltum skógar- dýrin alllengi. Varð ég þá viðskila við veiðimennina. Villt- ist ég í skóginum og fór þannig villtur vega í nokkra daga og hafði það eitt til matar, er ég skaut með boga mínum. Að lokum komst ég þó út úr skógunum. Sá ég þar velli mikla og grösuga. Langt í burtu sá ég kastala mikinn og rammgerðan. Þangað lagði ég leið mína. Á mikil varð á vegi mínum. Yfir hana fór ég á brú, sem byggð hafði verið yfir fljótið. Þegar heirn að kastal- anum kom, var mér vel tekið og veittur góður beini. Sömuleiðis var hestur minn tekinn og hirt vel um hann. Sá, sem réði yfir kastala þessum hét Hildibrandur og var greifi að nafnbót. Fljótlega komst ég að því að kastalabúar voru kvíðnir mjög. Spurði ég þá, hvað ylli þessum kvíða. Sagði þá greifinn mér, að fyrir nokkrum mánuðum, hefði voldugur höfðingi úr fjarlægu ríki komið og beðið dóttur sinnar, Elísu að nafni. Það orð fór af höfðingja þessum, að hann væri grimmur í skapi og óvæginn. Fékk hann því afsvar hjá greifanum. Af þessu varð höfðinginn mjög reiður. Sagðist hann myndi koma aftur með fjölmennu liði, brenna kastalann og drepa greifann. Tæki hann Elísu eigi að síður. Nú var sá tími kominn, að vel gat verið, að höfðingi þessi færi að koma, eins og hann hafði hótað. Var höfðingi þessi jarl einn ríkur og voldugur, sem fyrr er sagt. Morguninn eftir heyrðist hornab'ástur fyrir utan kast- alann. Var jarlinn þar kominn og krafðist þess, að greif- inn kæmi út á kastalamúrinn til viðtals. Greifinn varð þegar við þeirri kröfu og gekk út í vígskarð kastalans. Spurði jarlinn þá greifann hvort hann vildi nú láta hann fá Elísu dóttur sína fyrir konu. Greifinn gaf jarlinum lík svör og áður. Sagðist ekki láta kúgast til þess að gifta dóttur sína nauðuga. Við þetta svar greifans varð jarlinn æfur og skipaði mönnum að sækja að kastalanum með vopnum og eldi. Óvinaherinn sótti að kastalanum og vann ekki á. Væri borinn eldur að kastalanum, rann vatn úr þar til gerðum stokkum og slökkti eldinn. Áður hafði ég sagt greifanum hver ég væri. Á þriðja degi kom jarlinn altýgjaður og skoraði á greifann að koma og berjast við sig, annars skyldi hann heita hvers manns níðingur. Þegar greifinn heyrði þetta setti hann hljóðan, því jarl- inn var sagður mikill bardagamaður og talinn sterkur, en greifinn var kominn af léttasta skeiði. Ég heyrði það sem jarlinn sagði og svaraði í stað greif- ans, þar sem ég stóð við hlið hans: „Vita skaltu það, jarl, að þú ert kominn hingað í land föður míns með ójöfnuð og yfirgang. Þótt greifinn berð- ist við þig og þú felldir hann, værirðu engu nær tak- marki þínu. Þá byði ég þér hólmgöngu þegar í stað. Þú hefur skorað á greifann til einvígis við þig. Ég skal koma í hans stað og berjast við þig, hvort heldur sem þú vilt í burtreiðum eða á fæti. Takir þú ekki þessu tilboði mínu, verð ég að álíta, að þú sért hræddur.“ Við þessi síðustu orð mín var jarl ævareiður, skoraði á mig að koma þegar og berjast við sig. Sagðist hann skyldu berja úr mér drengjarostann. Ég svaraði honum engu. Burtreiðar áttu fyrst að eiga sér stað samkvæmt áskorun jarls. Þótt annar félli af baki, var hann ekki talinn sigraður. Þá áttu sverðin að skera úr, því barizt skyldi þar til annar hvor félli af mæði eða sárum. Greifinn vildi fylgja mér út úr kastalanum með liði sínu. Ég taldi það óráð hið mesta. Jarl væri svo fjölmenn- ur, að margir liðsmenn hans væru um hvern einn kastala- manna. Kvaðst ég ekki vera viss um að lífi mínu væri hætta búin, þó svo virtist í fljótu bragði. Ef mér væri fenginn verulega fljótur hestur, mætti mér kannski tak- ast að ríða kringum kastalann og yfir síkið hinum megin, en þá yrði vindubrúin að vera niðri. Menn yrðu að vera fljótir til þess að vinda brúna upp aftur, áður en óvina- herinn kæmi. Þetta samþykkti greifinn. Ég herklæddist í skyndi þeim stærstu herklæðum, sem til voru í eigu greifans. Burtstöng og skjöld fékk ég og hest ágætan. Síðan var mér fylgt út um aðalhlið kastalans og því rammlega lokað að baki mér. Þarna á grundinni framan við kastalahliðið sat jarl á kolsvörtum hesti, albrynjaður. Ég reið á minn stað og beið átekta. Nú var merkið gefið. Við mættumst beint framundan kastalahliðinu. Brestur mikill heyrðist. Burtstöng jarlsins hafði brotnað. Eftir því sem reglurnar mæltu fyrir, var jarli fengin önnur burtstöng sterkari. Riðum við aftur hvor á sinn stað á vellinum. Ég hugsaði jarlinum þegjandi þörfina. Ég fann þegar, að hann myndi ekki sigra í burtreiðinni. Þegar merkið var gefið á ný, lét ég gæðinginn minn Hemia er bezt 307

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.