Heima er bezt - 01.08.1983, Blaðsíða 5
Myndina að neðan tók E.H. Arnórsson 1912
eða 1913. Bjarni, faðir Magnúsar, sigldi bát sínum eftir
Pollinum og beint upp í fjöru, lét 30 manns síðan hjálpa sér að
setja hann þarrétteins og nútímamaðurinn leggur ökutœkinu framan við
heimili sitt. Þarna á kambinum var Strandgatan seinna lögð. íhúsinu bak við bátinn
ólst svo upp konuefni Magnúsar. Þar hefst nú Glerárgata. Innfellda myndin: í júní 1983 var
gatnamótunum við aldargamalt hús þeirra hjóna bylt einu sinni enn. Vörubílastöðin Stefnir varfjarlcegð
og stórvirk vinnutœki hlýddu kalli hinnar auknu umferðar um svigrúm og yfirsýn. Mynd:ÓHT.
Magnús ber aldur sinn með afbrigðum vel. Hann fæddist
á Akureyri 30. desember árið 1900. Foreldrar hans voru
Guðrún Magnúsdóttir frá Kvíabekk i Ólafsfirði og Bjarni
Einarsson frá Kletti i Reykholtsdal, af Kalmanstunguætt,
margfrægur skipasmiður, borgari á Akureyri. Hann var
löngum til kvaddur, þegar mikils þótti við þurfa. Frægt er,
þegar staurabryggja Olsens hins norska hrundi eftir ellefu
klukkutíma. Þá var margt kveðið og meðal annars þetta:
Friðriks brú er brotin niður
og bólverk járni varið.
Byggt ef hefði Bjarni smiður,
betur hefðifarið,
enda var hann fenginn til að bjarga því sem bjargað varð.
Bjarni Einarsson átti um hríð það land, þar sem
miðstöðvar KEA urðu, átti allt gilið upp undir Garð, og
hann og Dúi Benediktsson lögregluþjónn byggðuhússem
Heima er bezt 237