Heima er bezt - 01.08.1983, Blaðsíða 8
Fyrsta flugvélin sem kom til Akureyrar. Myndin er tekin út um glugga á annarri hœð á œskuheimili Ingibjargar. ,,Rauða
húsið" sést vel á myndinni, rétt hœgra megin við miðju, með stórum kvisti á þakinu. Við þakbrún þess hœgra megin sést
í gafl húss með tveim gluggum og turni, nú þekkt sem ,,Bautinn‘‘ og ,,Smiðjan‘‘, en á þeim tíma sem ,,Gudman‘‘. Takið
eftir skrautlegu bílnúmerinu A 38, neðst til hægri.
matsmaður hjá Vélbátatryggingu Eyjafjarðar. Hafa menn
ekki enn kært sig um að skipta. í stjórn Verkstjórafélags
Akureyrar var hann í nokkur ár og 16 ár i hafnarnefnd
Akureyrarkaupstaðar. Kynntist hann þá vel Steini Steinsen
bæjarstjóra og þótti hann afbragðsmaður.
Skammt frá Strandgötu 17 var hús Halldórs Halldórs-
sonar söðlasmiðs. Þar ólst upp mærin Ingibjörg. Þau
Magnús þekktust lítið krakkar. Ingibjörg kom í Gagn-
fræðaskólann við upphaf skólastjórnar Sigurðar Guð-
mundssonar. Hun var afskaplega vösk til náms og var í
bekkjardeild sem fræg var af miklum námsmönnum úr
öðrum byggðarlögum. Er þar að nefna t.d. Eirík
Brynjólfsson, Jón Guðmundsson, Þórarin Björnsson og
Hauk Þorleifsson. Athygli vakti hversu harða keppni
Ingibjörg veitti þessu vaska karlaliði og hlaut hún sér-
stakar þakkir heimamanna á Akureyri fyrir. Síðan tók
Ingibjörg til við verslunarstörf, en var á hússtjórnarskóla í
Danmörku 1927-1929, og þegar hún kom heim í blóma
Ingibjörg leikur á stofuhljóðfœrið. Mynd: Óht.
Magnús stjórnaði Slippnum til 1944. Hús KEA sést handan
við bátana til hægri.