Heima er bezt - 01.08.1978, Síða 24
STEINDÓR STEINDÓRSSON FRÁ HLÖÐUM:
Slysfarimar í Öskju 1907
Bréf frá Ögmundi Sigurðssyni
Vorið 1882 hóf Þorvaldur Thoroddsen fyrstu lang-
ferð sína til að kanna ísland. Hélt hann síðan
rannsóknaferðum sínum áfram nær öll sumur til
1898, hafði hann þá farið víðar og kannað meira
um náttúru landsins og staðfræði en nokkur maður á
undan honum, og fáir eða engir síðar. Árangur ferða hans
varð geysimikill, eins og hin miklu rit hans bera ljósast
vitni um. Ferðirnar sjálfar voru hið mesta þrekvirki, frá
hvaða sjónarhóli sem þær eru skoðaðar, enda gat hann sér
meiri orðstír fýrir rannsóknir sínar en títt er um íslend-
inga.
Vér getum naumast nú gert oss í hugarlund alla þá
erfiðleika, sem þá voru á vegi ferðamanna um landið.
Vegir engir, nema troðningar, flestar ár óbrúaðar, enginn
uppdráttur að gagni yfir óbyggðir landsins, og menn mjög
ókunnugir þeim. Ofan á allt þetta bættist, að því nær allan
áratuginn 1880-1890 gengu nær óslitin harðindi yfir
landið. Það voraði seint, og gróður því lítill fram eftir
sumri, sem torveldaði ferðalög á hestum, og sumurin
mörg svo áfellasöm, að jafnvel snjóaði í byggðum um
hásumarið, og má þá nærri geta hvernig hefir viðrað inni í
hálendinu. Allt um þetta vann Þorvaldur verk sitt
ótrauður og hiklaus. Hversu vel tókst til um ferðirnar, og
hve árangur þeirra varð mikill má meðal annars þakka
því, hve ágætan fylgdarmann hann hafði flest öll sumurin,
en hann var Ögmundur Sigurðsson síðar skólastjóri. Þor-
valdur gefur Ögmundi eftirfarandi vitnisburð: „Ög-
mundur átti eigi lítinn þátt í því, að ferðirnar tókust vel, og
mun ég jafnan minnast þess með vinsemd og þakklæti. í
tjaldvistum var Ögmundur óviðjafnanlegur, sá um allt
innan tjalds og utan eins og besta húsmóðir, svo ég gat
sjálfur alveg gefið mig að rannsóknunum. Mér brá við það
í ferðinni 1890, er ég hafði aðra fylgdarmenn í tjaldi, sem
ekkert kunnu til neins, svo að ég varð að tefja mig á að
gera allt sjálfur, tjalda, matreiða og útbúa allt innantjalds,
sem þurfti.“ (Ferðabók Þ.Th. I.b. bls. 14)
Ögmundur Sigurðsson var frá Bíldsfelli í Grafningi.
Hann var meðal fyrstu nemenda Möðruvallaskólans og
þar hófust kynni þeirra Þorvalds, en hann var þá kennari
á Möðruvöllum. Ögmundur stundaði síðar kennaranám í
Kaupmannahöfn og Ameríku, var kennari og skólastjóri á
Eskifirði og suður í Garði en miklu lengst í Hafnarfirði.
Þar var hann kennari og síðar skólastjóri í Flensborg frá
1896-1930. Var hann á sinni tið einn af fremstu skóla-
mönnum landsins.
Ögmundur var vaskur maður að allri gerð, og eins og
títt var um sveitapilta vanur hestum og kunni til margra
verka. Á ferðalögunum með Þorvaldi þjálfaðist hann svo
vel í öllu, sem að ferðamennsku laut, að fátítt má kallast,
og einsdæmi á þeim tíma. Hann kunni vel með hesta að
fara, var nærgætinn við þá og umhyggjusamur svo að af
bar. Er gaman að lesa í bréfum hans til Þorvalds, er hann
ræðir um hesta þeirra, bæði meðan á ferðalögunum stóð
og síðar. Hafa hestar verið þeim báðum hugleikið við-
fangsefni. Þá var hann sem fyrr segir natinn við öll ferða-
störf og kunni við flestu ráð. Allan fararbúnað þeirra
félaga annaðist hann, svo að hann væri ætíð til reiðu, er
voraði og ferðir skyldu hefjast. Hann var þrekmaður og
þolinn, sem kom sér vel í erfiðum ferðalögum. Og síðast
en ekki síst var hann ágætur ferðafélagi, og var það ekki
minnst um vert á löngum ferðum í þröngum tjaldvistum.
En alls urðu ferðadagar þeirra 870, og tjaldnætur 188.
Með þeim Þorvaldi og Ögmundi tókst alúðarvinátta,
sem hélst órofin meðan báðir lifðu. Skrifuðust þeir á að
staðaldri frá 1883-1921, er síðasta bréf Ögmundar dagsett
fáum mánuðum áður en Þorvaldur lést. Bréf Ögmundar í
safni Þorvalds eru alls 174 og mörg þeirra löng. Áf þeim er
ljóst, hve innileg vinátta og trúnaður hefir verið milli
þeirra. Ögmundur ræðir mjög einkamál sín, og eftir að
Þorvaldur fluttist til Kaupmannahafnar skrifar hann
margt um bræður Þorvalds og fjölskyldur þeirra og
vandamál, einkum ræðir hann mjög um Þórð lækni, en
þeir Ögmundur voru vinir frá því báðir áttu heima í
Keflavík. Er ljóst, að Þorvaldi hefir verið kærkomið að fá
fréttir af frændum sínum hjá Ögmundi. En Ögmundur
ræðir einnig margt um pólitík, nýjar bækur og daglega
viðburði og kryddar bréf sín með ýmsum sögum og vísum,
en báðir hafa þeir sýnilega kunnað vel að meta kímilega
hluti.
Eftir að ferðum Þorvalds Thoroddsens lauk gerðist
Ögmundur oft fylgdarmaður útlendinga, bæði náttúru-
skoðara og annarra. Var hann allra manna eftirsóttastur
til þeirra hluta, bæði sakir einstakrar þekkingar sinnar á
landinu og frábærrar ferðamennskulistar. Mjög voru
272 Heima er bezt