Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 6
/ Vaglaskógi um 1933. Fremst frá vinstri Björg, þá er leiksystir hennar Sólveig B. Jónsdóttir í Hamborg, Erna Sigurð- ardóttir og aftan við hana (með stóran kraga) móðir hennar Sigríður Krist- jánsdóttir, er lengi rak Hattabúð Akur- eyrar, og lengst til hægri Laufey Páls- dóttir, móðir Sólveigar, kaupmaður í Hamborg. María E. Jónsdóttir. Sigurjón Oddsson. Við lát móðurinnar komu margar hjálpfúsar hendur á loft. Arnkell Jónas fór í fóstur til móðurforeldranna, Áskell til Jóns Guðmundssonar móðurbróður okkar. gestgjafa í Valhöll á Þingvöllum og bónda á Brúsastöðum, og Sigríðar Jónsdóttur konu hans, Þorkell litli fór til vinafólks, hjón- anna Bergþóru Júlíusdóttur og Jóhannesar Jónssonar sem lengi var gjaldkeri hjá Eimskip, og varð síðar kjörsonur þeirra. Vinkona móður minnar kom og bauð að ég kæmi til sín, höfðu þær eitt sinn kalsað sín á milli vinkonurnar að svo skyldi vera ef á þyrfti að halda. Hugðist faðir okkar halda heimili áfram með systurnar Ólafíu og Hrafnkötlu með tilstyrk Ragnheiðar systur okkar, sem alltaf var í heimilinu og okkur litlu systkinum sínum sem önnur móð- ir. En heilsu hans hrakaði enn rúmu ári síðar og fór Hrafnkatla þá í fóstur í Reykjavík til Sigríðar Finnboga- dóttur, ekkju Jóns föðurbróður okkar og Matthildar dóttur þeirra, en Ólafía nokkru síðar til Margrétar Jónsdóttur í Skólabænum við Suðurgötu 26 og eiginmanns hennar Jóns Ólafssonar lögfræðings. Vert er að hafa í huga að þessir atburðir voru fyrir daga almannatrygginga og án þess að ég vilji spá neinu um að öðruvísi hefði verið að farið, má ljóst vera að í tryggingakerfinu felast miklar félagslegar úrbætur og fleiri kosta er völ, til dæmis til að halda fjölskyldum saman. Fósturforeldrar mínir voru í einu orði sagt afbragðs fólk og öll ætt þeirra tók mér sem nýjum sprota á eigin stofni. Maria Elísabet Jónsdóttir hét fóstra mín, fríð kona og létt í lund, mannvinur og ör til aðstoðar við þá sem minna máttu sín, úrræðagóð svo af bar og því mjög leitað til hennar ekki ósvipað því og nú gerist í félagsmálastofnunum. Fóstur- faðir minn, Sigurjón Oddsson, hafði lært húsasmíði í Reykjavík og síðar skipasmíði í Danmörku og var oft verktaki við áveitur og hafnargerð. Hann var þéttur á velli og þéttur í lund, vel greindur og gjörhugull. Sambúð þeirra var farsæl. María og Sigurjón voru barnlaus en höfðu áður tekið til sín dreng, sem misst hafði föður sinn. Guðjón Þór Tómasson, sem þarna varð fósturbróðir minn, var tæplega tveimur árum eldri en ég. Sigurjón hafði unnið við dýpkun Akureyrarhafnar um 1927. Upp úr hugleiðingum um skipasmíða- eða viðgerð- arstöð á Akureyri þróaðist svo hlutafélagið Slippurinn, sem varð undanfari Slippstöðvarinnar. Sigurjón veitti Slippn- um forstöðu, nefndist slippstjóri og oft vorum við Guðjón einnig kennd við slippinn, því í maí 1930 fluttumst við öll til Akureyrar. Frá Akureyri á ég góðar minningar og tel mig hafa mótast þar talsvert. Þetta var sterkt menningarsamfé- lag og miðað við íbúafjölda held ég að mannlífið hafi verið sérlega fjölbreytt á Akureyri á þessum árum. Fósturfor- eldrar mínir áttu margt ættmenna og vina svo segja mátti að umferðamiðstöð væri þarna hjá okkur í miðbæ Akur- eyrar hvert sumar, og sá dagur sem ekki færði einhverja gesti með sér var einfaldlega farinn í vaskinn. Sigurjón Oddsson fóstri minn ákvað svo að flytjast með fjölskylduna suður á ný, þegar hann kenndi sjúkdóms sem dró hann til dauða um haustið 1937. Við flutninginn komst ég aftur í grennd við nánustu fjölskyldu mina, systkini og föður, sem hafði þegar hér var komið misst sjónina. Hann dvaldist síðustu æviárin á Elliheimilinu Grund og hafði þar stofu fyrir sig. Þar var ég fastur gestur, við ræddum allt milli himins og jarðar og ég las fyrir hann. Eftir á skildi ég að þær bækur sem hann valdi til lestrar voru ekki síður ætlaðar mér til uppbyggingar en honum til afþreyingar. Hann var stálminnugur og að ég tel víðfróður, ef til vill hefur þarna 230 Heima er bezl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.