Heima er bezt - 01.08.1983, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.08.1983, Blaðsíða 22
moldina og út. Einhvernveginn gat ég smogið út um eitthvert gat, en það var tóm mold. Þegar ég kom út fór ég að gá að félögum mínum, þeir voru hvergi sjáanlegir og þannig endaði þessi draumur. Það eru sagðar huldufólksbyggðir í Uppsölum, en þetta var ekki við Sigguhól, ég gerði mér ekki grein fyrir í hvaða hól þetta gerðist. En — þetta er nú svolítið skrítið, gat þetta verið veruleiki, þessi draumur? Á Húsatóftum birtist mér það í draumi, sem bjargaði mér frá drukknun, en ekki á þeirri vertíð sem mig dreymdi drauminn heldur vetur- inn eftir. Mig dreymdi að ég sæi fugla, dauða fugla og mér sýndist það vera svanir. En svo breyttist þetta, og mér virtust þessir dauðu svanir verða að mönnum. Sjódauðum mönnum, sem lágu í einskonar garðhúsi. Ég fór að aðgæta hvaða menn þetta væru og sá þar bræðurna á Húsatóftum, en þeir voru þrír og einn þeirra hét Magnús, sem var formaður fyrir skipinu. Þeir voru stórir, þessir bræður, afburða duglegir og drengir góðir. En ég þekkti ekki alla mennina og þar voru hvorki Sveinbjörn né Steindór eða ég sjálfur, því þá hefði ég farið í sjóinn með bræðrunum á Húsatóftum vet- urinn eftir. Draumurinn varð ekki lengri, samt hafði hann mikil áhrif á mig og mér fannst skrítið, að þessir dauðu svanir skyldu breytast í dána menn. Held raunar, að ég hafi tekið drauminn sem vísbendingu, því ég var þrífalaður í skiprúmið og búinn að vera þarna tvær vertíðir og eitt vor. Nú líkaði mér þarna vel, en ég gat ekki hugsað mér að vera þar lengur. Skipið fórst veturinn eftir með allri áhöfn, og einn af áhöfninni var maður frá Arnarstaðakoti í Hraungerðis- hrepp. Einu sinni keypti ég bát inn í Njarðvíkum, sem ég ætlaði að sækja við tækifæri. Var búinn að hugsa mér að vakna snemma nætur, sem ég gerði en leist ekki á veðrið, fór uppí aftur og ætlaði að vakna litlu síðar. Vaknaði ekki, en dreymdi að ég skuli engar áhyggjur hafa, ég fái betra veður seinna. Það var vont veður daginn eftir, en þegar ég fór að sækja bátinn fékk ég gott veður. Það er dálítið skrítið að sjá fisk í sjó, í draumi. Það kom fyrir, þegar ég fiskaði vel, að ég sá hvað var á línunni, þó að línan héngi inn í skúr. Einu sinni lenti ég í því að vera síðastur á sjóinn, allir rónir úr báðum hverfum og allt fullt af ljósum. En um nóttina dreymdi mig, að ég sá línuna í botn- inum og á henni mikið af fiski. Svo þegar við rérum um morguninn vissi ég varla hvar ég ætti að leggja línuna, svo ég lagði bara fyrir innan alla, sem rónir voru. Ég heyrði að karlarnir voru að tauta: „Hvað er nú þetta, hver skollinn er að, ætlar hann nú að leggja upp í landi, helvítis rassgatið á hon- um. Við sem erum vanir að fara fram úr öllum, nú fáum við ekki bröndu.“ „Jú-jú,“ segi ég, „nú fiskum við mik- ið.