Heima er bezt - 01.08.1983, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.08.1983, Blaðsíða 26
oft bananar ræktaðir með því til að fá skugga og skjól handa ungviðinu. I heimkynnum sínum er kakótréð undirgróður regnskóganna, og oft rækta menn það í litlum rjóðrum þeirra, þar sem skugginn er nægur. Kakótréð þarf að verða 7-10 ára gamalt áður en það beri viðunanlega uppskeru. Þannig tekur það drjúgan tíma að rækta kakóplantekrurnar að nýju. Eftir að trén verða 50 ára eru afköst þeirra of lítil til þess að ræktun þeirra gefi arð. Ameríku. Þessum löndum er því mjög mikilvægt að verðlagið sé stöðugt og verðið hátt. Til þess að það megi tak- ast hafa verið gerð fjölþjóðasamtök um lágmarksverð. En Fílabeins- ströndin, sem er stærsti útflytjandinn og Bandaríkin, sem flytja allra landa mest inn, eru þó utan þessara sam- taka. Annars ræðst verðið mest í kauphöll í London. Torvelt er að geyma kakóið lengi í framleiðslulöndunum, því að það geymist illa sakir loftrakans. Lang- það m.a. notað til að húða pillur og töflur. I kakómassanum er um 50-60% feiti, sem pressuð er úr honum í heitri pressu, og síðan er hann malaður í hið alkunna kakóduft. í því er um 22% eggjahvítuefni, 1% theobrómin og lít- ið eitt af járni. Feitin kallast kakósmér. Bræðslu- mark þess er lítið undir hitastigi mannslíkamans eða 30-35° C. Það er mikið notað í lyfjagerð í allskonar Verkamenn að dreifa kakóbaunum á þurrk- gólf. Eftir viku verða þœr hœfar til pökkunar og útflutnings. Það er einkenni þróunarþjóða að flytja lítt unnin hráefni úr landi. DÆMIGERÐ FRAM- LEIÐSLA ÞRÓUNARLANDA Enda þótt heimkynni kakótrésins séu í Suður-Ameríku eru mestu kakó- ræktarlöndin nú í Vestur-Afríku í regnskógasvæðunum þar, neðan við 300 m hæð, og þar sem árleg úrkoma er 1250-2500 mm á ári. Mesta kakó- landið er Fílabeinsströndin, þar og í Ghana, Nígeríu og Kamerún er rækt- að meira en 60% af heimsframleiðsl- unni, sem var um 1.6 millj. lestir 1980. Þá er heimaland kakósins, Brasilía, enn í fremstu röð. Áður voru Equador og Trinidad fremstu kakóræktarlönd- in, og mynd kakóaldinsins höfð í frí- merki i Equador. Kakó er dæmigerð framleiðsla þróunarlandanna. Um 15 þróunar- lönd framleiða um 95% alls þess kakós, sem framleitt er í heiminum. Af því leiðir, að þessi lönd eru mjög háð bæði vexti kakósins og verðlagi. Einkum á það þó við um Vestur- Afríkuríkin, því að kakó er aðalút- flutningsvara þeirra. En margt getur truflað framleiðsluna, m.a. sækja þar sjúkdómar á trén, sem ekki þekkjast í stærstu geymslurúmin eru í Amster- dam, og risafyrirtæki eins og Nestlé verksmiðjurnar ráða mestu á heims- markaðnum. En þó að framleiðslulöndin leiti ýmissa ráða til að halda verðinu stöð- ugu geta þau þó ekki hindrað verð- sveiflur með öllu. En þær ásamt því hve langan tíma það tekur, að koma trjánum upp, svo að þau beri ávöxt, veldur því, að kakóræktin er í raun- inni ótrygg bændunum, sem stunda hana. FULLVINNSLA OG HLIÐARAFURÐIR Ræktunarlöndin flytja kakóbaunirn- ar út óunnar. Vinnslan fer fram í inn- flutningslöndunum. Fyrsti þáttur hennar er að glóða baunirnar. Við það hverfa þær leifar, sem eftir urðu við gerjunina, og vatnið, sem ekki náðist brott við sólþurrkunina. Þar á eftir er fræskurnið, sem er þunnt og stökkt fjarlægt, síðan eru baunirnar malaðar og fergðar milli heitra járnsívalninga við um 135-140° C hita. Út úr völs- unum kemur fast efni, sem kallast kakómassi, eða beiskt súkkulaði. Er stingpillur eða stauta. Þá er það einnig notað í súkkulaðigerð. Þegar framleiða skal súkkulaði er nýjum efnum bætt í kakómassann, miklu af sykri og bragðbætandi efn- um, einkum vanilju. I átsúkkulaði er síðan blandað hnetum, möndlum, rjóma og ýmsu fleira til að auka bragðgæðin. Súkkulaði er dæmigerð munaðar- vara. Mikils er neytt af því í ýmsum myndum í iðnaðarlöndunum, en það er naumast að fólkið í þróunarlönd- um þekki það sem neysluvöru, það er þó ekki eingöngu vegna fátæktar, heldur á það einnig rætur að rekja til loftslagsins. Súkkulaði er ekki bragðgott í hitanum, og á því litlum vinsældum að fagna í hitabeltislönd- um, jafnt meðal ríkra og fátækra. En eins og vér þekkjum horfir það mál öðruvísi við í kaldari löndum. Þar er súkkulaði- og kakóbollinn vel þeginn, annað hvort einn sér eða ásamt kaffi- dropanum. Að mestu eftir: Liv Borgen í Blvttia. St. Std. 258 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.