Heima er bezt - 01.08.1983, Page 28

Heima er bezt - 01.08.1983, Page 28
UM HÖFUNDINN Höfundur frásagnarinnar, Magnús Árnason, fæddist í Reykjavík 16. júní 1884 og lést í Vesturheimi 12. sept. 1953. Foreldrar hans voru þau Árhi Magnússon og Elín Sighvatsdóttir, en hann missti þau snemma og var tekinn í fóstur hjá fjölskyldu Benedikts Sveinssonar, alþingismanns. Þar var hann samtíða syninum, Einari Benediktssyni skáldi, og varð þeim vel til vina. Magnús mótaðist af þessu mikla menningarheimih og varð sérstaklega ljóðelskur. Hann hélt til Danmerkur með Einari, fullnumaði sig í danskri tungu og mun þar einnig hafa lært iðn sína, húsa- málun. Magnús Árnason kom til Kanada árið 1911, þá 26 ára að aldri. Strax á fyrsta árinu varð hann fyrir þeirri harkalegu lífsreynslu sem hann lýsir á þessum minnisblöðum. Árið 1911, 29. marz, fór ég frá Islandi til Kanada. Þá var ég 26 ára gamall í atvinnuleit, eins og fjöldinn sem til Kanada flutti á þeim árum. Um miðjan apríl byrjaði ég að vinna, fyrst með skóflu við kjallaragröft að húsum. Það var vinna sem margir snið- gengu hér í Winnipeg, þótti nokkuð erfið og þar af leiðandi oft fáanleg. Ekki get ég sagt að mér félli sú vinna vel. svo ég gaf það bráðlega upp, og byrjaði að mála hús, því það hafði ég lært dálitið í heimalandinu. Það var mjög mikið byggt hér í Winnipeg, en það entist bara sumarmánuðina, og um haustið, eða um miðjan nóvember var orðið svo kalt að allir hættu við þá iðn, og þá var ekki um annað að gjöra en vinna eitthvað annað, því eins og sakir stóðu þá dugði ekki að leggja árar í bát, því ekki var kaupið svo hátt í þann tíma að mikið yrði lagt fyrir. Við vorum þrír landarnir að heiman sem héldum hóp- inn, Guðmundur Filippusson og bróðir hans, Filippus Filippusson, sem kom á sama skipi og ég að heiman. Guð- mundur kom vestur árið áður og stundaði húsamálningu hér, en Filippus var við pipulagningar. Við ræddum um það hvað nú tæki við yfir veturinn, og okkur kom saman um það, að við yrðum að fara að leita eftir vinnu utan bæjarins, og það var aðeins um þrennt að velja: fiskiveiðar á Winnipeg-vatni, bændavinnu, —hirða um nautgripi, eða þá út í skóg fyrir járnbrautarfélag. Okkur var sagt að vinnan á vatninu væri köld og vond í alla staði, sem var þó ekki rétt — ég hef reynt það síðan og kann ekkert illa við þá vinnu, og sé nú eftir að ég skyldi ekki taka hana. Bændavinnan var illa borguð og við henni ekki vanir, svo við létum hana eiga sig. Okkur leist nú skárst á skógarhöggið, og ásettum okkur að reyna það og láta þar við sitja. Og svo göngum við niður í bæ og sjáum þar auglýsingu ískrifstofuglugga:„Gooí/a.x'me« wanted — $50 dollars a month. “ Okkur leist vel á kaupið, og vorum þá ekkert að hugsa um að við kunnum ekki neitt með exi að fara. Félagið bauðst til að borga fargjaldið aðra leiðina. sem var $ 15 dollarar að enda járnbrautar og svo var tekið fram að ganga þyrfti 30 mílur frá brautarenda að kofunum sem við áttum að halda til í. Og þriggja mánaða tíma urðum við að vinna þar í það minnsta, og það skrifuðum við undir. Þetta var nú nokkuð djarft af okkur, þar sem við kunnum ekki neitt til þessarar vinnu, en réðum okkur sem þaulvana menn. Það var sem þá vantaði, og kaup var ekki borgað nema góðum mönnum. Við vorum fullir af æskuþrótti og vanir að vinna harða vinnu — og allir á bezta aldri, og okkur fannst það vera nógu góð meðmæli til að byrja með. Okkur var sagt að hafa með okkur teppi til að sofa við og skammbyssu til að verja okkur fyrir úlfum í Ontario-skóg- unum, en þangað áttum við að fara. Og ferðbúnir áttum við að vera 22. desember, þá bjuggust þeir við að vera búnir að fá þessa 60 menn sem þá vantaði — matreiðslumenn, hestamenn og fleira. Svo kom dagurinn, kaldur og hreinn, frostið var 30 fyrir neðan —sem þeir kalla hér. [Aths. -^30° Fahrenheit = u.þ.b. -t-35° C]. Snemma morguns er okkur pakkað inn í C.N.1 járnbrautarvagninn, og þar ægði öllu saman: Norskum, sænskum, frönskum, Belgum, Finnum. Göllum og Negrum. Það þótti okkur löndunum heldur ruddalegur lýður og lyktin ekki sem bezt, og átti þar bezt við eins og kallinn sagði: „Það var hart að velja um andrúmsloftið, því saman blandast súrt og þykkt, svita-, hland- og skítalykt.“ — Og ofan á allt þetta bættist, að fjölda margir voru drukknir og orðbragðið ekki heflað. eins og oft vill verða þegar Bakkus er annars vegar. Ferðin gekk slysalaust til St. Johns.2 Það hét smábær og þar endaði járnbrautin. Það var farið að skyggja og við sáum ekki vel hvernig þar hagaði til. En hótelhjallur var þar, sem allir ruddust inn í og gólfplássið rétt mátulegt fyrir okkur alla. Þar lágum við hlið við hlið í öllum klæðum og var það lítið betra en úti, því allir urðu að standa upp af og til og berja úr sér hrollinn. Um morguninn var staðið upp kl. 6 og borðað í flýti. og svo lagt af stað út í snjóinn sem tók í miðjan legg. og nú átti að ganga 30 mílur, sem urðu okkur nokkuð erfiðar og langar. færðin þung, ótroðinn snjór og upp hæðir að ganga. Okkur kom saman um að brjóta slóðina til skiptis og ganga svoleiðis hver á eftir öðrum. Þann dag gengum við allan án 260 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.