“ Og það endaði með því, að við komum aflanum helst ekki í bátinn. En mér kom ekki til hugar að leggja línuna þar daginn eftir. Ég fiskaði heldur betur í net en á línu, en það kom helst aldrei fyrir, að mig dreymdi fisk í netum, bara á línunni. Ég man líka eftir því að við lögðum einu sinni lúðulóð, skötulóð eða haukalóð eins og hún var líka kölluð. Ég sá það um morguninn hvað var á línunni, sá það í draumi, og segi við karlana, að nú fáum við átta lúður. „Nú lýgurðu, andskoti geturðu verið vitlaus,“ sögðu karlarnir. En við fengum átta lúður. Þetta var helvíti mikill peningur þá. Það var engin, jú það var ein lítil lúða, en flestar voru þær 150 pund og uppí 200 pund, og þetta var töluverður peningur þá, á móti þorski eða öðrum fiski. Raddirnar Ekki man ég, með fullri vissu, hvort heldur ég var 12 eða 13 ára, þegar þetta gerðist, enda langt um liðið. Ég átti þá heima í Ölversgerði, Saur- bæjarhreppi, Eyjafirði. Það var um mánaðamót júní-júlí að pabbi fékk frænda okkar Randver Bjarnason, bónda í Hlíðarhaga, til að hjálpa sér við torfristu, því að engar heyhlöður voru í kotbýlinu. Pabbi var kominn á sjötugsaldur og starfsþrek hans fjar- andi, en ég of ungur og lélegur til að handleika torfljá. Ristuland var afar lélegt, rótlítið og mátti næstum þakka fyrir ef að gras- torfur héldust heilar, hvað þá að undirveltur næðust. Randver þekkti ég vel og var hlýtt til hans og ekki síður konu hans, Guðrúnar Bjarnadóttur. Ástæðan var sú að er ég varð 10 ára byrjaði skóla- skylda mín og var þá farskóli sá er ég þurfti að sækja, um 8 vikna skeið, í Hvassafelli. Pabbi kom mér fyrir hjá þessum hjónum, því að frá heimili þeirra var stutt leið að skólastað, og ég held að þau hefðu vart getað reynst mér notalegri þó að ég hefði verið hold- borinn sonur þeirra. Nú kemur Randver, albúinn til átakanna við torfið, nokkuð snemma dags. Pabbi hafði sett pott á hlóðir í eldhúsi, með saltkjöti og baunum að innihaldi, og fól mér nú það heiðurs- hlutverk að sjá um viðhald elds og suðu miðdegisverðar. Auðvitað máttu baunirnar ekki brenna við. Pabbi hafði nokkrar áhyggjur af því að ef til vill yrði hvergi hægt að yrkja 254 Heima er bezt ■■V. ..! / ji k--. n' á •» SEí V*,, ****twi » SIGTRYGGUR SIMONARSON upp þetta torf, í landi kotsins, og ég heyrði hann segja við Randver að bezt myndi að reyna fyrst suður í Langa- melssundi. Sér þyki þó óvíst að þar fáist nokkuð af nothæfu torfi og verði þeir þá að leita fyrir sér í Steinboga- sundinu, út við Skjóldalsá. Þar á milli er allnokkur spölur. Það var ekki daglegur viðburður að hafa mann í vinnu, eða geta blandað geði við afbæjarfólk og strákálfurinn ég var eins og upptrekkt klukka, eða á nútímamáli „yfirspenntur". Svo gam- an hafði ég af flestum gestkomum. Þeir fara til verksins og ég rýk á leið með þeim. Við erum komnir suður á Langamel þegar faðir minn víkur því hógværlega að mér að pottur á hlóð- um þarfnist umsjónar. Það var engin venja barna og ungl- inga i þá daga að þenja kjaft gegn foreldrum sínum. Mér er skylda mín fullljós og orðalaust hendist ég til baka, og kem nægilega snemma til að bjarga miðdegisverðinum, sem betur fer. Randver frændi á það ekki skilið að fá skemmdan mat. Betur en svo var búið að mér á heimili hans. Það er blæjalogn og mjög hljóð- bært. Ég hræri í baunapottinum og bæti á eldinn, ákveðinn að gera