Heima er bezt - 01.08.1978, Blaðsíða 36

Heima er bezt - 01.08.1978, Blaðsíða 36
.....Þetta er glæsileg útgáffa, hvort heldur litið er á bókina sem grip eða það sem í henni stendur. . . - Eriendur Jónsson. Þjóðsögur og sagnir og margvís- legur alþýðlegur fróðleikur, sem myndast meðal alþýðu allra sið- aðra þjóða og lifir oft og tíðum öldum saman óskrásettur á vörum hennar, er réttilega í hávegum hafður og þessari alþýðuauðlegð haldið á lofti og hún varðveitt vel af þjóðlegustu fróðleiks- og vís- indamönnum þjóðanna. Árið 1908 kom út á Akureyri bindi þjóð- sagna, sem bar heitið ÞJÓÐTRÚ OG ÞJÓÐSAGNIR Oddur Björnsson prentmeistari hafði annast söfnun til þess og kostaði útgáfuna, en síra Jónas Jónasson á Hrafnagili bjó safnið til prentunar og skrifaði merkan formála um þjóðtrú og þjóðsagnir og menningarsögulegt gildi þeirra. Þjóðsagnasafn Odds Björnssonar hefur verið uppselt um langt árabil, en mikil og vax- andi eftirspurn eftir því einkum hin síðari ár. En nú hefur Steindór Steindórsson frá Hlöðum búið til prentunar nýja og aukna útgáfu af hinu gagnmerka og skemmtilega þjóðsagnasafni, sem er 378 blað- síður með nafnaskrám, en sagna- menn og skrásetjarar eru hátt á annað hundrað. ÞJOÐTRU OG ÞJÓÐSAGNIR er glæsileg vinargjöf. Tilvalin til tækifærisgjafa. Askrifendur Heima er bezt eiga þess kost að eignast þessa glæsilegu og sígildu bók fyrir að- eins kr. 8.000.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.