Heima er bezt - 01.08.1978, Side 11

Heima er bezt - 01.08.1978, Side 11
ari við Kings College háskólann í London. Kristensa fór ung að aldri til Kaupmannahafnar og dvaldi þar mörg ár. Bjó hún með gamalli frænku sinni, annaðist hana og erfði eftir hana a.m.k. ýmsa verðmæta muni, sem hún kom nú með að Vöglum. Kristensa var að dómi þeirra er best þekktu, frábær gæðakona, smekkvís og listhneigð og byggði upp heimili sitt og manns síns með ríkum menn- ingarblæ, þrátt fyrir fremur þröng húsakynni. Auk sér- stæðra og vandaðra húsgagna og veggmynda fylltu rósir og önnur inniblóm nálega hvert það nothæft rúm, sem gafst, og þetta allt stakk mjög í stúf við það, sem tíðkaðist um flest önnur heimili í sveitinni, þótt oft væru snyrtileg í einfaldleik sínum og fátækt. Látlaus og alúðleg stóð hún gestum sínum og manns síns fyrir beina, en eiginleg ís- lensk sveitakona varð hún aldrei. Þau Kristensa og Stefán eignuðust ekki börn. Samtímis þeim hjónum fluttu að Vöglum Kristbjörg fóstra Stefáns, nú gömul kona í skjól hans, og Margrét fóstur systir hans og maður hennar, Sigurður Pétursson. Þessi hjón önnuðust mjög búskap og heimilishald þar næstu árin. Þá bauð Stefán einnig til sín nýfermdri hálf- systur sinni, Helgu, sem verið hafði í fóstri hjá móður- systur sinni, Amþrúði, og Helga manni hennar á Hróars- stöðum í Fnjóskadal. Stefán kostaði hana til náms í gagnfræða- og kennaraskóla og veitti henni síðan margs- konar stuðning meðan bæði lifðu. Þar var hún til heimilis í níu ár. Það var á orði, hvað mikið ástríki og eindrægni ríkti með öllum þessum fjórum konum áVöglum. Nær einstæð snyrtimennska og háttvísi gaf heimilinu sérstæð- an blæ. Og þótt húsbóndinn kynni stundum að vera fremur fálátur, eða jafnvel þurrlegur, í daglegum sam- skiptum, var vitundin um heilindi hans og hugarhlýju þvi valdandi, að þar leið öllum vel. Vandalaust fólk, sem þar var oft, einkum á vorin, naut ágætrar aðbúðar og reglu- semi, og vinnutími var fastbundinn við tíu stundir, sem þá var nálega einsdæmi í sveitum. Stefán var ákaflega iðjusamur maður og hagsýnn, svo að honum notaðist allur tími vel. Einnig las hann mikið, bæði fagurfræðilegar bókmenntir, sem hann átti nokkuð af á erlendum málum, og ýmis fagleg rit, bæði viðkom- andi starfssviði sínu og um ýmiss konar handíðir. Stund- um greip hann gjarna íslendingasögu úr skáp sínum. Hann lét sér annt um heimaiðju, og vildi að sveitafólk temdi sér fjölbreyttari störf og notaði tíma sinn betur til hagsbóta og menningar, en margir virtust þá gera. Sjálfur hafði hann t.d. lært sápugerð úti í Danmörku. Hann keypti til hennar vélar og framleiddi um skeið fleiri teg- undir sápu, sem hann bjó sumar í smekklegar umbúðir með íslenskum nöfnum og seldi. Einnig vann hann lítið eitt muni úr birki, að norskri fyrirmynd, og bækur sínar batt hann margar sjálfur. Þá tók hann fyrir að steypa staura í girðingar skógræktar- innar, þótt ekki yrði það í stórum stíl. Hann var ekki sérstaklega listfengur, en gjörhugull og vandvirkur. Elsta steypta smábrúin á þjóðvegi í Fnjóskadal var gerð af honum og að hans fyrirsögn, og stendur hún enn í fullu gildi, þó að nú hafi verið steyptur á hana breiðari pallur. Vaglar standa ekki við þjóðbraut. Þó leituðu þangað margir til gistingar í langferðum. Ýmsir áttu erindi við húsráðanda, og skógurinn seiddi. Þjóðkunnir menn og merkir náttúruunnendur lögðu þangað leið sína. Eftir- minnilegust gestkoma mun heimilisfólkinu hafa orðið koma Stepans G. Stephanssonar þangað 1917. Þeir systkinasynimir þurftu margs að minnast frá Mýrarheimilinu gamla, þó að þeir ættu ekki þaðan minningar saman. Stefán Kristjánsson var aðeins tveggja ára þegar móðir hans fylgdi bróðursyni sínum á veg nokkrum vikum fyrir andlát sitt. Það var látið berast um dalinn, þegar Stephan var staddur á Vöglum, ef einhverjir vildu koma og skipta við hann orðum og handtaki. Vaglafólkið átti ógleymanlega stund með skáldinu úti á hlaði um kvöldið. Vaðlaheiðin skartaði þá sínu fegursta, lifrauð undir hnígandi sól. Skáldið stóð sem í leiðslu. Fáir komu oftar að Vöglum til gistingar eða stuttrar dvalar en Steingrímur Matthíasson, sjúkrahúss- og héraðslæknir á Akureyri. Hann var þar heimilisvinur og kom þangað til að hvílast. Oft mátti sjá hesta hans þar í girðingu um helgar á sumrum og skiði hans við bæjarvegg á vetrum. Laust eftir 1920 fékk Steingrímur leyfi til að byggja sumarsel í Vaglaskógi fyrir berklasjúklinga frá sjúkra- húsinu á Akureyri. Hann kom því upp með aðstoð margra, ekki síst ungmennafélaga í Fnjóskadal. Enginn mun þó hafa stutt hann betur í þessu máli en Stefán Kristjánsson. Skógarvarðarstarfið Vaglaskógur var girtur 1909, í tíð Einars E. Sæmundsens þar, árið áður en Stefán kom þangað Oft er þar snjóþungt á vetrum, viðhald girðinga mikið, og fénaður, sem vanur var að ganga þar, eða renna þar um óhindraður af afrétt, sótti fast á. Mátti þvi segja að varslan væri fyrsta við- fangsefni skógarvarðarins nýja. Ekki var laust við að sumum, sem notið höfðu góðs af skóginum, fynndist nógu stranglega varið. En þar var hörðu að mæta, hver sem í hlut átti. Trúmennskan í starfinu brást ekki. — Næst því að vemda skóginn fyrir beit hlaut að koma að grisjun hans, svo að sjá mætti, hvað hann gæti orðið með skynsamlegri umhirðu. Stefán leitaði samvinnu við bændurna. Hann reyndi að vinna þá, sem sjálfir réðu yfir skógi, til þess að hlíta hans ráðum um meðferð. Hinum gaf hann kost á að höggva í Vaglaskógi samkvæmt settum reglum. Ekkert fé var fyrir hendi, til þess að greiða verkamönnum, en bændur þurftu skógvið til eldsneytis, húsabóta og girðinga, og sumir þeirra not- uðu enn á þessum árum lim og börk til fóðurdrýginda. Mikið fékkst til nytja úr því sem höggvið var, en valinn raftvið varð að greiða ákveðnu verði. Stefán brýndi fyrir mönnum að höggva aðeins þau tré, sem augljóst var að þyrfti að taka. Sjálfur gekk hann síðan um og merkti það, Heima er bezt 259

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.