mitt bezta hvað matseld snertir. Það eru tveir strompar á eldhúsinu og auk þess dálítið gat, ferkantað, á þaki, sem lokað er með torfusnepli þegar hvasst er, en er opið nú til þess að reykinn „trekki“ sem bezt út. Ég stend nokkra stund á eldhús- gólfinu og athuga handaverk mín. Þau eru harla góð! En hvað er nú þetta? Ég beiti heyrn minni af ýtrasta megni því að nú heyri ég mannamál. Það er í mikilli fjarlægð og í fyrstu heyri ég aðeins daufan óm. En smátt og smátt skýrist þetta og innan skamms greini ég að þetta eru tvær karlmannsraddir. Önnur er ívið skærari en hin og nú er ég farinn að greina orðaskil, en ekki hvað sagt er. Smáþagnir koma inn á milli. Auðvitað eru þetta þeir pabbi og Randver. Jæja, svona fór það. Ekkert torf hægt að rista í Langa- melssundinu og nú eru þeir á leið út í Steinbogasund, til þess að reyna þar. Reyndar finnst mér furðulegt hve fljótir þeir hafa verið að sannfærast um ónothæfi ristulands suður frá, því að ég er ekki búinn að vera lengi heima. Raddirnar nálgast sífellt og hækka að sama skapi. Nú eru þær svo nærri að eigendur þeirra hljóta að vera að ganga um bæjarhlaðið og mér finnst aðeins muna hársbreidd að ég nemi það sem sagt er. Aldrei næ ég þó orði af þessum samræðum og undrast ekki svo mjög þar sem ég er staddur inni í torfbæ, sem hefur deyfandi áhrif á hljóðburð. Svo fara raddirnar dofn- andi og um það bil sem ómur þeirra er orðinn fremur daufur, en þó vel greinilegur, hleyp ég út á hlað. Hvernig í ósköpunum stendur á þessu? Enginn maður sjáanlegur! Ég trúi ekki mínum eigin augum, en dettur þá í hug að einhverjir ferða- langar hafi lagt leið sina rétt framhjá bænum sem ekki var þó venjulegt. Auðvelt er að athuga það. Eins og örskot þýt ég upp á baðstofumæni og skima í allar áttir. Engir á ferð. Fjar- lægðir til næstu bæja eru litlar og úti- lokað að nokkur manneskja komist þær leiðir óséð framhjá gaumgæfni minni. Sjálfsagt er að geta þess að raddirnar hurfu mér um leið og ég snaraðist út úr eldhúsinu og heyrði ég þær ekki aftur. Ég var ákaflega forviða og þegar pabbi og Randver komu heim í mat sagði ég þeim frá þessu. Þeir urðu sýnilega hissa, en sögðu ákveðið að ekki hefði hvarflað að þeim að leita annars ristulands. Ég er lélegur að ráða gátur og þessi er ein af þeim, sem ég hefi aldrei fundið lausn á. Eftirmáli Að minnsta kosti fjórum eða fimm sinnum á liðinni æfi hefi ég heyrt nafn mitt kallað, skýrt og greinilega, er ég var einn á ferð. Ætíð hefur það hljómað á sama hátt: „Tryggvi“! Aldrei hefi ég getað fundið tilgang slíks kalls en mun venjulega hafa svarað tafarlaust, svo eðlileg hafa þessi ávörp verið. Mér er sérstaklega minnisstætt, er ég var eitt sinn á rjúpnaveiðum, í fjallsöxlinni upp af Gullbrekku, í blíðskaparveðri, að kallað var svo hátt og skýrt að ég hefði þorað að sverja að maðurinn, sem hafði einkar hljóm- sterka rödd, væri mjög nærri mér. Ég svaraði á augabragði, en áttaði mig í sömu andrá á því að ég var al- einn í fjallinu og enginn maður í nánd. Skrásett 15/1 1978. Heimaerbezt 255

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.